Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Blaðsíða 40
Tíska
Alexander Wang fyrir H&M
*Lína fatahönnuðarins Alexanders Wang fyrir H&M er vænt-anleg í verslanir 6. nóvember næstkomandi. Sýnishorn af lín-unni hafa nú verið birt á vefsíðu H&M. Línan er afar vetrarlegog dökk en sportleg snið einkenna yfirbragð línunnar. Marni, Isabel Marant, Versace, Stella McCartney og KarlLagerfeld eru meðal hönnuða sem hannað hafa línur í sam-starfi við verlsunarkeðjuna H&M.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó þegar kemur að fata-
kaupum?
Ég legg áherslu á að flíkurnar séu úr góðum efnum, svo skoða ég líka
þvottaleiðbeiningar. Glatað að kaupa topp sem má bara fara í hreinsun.
Ætlarðu að fá þér eitthvað fallegt fyrir veturinn?
Ég var að fjárfesta í dásamlegum ullardraktarbuxum frá Filippu K úr
versluninni GK Reykjavík.
Hver er eftirlætisárstíð þín varðandi fatastíl og hvers vegna?
Ég næ því aldrei að verða hunangslituð og berleggjuð í blómakjól og
sumarið því oft röð vonbrigða, sólbruna og innkaupamistaka. Ég finn mig
mun betur í hausttískunni og fagna því þegar vel sniðnar kápur leysa efn-
islitla kjóla af hólmi.
Hverju myndir þú aldrei klæðast?
Ég geng aldrei í háum hælum og svona ofurháir hælar kalla fram hjá
mér hræðilegar splattermyndir af brotnum ökklum svo ég held að ég
muni alltaf láta þá eiga sig.
Hvernig skilgreinir þú stíl?
Úff, ég veit það ekki, mér hefur ekki tekist að mastera neinn stíl en ég
er enn með það á stefnuskránni. Stíll er eitthvað sem er konsistent og fal-
legt, einhverskonar melódía.
Áttu einhverja dýrmæta flík sem þú tímir ekki að nota?
Hef ekki enn notað Filippu-buxurnar svo stutta svarið er já. Vonandi
breytist það á allra næstu dögum.
Hvaða flík eða fylgihlut myndirðu kaupa ef þú þyrftir aldrei að kíkja
á verðmiðann?
Birkin-tösku frá Hermés, rauða.
Segjum að þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt þig aftur til árs
að eigin vali og þú fengir dag til að versla. Hvaða ár myndirðu velja
og hvert færirðu?
Ég myndi líklega bomba mér til framtíðar, er alveg laus við fortíð-
arþrá, myndi fara svona 5 ár fram í tímann og verða algjör „trendset-
ter“ þegar ég kæmi til baka.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð?
Já, Filippa K er í uppáhaldi og sem bet-
ur fer er úrvalið af hennar fötum í
GK virkilega viðunandi.
Ef þú fengir að eiga fataskáp
einhvers, hver yrði það
og af hverju?
Hmmm, þetta er
prýðisgóð spurning,
held að það yrði Scarlett
Johansson. Hún er með
línur og klæðir þær ein-
staklega vel að mínu mati.
ALVEG LAUS VIÐ FORTÍÐARÞRÁ
Kristín Soffía heillast af sænska
fatamerkinu Filippu K.
Morgunblaðið/Ómar
Stíll er
melódía
KRISTÍN SOFFÍA JÓNSDÓTTIR, BORGARFULLTRÚI
SAMFYLKINGARINNAR Í REYKJAVÍK, ER ALLTAF ÁKAFLEGA
SMART EN HÚN LEGGUR ÁHERSLU AÐ KAUPA FLÍKUR ÚR
GÓÐUM EFNUM. KRISTÍN FINNUR SIG BETUR Í HAUST-
TÍSKUNNI ÞAR SEM VEL SNIÐNAR KÁPUR OG HLÝ FÖT
LEYSA EFNISLITLA KJÓLA AF HÓLMI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Vel sniðnar káp-
ur tilheyra því
besta úr haust-
tískunni.
Scarlett Johansson er
með flottar línur sem
hún klæðir vel.
Fágaðar ull-
arbuxur frá
Filippu K.
Rauð Birkin-taska frá Her-
més er efst á óskalistanum.