Morgunblaðið - 06.11.2014, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Jólatré eru farin að rísa í Reykjavík og boða þau
að farið sé að styttast í árlega hátíð ljóss og frið-
ar og fæðingarhátíð frelsarans.
Borgarstarfsmenn voru í gær að reisa þetta
fallega jólatré á hól við enda gömlu Suðurlands-
brautar, á sömu slóðum og merki borgarinnar
gert úr blómum gleður borgarbúa á sumrin.
Borgarstarfsmennirnir sögðu að setja ætti
upp 20-30 jólatré á víðavangi að þessu sinni og
voru þeir um það bil hálfnaðir við verkið í gær.
Tréð sem sést á myndinni var höggvið í Öskju-
hlíðinni og hefur augljóslega þrifist vel þar.
Einnig verða sótt jólatré í Elliðaárdal og víðar í
skóga innan borgarinnar.
Almennt stendur til að hefja jólaskreytingar í
Reykjavík í kringum 15. nóvember, samkvæmt
upplýsingum sem fengust frá Reykjavíkurborg í
gær. Það er nokkru fyrr en venjulega.
Í dag eru réttar sjö vikur þar til sjálfur jóla-
dagurinn, 25. desember, rennur upp en að-
fangadag ber upp á miðvikudag.
Bráðum koma blessuð jólin – eða eftir 7 vikur
Morgunblaðið/Golli
Jólatrén eru farin að rísa í Reykjavík sjö vikum fyrir jól
„Þetta kemur sér illa fyrir þá sem
eru í eftirfylgd og í bata. Það getur
hugsanlega dregið úr bata hafi fólk
ekki stuðning,“ sagði Anna Gunn-
hildur Ólafsdóttir, framkvæmda-
stjóri Geðhjálpar, um áhrif tveggja
sólarhringa verkfalls lækna á geð-
sviði Landspítalans. „Þetta kemur
verst niður á þeim sem síst skyldi,
þeim sem njóta lítils stuðnings frá
fjölskyldu, vinum og nærsamfélagi.“
Verkfallið hófst á miðnætti í fyrri-
nótt og lýkur á miðnætti. Anna
Gunnhildur sagði að unnið væri á
geðsviði líkt og á helgarvakt meðan á
verkfallinu stendur. Veitt er bráða-
þjónusta en 100 göngudeildarviðtöl í
gær og í dag voru felld niður.
Anna Gunn-
hildur sagði að
læknar á geðsviði
Landspítalans
hefðu veitt þjón-
ustu þeim sem
töldu sig vera í
brýnni þörf. Hún
sagði að þetta
hefði gengið vel í
gær miðað við að-
stæður. Geðhjálp
er með ráðgjafa á sínum vegum og
getur fólk komið til þeirra.
„Við höfum ekki orðið vör við að
fólk hafi hringt sérstaklega í dag
vegna verkfallsins,“ sagði Anna
Gunnhildur síðdegis í gær. „Við er-
um ekki með meðferð en bjóðum upp
á ráðgjöf og stuðning fyrir notendur
og aðstandendur.“ Hún sagði að ekki
mætti gleyma því að þetta ástand yki
álag á aðstandendur.
Nokkur úrræði standa til boða á
höfuðborgarsvæðinu þar sem fólk
getur leitað stuðnings. Anna Gunn-
hildur nefndi t.d. Vin við Hverfis-
götu, Hlutverkasetur og Hugarafl í
Borgartúni, Klúbbinn Geysi í Skip-
holti, Dvöl í Kópavogi og Læk í
Hafnarfirði. Hún segir að þessir
staðir höfði til ólíkra hópa og mis-
jafnt hvert fólk vilji leita.
Anna Gunnhildur nefndi að að-
gerðir lækna hefðu verið ákveðnar í
sjö vikur og þeim lyki 11. desember.
Á geðsviði Landspítalans er gert ráð
fyrir tveimur tveggja daga verkföll-
um til viðbótar eftir að þessu lýkur.
Hún kvaðst ekki reikna með að verk-
fallsaðgerðir yrðu frá 11. desember
til áramóta.
„Deiluaðilum ber mikið á milli. Við
vitum ekki til hvaða ráða læknar
grípa eftir áramót ef ekki gengur
saman í deilunni. Við höfðum til sam-
félagslegrar ábyrgðar stjórnvalda að
leysa kjaradeiluna. Það verður
hræðilegt ef boðað verður til ótíma-
bundins verkfalls lækna eftir ára-
mót. Ég vona innilega fyrir hönd
okkar hóps og annarra að til þess
komi ekki,“ sagði Anna Gunnhildur.
gudni@mbl.is
Getur dregið úr bata fólks
Tveggja sólarhringa verkfall á geðsviði Landspítala kemur sér illa fyrir fólk í
eftirfylgd og bata Nokkur úrræði standa til boða þeim sem vilja leita stuðnings
Anna Gunnhildur
Ólafsdóttir
„Við vitum það að við verðum að
halda áfram. Það verður að semja.
