Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Blaðsíða 41
19.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
S
træti New York borgar skörtuðu sínu fegursta um síðustu
helgi þegar ég þeyttist um götur stórborgarinnar á reiðhjóli.
Að geta hjólað í bundnum kjól og strigaskóm í 20 stiga hita í
október gerir lífið eitthvað svo extra gott. Og þegar mann
langar frekar að hjóla og fá smá sól í andlitið í stað þess að vera
villuráfandi með vísakort á Fifth Avenue þá hlýtur maður að vera
kominn á pínulítið skárri stað í tilverunni.
Þegar ég steig af hjólinu og fór að horfa í kringum mig áttaði ég
mig á því að ég var alls ekki klædd í samræmi við ráðandi tísku-
strauma hjá heitustu New York-skvísunum. Ef ég hefði átt að vera
alveg „all in“ í New York-tískunni hefði ég auðvitað verið með hatt á
höfðinu, stór sólgleraugu, einhverja súperflotta merkjavörutösku með
gullbandi sem ég hefði slengt utan um mig. Svo hefði ég klæðst
dragt og verið jafnvel í stórri kápu yfir eða loðvesti úr gerviefni. Við
herlegheitin hefði ég
auðvitað verið í flat-
botna „hestastíg-
vélum“ með gull-
sylgju á.
Auðvitað hefði ég
masterað þetta allt ef
ég hefði ekki verið á
hjólinu … Það að
vera á reiðhjóli kallar
á allt annan klæða-
burð. Það er til dæm-
is alveg glatað að
hjóla í háhæluðum
skóm, þó ég hafi auðvitað prófað það, og svo er alveg vitavonlaust að
hjóla með hatt …
Fyrir svona spariguggu eins og mig, sem notar einkabílinn sinn
tæknilega séð sem úlpu og myndi aldrei geta lifað daginn af í
Reykjavík án hans, er þetta dálítið ný upplifun. Að þurfa að klæða
sig eftir veðri og vindum er heilmikil áskorun.
Það er lítið mál að rata um stræti New York borgar á reiðhjóli en
það getur versnað í því þegar komið er inn í önnur hverfi. Einn dag-
inn í stórborginni ákvað ég að hjóla til vinkonu minnar sem býr í
Brooklyn. Hún sendi mér leiðbeiningar og lagði ég af stað full sjálfs-
trausts og komst á leiðarenda eins og alvöru New York gugga. Var
meira að segja á undan áætlun sem kom vinkonu minni stórlega á
óvart.
Það versnaði þó í því á heimleiðinni. Ég hélt að það væri lítið mál
að fara bara sömu leið til baka en eitthvað klikkaði á leiðinni og þeg-
ar ég var ekki búin að skila mér heim á hótel á réttum tíma var farið
að undrast um mig. Þá var ég komin hálfa leið út á JFK, hafði beygt
í vitlausa átt, eins og einhver brjálæðingur var ég því hjálmlaus á
hjóli í myrkrinu. Sem betur fer á ég góða að og var leiðbeint í gegn-
um símann.
Þegar heim var komið blasti við mér frétt um að sænska fyr-
irsætan Anna Maria Moström, sem tók þátt í Americas Top Model
2005, hefði látist í reiðhjólaslysi í New York í síðustu viku. Hún var
keyrð niður af strætó þar sem hún hjólaði um hjálmlaus.
Eins gaman og það er að hjóla um stræti stórborgar þá er það á
sama tíma hættulegt. Og eins og svona konum eins og mér finnst
leiðinlegt að vera með einhvern búnað á hausnum sem klessir niður
á manni hárinu þá verður maður að horfast í augu við það að stund-
um þarf stællinn að víkja fyrir almennu öryggi. Saga Önnu Mariu
ætti að gera það …
martamaria@mbl.is
Hausttískan frá Gucci er alveg í takt við klæðaburð New York-skvísanna.
Anna Maria Moström.
Rammvillt og
hjálmlaus
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
Mc Planet & 3322
frönsk hönnun haust 2014
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
60 ára reynsla á ÍslandiFæst í öllum helstu raftækjaverslunum.
Removable PlatesGrill
• Ný Permacoat húðun, viðloðunarfrí
húðun sem veitir 3x lengri endingu
• Bakki sem tekur við fitu
• Allt að 42% fita lekur af kjötinu
Nýju Russell Hobbs(George Foreman)
grillin eru komin.
Með losanlegum grillplötum sem
mega fara í uppþvottavél.
3 stærðir