Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Síða 20
Það fór ekki framhjá þeim sem gat skilið íslensku, að Hrafnhildur átti afmæli þennan dag á Indlandi!
H
rafnhildur er 48 ára hársnyrtir,
fædd og uppalin í Vestmanna-
eyjum. Hún keypti hársnyrti-
stofuna Aþenu í Mjóddinni í
Reykjavík, aðeins 22 ára að aldri, reksturinn
gekk mjög vel en Hrafnhildur seldi hana 17
árum síðar, 2005. Langaði að halda á vit æv-
intýranna og lét drauminn rætast.
„Ég og fyrrverandi eiginmaður minn höfð-
um oft farið í „venjuleg“ ferðalög en eftir að
ég seldi stofuna fórum við í heimsreisu,“ seg-
ir hún. Það var þá sem Hrafnhildur heillaðist
af Suður-Ameríku. „Eftir að ég skildi við eig-
inmann minn, í mesta vinskap, fór ég til
Chile til að læra spænsku.“
Hún segir Suður-Ameríku í miklu uppá-
haldi hjá sér, einkum og sér í lagi Chile. „Ég
heillaðist af endalaust fjölbreytilegu landslagi
í þessu langa og mjóa landi; allt frá „kuld-
anum“ og vætunni fyrir sunnan til eyðimerk-
urinnar fyrir norðan. Einnig er fólkið þar
svo yndislegt, flestir taka vel á móti manni
hvar sem maður kemur. Ég fór nokkrum
sinnum til Chile allt þar til ég ílengdist þar;
bjó þá hjá vini mínum og fjölskyldu hans,
sem tók mér strax sem einni af fjölskyld-
unni. Áður hafði ég búið í Valparaiso, borg
við sjóinn, norðvestur af höfuðborginni San-
tiago. Í Valparaiso vann ég um tíma sem
túlkur í skipi sem var þar í slipp.“
Ævintýri í sjónvarpi
Þar kom að Hrafnhildur hóf að vinna sem
hársnyrtir í Santiago. „Ég var tilbúin í það
fjör á ný eftir gott hlé. Eftir það kynntist ég
fólki á vegum sjónvarpsstöðvar sem vildi fá
mig til að taka þátt í sjónvarpsseríunni Sol-
tera otra vez, ég sló til og það ævintýri vatt
upp á sig; ég var farin að koma reglulega
fram í aukahlutverkum á tveimur sjónvarps-
stöðvum, TVN og Canal13, í nokkrum þátta-
röðum sem var mjög skemmtilegt. Svo var
ég fengin í þátt til að breyta útliti dömu á
þriðju sjónvarpsstöðinni. Þetta var mikið æv-
intýri en illa launað eins og því miður er al-
gengt fyrir vinnu á þessum slóðum, en það
skipti reyndar minnstu máli fyrir mig. Ég
var bara í þessu til að hafa gaman af því.“
Chile er uppáhaldsland hennar nú, af ýms-
um ástæðum. „Það er svo yndislegt að geta
skellt sér á ströndina, í fjallgöngu, farið að
kafa eða nánast hvað sem er án þess að
skoða alltaf veðurspána áður. Að sitja í garð-
inum, berfættur á stuttbuxum fram eftir
kvöldi með safa úr ávöxtum sem vaxa á
trjám í garðinum; að geta keypt allt græn-
meti og ávexti ferskt á mörkuðum á mjög
góðu verði. Mér fannst hver dagur ævintýri
og varð hreinlega ástfangin af landinu. Ekki
nóg með það; ég varð ástfangin af manni,
núverandi eiginmanni mínum, honum Miguel
Vasques, sem er chileskur. Við giftum okkur
í júní í sumar á fallegum degi í Quilpu í
Chile.“
Hrafnhildur segir þau hjón sammála um
að lífið sé ævintýr, vilji fólk hafa það svo.
„Þess vegna ákváðum við að breyta til og
fara að gera eitthvað nýtt í nýju landi.“
Þau lögðust reyndar fyrst í ferðalög. „Við
fórum til nokkurra landa, þar á meðal Ind-
lands þar sem við kynntumst gjörólíkum
menningarheimi, en þar ferðuðumst við með
bakpoka, riðum á úlföldum í eyðimörkinni,
fórum á fílsbak og sváfum undir stjörnu-
björtum himni. Við gerðum margt fleira eft-
irminnilegt en urðum svo reyndar fárveik af
því að borða salat. Þrátt fyrir það er ferðin í
minningunni sem draumur einn.“
Af öllu því sem þau upplifðu á heimsreis-
unni fannst Miguel, eiginmanni Hrafnhildar,
eftirminnilegast þegar þau fóru í bátsferð
með Ribsafari í Vestmannaeyjum. Það kom
henni skemmtilega á óvart „og mér þótti
auðvitað sérstaklega vænt um það,“ segir
Hrafnhildur.
