Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Síða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Síða 18
Ferðalög og flakk *Í Burj Khalifa-turninum í Dúbaí, sem er 829m hár og hæsta bygging heims, var opnuð ívikunni útsýnishæð á 148. hæð. Klippt var áborðann að viðstöddum fulltrúum fráHeimsmetabók Guinness enda hæðin í 555metra hæð sem er heimsmet. Áður var út-sýnishæðin á Canton-turninum í Guangzhou- héraði í Kína sú sem var í hæstu hæðum. Hún var í 488 metra hæð. Útsýnishæð opnuð í Burj Khalifa Vikan var bæði gleði og sorg. Það var frábært að báðir A- landsleikirnir í fótbolta unnust og ótrúlegur stuðningur frá þjóðinni. Íslenski fiskurinn gerði mig svo enn hamingusamari. Rétt eftir að hafa kyngt síðasta bitanum kom sú hugsun upp í kollinum á mér að rjúpnavertíðin væri að hefjast á Íslandi. Ég þarf hins vegar að fara aftur til Jótlands, troða danskri kartöflu í hálsinn og öskra dönskuna á knattspyrnuvöllum baunalands- ins. Við fjölskyldan verðum því að treysta á að faðir minn bjargi jólamatnum enn eitt árið. Annars höfum við fjölskyldan það rosalega gott hérna rétt við landamæri Þýskalands. Hér er gott hitastig og hreint loft leikur um lungu okkar. Sjáumst í desember! Ha det godt – Hallgrímur Jónasson og fjölskylda Fjölskyldan samankomin. Harpa Hermannsdóttir, börnin Jónas Ari og Dag- björt Bára ásamt Hallgrími í sólskinsskapi í Danmörku. Hallgrímur kemst ekki þetta árið til rjúpna, frekar en undanfarin ár. Gleði og sorg landsliðsmanns Hallgrímur með landsliðinu fyrir leikinn gegn Hollandi. PÓSTKORT F RÁ JÓTLAND I S andbað er ævaforn meðferð við ýmsum kvillum og hafa íbúar Marokkó og fleiri ríkja í Afríku notast við slík böð. Yfirleitt er farið í slíkt bað yfir heitustu mánuðina, júlí og ágúst. Aðferðin er frekar einföld. Hola er grafin í eyði- merkursandinn og skilin eftir opin meðan hún hitnar í steikjandi sólinni. Þegar sandurinn ofan í holunni er orðinn nógu heitur er gestum vísað ofan í og þeir látnir leggast og sjóðheitum sandi mokað yfir. Andlit- ið er að sjálfsögðu skilið eftir ofanjarðar. Meðferðin tekur rúmlega tíu mínútur og kostar tíu evrur eða rúmlega 1.500 krónur. Ef viðkomandi þolir að vera meira en tíu mínútur ofan í má hann það, annars er hann grafinn upp og látinn í heita ábreiðu þannig að líkaminn fái ekki sjokk við að fara upp úr. Eftir rúma klukkustund með ábreiðuna yfir sér á að fara í sturtu og skola sandinn af sér. Heimamenn hafa mikla trú á þessari meðferð og segir Abdessalam Sadoq, sem eitt sinn var hirðingi en sér núna um að grafa ferðamenn í Merzouga- eyðimörkina, að þessar tíu mínútur geti gert krafta- verk. „Við trúum því að þetta geti lagað blóðþrýsting, liðverki, verki í baki og vöðvabólgu. Fólk kemur hing- að til að upplifa sandbaðið og líka til að smakka á innlendum mat sem við gerum úr lækningajurtum og plöntum,“ sagði Sadoq í viðtali við AFP-fréttastofuna. Sandbaðið virkar líkt og að taka langt gufubað. Líkaminn losar sig við eiturefni með svitanum og hreinsar sig. Gestir eru ekki bara innlenndir heldur er baðið farið að slá í gegn meðal þeirra rúmlega tíu milljóna erlendra ferðamanna sem heimsækja landið árlega en gríðarleg uppbygging á sér nú stað í Mar- okkó gagnvart væntanlegum ferðamönnum. Stefna yfirvöld þar í landi á að fjölga ferðamönnum í 16 milljónir árið 2020. Flug frá London til Marokkó tekur rúma þrjá og hálfan tíma. AFP NÝTT HEILSUÆÐI BYGGT Á FORNUM GRUNNI Eyðimerkursandbað í Marokkó ÞEGAR KEMUR AÐ HEILSUTÚRISMA ER MAROKKÓ Á TOPPNUM, BÆÐI Í NORÐ- UR-AFRÍKU OG MIÐ-AUSTURLÖNDUM. SLÍKUR TÚRISMI HEFUR AUKIST Í LAND- INU UM 67% SÍÐAN 2007. NÚ FLYKKJAST MENN OG KONUR TIL MERZOUGA- EYÐIMERKURINNAR TIL AÐ FARA Í TÍU MÍNÚTNA SANDBAÐ. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.