Eðlilega dregur úr bjartsýni okkar
með tímanum en það breytir því
ekki að við erum tilbúin að skoða
allar hliðar málsins og höfum verið
í níu mánuði,“ segir Sigurveig Pét-
ursdóttir, formaður samninganefnd-
ar Læknafélags Íslands. Fundað
verður í kjaradeilu lækna í dag en
Skurðlæknafélag Íslands fundar
næst með fulltrúum ríkisins í næstu
viku.
Sigurveig segir að læknar ætli
ekki að ræða kröfur sínar í fjöl-
miðlum. „Kröfugerðin er og verður
trúnaðarmál á meðan við erum á
samningsstigi. Við ætlum ekki í
fjölmiðla og ræða krónur og aura.“
Áður hefur Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra sagt þær kröfur
lækna, sem hann hafi heyrt af, vera
óraunhæfar. „Hann er auðvitað
bara að rökstyðja sitt mál. En bæði
hann og forsætisráðherrann virðast
báðir vera sammála okkur læknum
í því að við höfum dregist aftur úr í
launaþróuninni, það segja þeir báð-
ir,“ segir Sigurveig.
Verkfall lækna hófst í síðustu
viku og mun boðuðu verkfalli ljúka
hinn 11. desember ef ekki nást
samningar fyrr. bmo@mbl.is
Dregur úr bjartsýninni
Morgunblaðið/Golli
Læknar Verkfall þeirra hófst í síð-
ustu viku og viðræðum miðar lítið.
Ræða ekki
kröfur í fjölmiðlum
Fyrirspurnum á
Alþingi hefur
fjölgað gríð-
arlega á yfir-
standandi þingi.
Hafa þingmenn
nú borið upp 177
fyrirspurnir frá
þingsetningu í
október, en á
sama tíma í fyrra
höfðu borist 47,
sem er í samræmi við fjöldann á
síðustu fimm löggjafarþingum. Ein-
ar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis,
segir þróunina athyglisverða, en
engin sérstök skýring á þessari
aukningu sé sjáanleg. „Fyr-
irspurnir eins og þessar eru auðvit-
að mikilvægt tæki sem liður í eft-
irlitshlutverki Alþingis með fram-
kvæmdavaldinu. Þetta er hins
vegar rúmlega þreföldun á þeim
fjölda sem við höfum séð á síðustu
árum.“
Einar segir aukinn fjölda fyrir-
spurna leiða til aukins álags á
stjórnsýsluna. Því sé það athygl-
isvert að svör við fyrirspurnunum
séu þegar orðin 81 það sem af er
þingi og er það töluvert meira en
undanfarin ár. „Mér sýnist stjórn-
arráðið hafa brugðist mjög vel við
þessu aukna álagi. En auðvitað
leiðir þessi aukning til þess að
ráðuneytin eru í vandræðum með
að svara þessum fyrirspurnum inn-
an tilsettra tímamarka,“ segir Ein-
ar. bmo@mbl.is
Þingmenn
spyrja og
spyrja
Einar Kristinn
Guðfinnsson
Fjöldi fyrirspurna
og svara hefur aukist
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir
fyrstu þrjá fjórðunga ársins 2014
liggur nú fyrir en það gefur upplýs-
ingar um afkomu ríkissjóðs á grund-
velli innheimtra tekna og greiddra
gjalda. Innheimtar tekjur hækkuðu
um 60,6 ma.kr. milli ára en greidd
gjöld jukust um 21,6 ma.kr., sem er
heldur minna en búist hafði verið
við.
Innheimtar tekjur ríkissjóðs
námu á þessu tímabili 443,4 mö.kr.,
sem er aukning um 15,8% á milli ára
og 40,8 ma.kr., rúmlega 10% yfir
tekjuáætlun fjárlaga, að því er fram
kemur á vefsíðu fjármála- og efna-
hagsráðuneytisins. Greidd gjöld
námu 434,1 ma.kr.
Sá einstaki gjaldaflokkur þar sem
hækkun varð mest var flokkurinn
önnur útgjöld, sem hækkaði um tæp
30% frá sama tímabili í fyrra. Næst-
mesta hækkunin varð í flokknum
efnahags- og atvinnumál.
Gjöld og
tekjur jukust
Kaupum bíla
Hærra uppítökuverð
Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með
fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum.
Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is
og við sendum þér staðgreiðslutilboð
þér að kostnaðarlausu.