„Það var stórkostleg upplifun að vera á
sjónum og sjá hvalina leika sér umhverfis
bátinn. Fyrir Miguel var það einmitt algjör
draumur að sjá hvali, og lunda í berginu. Ég
sem Eyjastelpa varð mjög stolt og hreinlega
klökk af fegurð eigin lands.“
Nú eru hjónakornin flutt til London.
„Hingað komum við með ævintýraþrána eina
saman og stóra bakpoka. Ætluðum reyndar
að flytja til annars lands en skiptum um
skoðun á síðustu stundu og ákváðum að
prófa að vera hér um tíma. Það var reyndar
ekki auðhlaupið að leigja íbúð svo við leigð-
um herbergi í gegnum vefsíðuna airbnb inni
á ansi líflegri fjölskyldu; maðurinn er frá
Sviss en konan frá Taívan og þarna komu
endalaust gestir héðan og þaðan úr heim-
inum. Fólk gisti í stofunni þar sem við urð-
um að trítla um til að komast í eldhúsið. Það
var fjör þó oft væri þröng á þingi en það var
mjög gaman að kynnast þessu fólki. Hann er
grafískur hönnuður og kennir það fag í ein-
um háskólanna hérna en hún vinnur núna að
gerð bókar um tísku, einnig við uppsetningu
á tískusýningum og við nutum einmitt góðs
af því og vorum boðin á eina slíka hér í
London. Þarna eignuðumst við góða vini og
ég fæ reglulega sent frá þeim svissneskt
súkkulaði sem er auðvitað dásamlegt.“
Að þora að taka ákvörðun …
Eftir mánaðar dvöl í London fengu þau
Miguel leigða íbúð. „Við búum á yndislegum
stað í Clapham South, maðurinn minn er far-
inn í skóla og ég er með vinnu í göngufæri
að heiman hjá hársnyrtikeðjunni Head-
masters. Fékk einmitt þær skemmtilegu
fréttir í vikunni, eftir að hafa verið hér í
tvær vikur, að ég er farin að „framleiða“
næstmest á minni stofu; er komin með
marga kúnna hér á mettíma, þökk sé þeim
forréttindum að hafa fengið góða kennslu í
Iðnskólanum í Reykjavík.“
Hrafnhildur kann vel við sig í London.
„Við ætlum að vera hér um tíma og mér
finnst gott að vera svona nálægt Íslandi.
Fjölskylda mín býr öll heima en sonur minn,
Pálmar Örn, stefnir reyndar að því að fara
út. Fólk er endalaust að flakka sem er bæði
gott og gaman.“
Hjónin stefna að því að ferðast eins mikið
og þau geta um Evrópu á meðan þau búa í
London enda segir hún að það þurfi ekki að
kosta mikið. „Að kaupa sér baguette brauð
og rauðvín og setjast niður við Signubakka í
París, eða taka með sér smurt að heiman og
fara á pikknikk á ströndina, skilur ekki eftir
sig síðri minningar en að sitja á fimm
stjörnu veitingastað. Það er að minnsta kosti
mín reynsla að það einfalda er oft miklu
skemmtilegra en annað.“
Þau ætla að búa í London um tíma „en
síðan er stefnan tekin á Suður-Ameríku aft-
ur. Ekki endilega Chile, við erum ýmislegt
að spá og spekúlera og hugsum fyrst og
fremst um að njóta þess sem lífið hefur upp
á að bjóða og vera þakklát fyrir hvern dag.
Lífið er svo kaflaskipt; það er miklu minna
mál að breyta til og gera nýja hluti en áður
var. Stærsta skrefið er oft að þora að taka
ákvörðun.“
HÁRSNYRTIR Á FERÐ OG FLUGI
Hver dagur
er ævintýri
HRAFNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR HEFUR YNDI AF ÞVÍ AÐ FERÐAST
EINS OG MARGIR AÐRIR, OG HEFUR VERIÐ IÐIN VIÐ ÞAÐ. HÚN RAK
HÁRSNYRTISTOFU SEM GEKK VEL EN Í HEIMSREISU HEILLAÐIST HÚN AF
CHILE, FÓR ÞANGAÐ Í TUNGUMÁLANÁM OG NÁÐI SÉR Í EIGINMANN!
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Miguel og Hrafnhildur í Vestmannaeyjum. Það
fannst honum toppurinn í heimsreisunni!
Hrafnhildur með Viðari, syni söngkonunnar
Heru Bjarkar, á „herdeginum“ í Valparaiso.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.10. 2014
Ferðalög og flakk