Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.10. 2014
Matur og drykkir
L
ucas Keller og Íris Ann Sigurðardóttir eru eig-
endur veitingastaðarins Coocoo’s Nest sem stað-
settur er úti á Granda en þau fagna um þessar
mundir eins árs afmæli staðarins.
Súrdeigsbrauðið á veitingastaðnum Coocoo’s Nest hef-
ur vakið mikla lukku frá því að staðurinn var opnaður.
„Það sem einkennir súrdeigsbrauð er súrinn sjálfur sem
er búinn til og látinn gerjast. Súrdeigsbrauð er gerlaust
brauð en í það er aðeins notað hveiti, vatn og salt. Hrá-
efnin eru einföld en aðferðin er aðeins flóknari,“ segir
Íris. Súrdeigsbrauðið er aldagömul aðferð sem kemur
frá Egyptalandi. Vinsældir brauðsins færðust til Evrópu
og talið er að franskir bakarar hafi fyrst kynnt aðferðina
í Norður-Kaliforníu sem varð og er enn í dag stór hluti
af menningunni í San Francisco. „Biblían hans Lucasar
er einmitt bók sem heitir Tartine eftir Chad Robertson,
sem er eigandi eins vinsælasta bakarís í San Francisco
þar sem súrdeigsbrauðið leikur aðalhlutverkið í vinsæld-
um þess. Fyrir alla brauðáhugamenn þá mælum við með
þessari bók,“ segir Íris en hægt er að nálgast bókina á
Amazon.
Að mati Írisar og Lucasar er súrdeigsbrauðið með
bestu brauðum sem hægt er að fá, bæði hollt og gott.
„Súrdeig er í raun það sem ætti að kalla venjulegt því
þar er stuðst við aldagamla aðferð. Brauðið sem við
þekkjum sem „venjulegt“ brauð í dag kom í raun löngu
síðar til sögunnar. Það er miklu meira en uppskrift sem
þarf til að gera súrdeigsbrauð. Aðalinnihaldsefnið er ást,
eins mikil klisja og það er – þá er það satt!“
Íris er menntaður ljósmyndari og Lucas mat-
reiðslumaður og listamaður frá Kaliforníu. Þau kynntust
á Ítalíu þar sem þau voru bæði í námi og fyrr en varði
voru þau búin að opna veitingastað saman. Þau eru
ánægð með viðbrögðin sem þau hafa fengið við staðnum:
„Það hefur verið gott flæði af fólki og ef eitthvað er þá
komast oft ekki allir að sem vilja, sem er í rauninni lúx-
usvandamál. Við erum afar þakklát fyrir allan stuðning-
inn og fyrir föstu viðskiptavini okkar,“ segir Íris Ann.
„Þetta hefur allavega farið vel af stað og við hlökkum
bara til framhaldsins. Við elskum umhverfið okkar, það
er ekkert nema áhugavert og vinalegt fólk sem vinnur
hérna á þessu svæði. Það hefur líka verið gaman að taka
þátt í uppbyggingunni hér úti á Granda. Við héldum að
það myndi kannski taka smá tíma að það myndi lifna við
en það hefur ekki verið vandmálið. Við fundum strax
fyrir því að fólk var spennt fyrir nýju umhverfi.“
Lucas Keller og Íris Ann
Sigurðardóttir ásamt
syni sínum Óðni.
Morgunblaðið/Ómar
VENJULEGT BRAUÐ KOM MUN SEINNA TIL SÖGUNNAR EN SÚRDEIGIÐ
Súrdeigsbrauðið aldagömul aðferð
VEITINGASTAÐURINN COOCOO’S NEST HEFUR VAKIÐ MIKLA LUKKU ALLT FRÁ ÞVÍ HANN VAR OPNAÐUR Í VERBÚÐUNUM ÚTI Á
GRANDA FYRIR ÁRI. SÚRDEIGSBRAUÐ STAÐARINS ER ORÐIÐ FRÆGT OG AFAR EFTIRSÓTT, ENDA VIRKILEGA LJÚFFENGT. ÞAÐ ER ÞÓ ÖR-
LÍTIÐ FLÓKIÐ AÐ BÚA ÞAÐ TIL EN MEÐ VANDVIRKNI GETUR HVER SEM ER BÚIÐ ÞAÐ TIL. EIGENDURNIR ÍRIS OG LUCAS ERU ÁNÆGÐ
MEÐ UMHVERFIÐ OG SEGJA ÞAÐ GAMAN AÐ FÁ AÐ TAKA ÞÁTT Í UPPBYGGINGU HVERFISINS.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is