Morgunblaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 32
FRÉTTASKÝRING Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Krabbameinsgreiningu fylgja oft breytingar á félagslegum aðstæðum og fjárhagslegri afkomu fólks auk þess sem þörf getur skapast fyrir andlega og líkamlega endurhæfingu. Þetta segir Gunnjóna Una Guð- mundsdóttir, félagsráðgjafi hjá Ráð- gjafaþjónustu Krabbameinsfélags- ins. Hún hefur tekið saman nokkurs konar gátlista yfir þau úrræði sem eru í boði fyrir krabbameinsveika, bæði hjá hinu opinbera, stétt- arfélögum, lífeyrissjóðum og fé- lagasamtökum. Samantektina, sem ber heitið „Réttindi krabbameinsveikra – upp- lýsingar um fjármál, félagsleg rétt- indi og endurhæfingu“, má nálgast á heimasíðu Krabbameinsfélagsins en Gunnjóna Una segir stundum skorta á að fólk sé upplýst um rétt sinn í langvinnum veikindum. Því standi m.a. til boða að ræða við fé- lagsráðgjafa á Landspítalanum á meðan meðferð stendur yfir en það sé oft ekki fyrr en seinna sem það geri sér grein fyrir því að bataferlið geti verið langt og umfangsmikið og viti þá e.t.v. ekki að til eru úrræði sem það getur átt rétt á og sótt um. Kostnaður hækkað verulega „Stundum leitar fólk sér ekki að- stoðar í byrjun því það ætlar ekki að vera veikt lengi, það ætlar að kom- ast yfir þetta og kemur með því hugarfari. Ég heyri það oft. En svo lætur batinn kannski bíða eftir sér og þá getur komið kvíði og von- leysi,“ segir Gunnjóna Una. Hún segir sálrænan- og félagslegan stuðning raunar það sem hafi helst vantað inn í heilbrigðisþjónustu fólks með krabbamein en til að mæta þeirri þörf hefur Krabba- meinsfélagið m.a. boðið upp á nám- skeið í hugrænni atferlismeðferð og núvitund, sem notið hafa mikilla vin- sælda. Hvað varðar tekjuskerðingu Greiningu þarf að fylgja upplýsing  Krabbameinsgreiningu fylgja oft breytingar og langt bataferli  Stundum skortir á að fólk sé upplýst um rétt sinn  Krabbameinsfélagið gefur út gátlista yfir úrræði  Kostnaður hefur aukist Baklandið skiptir sköpum » Árlega greinast um 1.400 manns með krabbamein á Ís- landi. » Gunnjóna Una segir krabba- meinsmeðferðir ókeypis víða erlendis. » Að sögn Gunnjónu Unu eru margir þeirra sem leita til Ráð- gjafaþjónustu Krabbameins- félagsins öryrkjar. » Hún segir félagslegt og fjár- hagslegt bakland þeirra sem greinast skipta sköpum í með- ferðarferlinu. » Þá geti hár lækniskostnaður verið íþyngjandi og stundum óviðráðanlegur fyrir krabba- meinsveika. vegna veikinda segir Gunnjóna að fólk nýti sér fyrst rétt sinn á vinnu- markaði, síðan taki sjúkrasjóðir stéttarfélaganna við, en þegar greiðslur úr þeim falla niður komi til lífeyrir frá Tryggingastofnun og líf- eyrissjóðum. Hún segir kostnað vegna krabbameinsmeðferðar hafa hækkað verulega undanfarin ár en stærsta áfallið hafi dunið yfir 1. jan- úar 2010, þegar breytingar voru gerðar á lögum um félagslega að- stoð. „Þessi lagabreyting var mjög slæm fyrir fólk í krabbameins- meðferð, því eftir breytinguna hættu krabbameinsveikir að fá læknisþjónustu með sama afslætti og öryrkjar en hafa síðan þurft að kaupa læknisþjónustu á sama verði og heilbrigt fólk,“ segir Gunnjóna Una. Fara of snemma að vinna Hún nefnir einnig að lyfjakostn- aður hafi hækkað og að árlegur styrkur til brjóstahaldarakaupa til kvenna sem hafa gengist hafa undir brjóstnám hafi verið afnuminn 1. janúar sl. Þá hafi gjaldskrár vegna læknisþjónustu hækkað tvisvar á þessu ári og ókeypis endurhæfing 32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014 „Fólk veit oft ekki hvernig það get- ur náð í læknana,“ segir Gunnjóna Una um áhyggjur fólks af heilbrigð- iskerfinu. „Það á erfitt með að ná í þá og talar mikið um það hvað það er rosalega erfitt,“ segir hún. „Fólk getur sparað peninga og flýtt fyrir bata með því að nýta sér þjónustu fagaðila sem starfa á Landspítalanum, sem fólk á rétt á, meðan það er í meðferð. Það er mikilvægt fyrir fólk sem er í með- ferð að ræða við félagsráðgjafa, sálfræðing, næringarfræðing, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og aðra fagaðila sem geta aukið lífsgæði sjúk- lingsins,“ segir Gunnjóna Una. „Ég reyni að gefa fólki upp- lýsingar um ókeypis eða ódýra þjónustu og hvar megi sækja um styrki og endurgreiðslu mikils lækniskostnaðar.“ Eiga erfitt með að ná í lækni RÁÐLEGGUR FÓLKI UM ÓKEYPIS OG ÓDÝRA ÞJÓNUSTU Gunnjóna Una Guðmundsdóttir *Kostnaðarliðir hafa hækkað 2014 Sjúklingur sem fer í skurðaðgerð, lyfjameðferð og geislameðferð Sjúklingur sem fer í skurðaðgerð, uppbyggingu brjósts og lyfjameðferð Sjúklingur sem fer í skurðaðgerð Árleg skoðun eftir meðferð brjóstakrabbameins: (Viðtal við lækni kr. 6.908 og mynd af brj. 7.650)* Eitt gervibrjóst. SÍ greiða kr. 42.500 upp í sílikonbrjóst en það kostar 74.000. Konur greiða mismuninn. Tveir brjóstahaldarar á ári. Sjúkraþjálfun 25 skipti (kr. 4.921 x 5 tímar, kr. 3.936 x 20 tímar)* Eftirfylgd eftir krabbameinsmeðferð samtals á ári kr. Ekki tekið með í reikninginn: tekjumissir, sálfræðiþjónusta o.fl. sem eykur lífsgæði. Tannlæknakostnaður: Algengt er að tennur skemmist af völdum krabbameinslyfja- og geislameðferðar. Kostnaður vegna viðgerða getur numið tugum eða hundruðum þúsunda. SÍ/TR endurgreiðir í sumum tilfellum 75% tannlæknakostnað skv. þeirra gjaldskrá. Greitt á Landspítala Dæmi 1 (2013) 191.196 Dæmi 2 (2013) 214.695 69.415 24.096 15.000 31.500 20.000 103.326 193.922 103.326 239.241 / 370.826 20.000 31.500 15.000 69.415 / 201.000 Dæmi 3 (2013) 54.684 Fyrir tíðahvörf Tamoxifen Lyf sem sjúklingur greiðir sjálfur í meðferð Eftir tíðahvörf Samheitalyf / Femar Útgjöld sjúklings vegna meðferðar á krabbameini í brjósti á Landspítalanum 2013 Samantekt: Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands Útgjöld kvenna á ári eftir krabbameinsmeðferð á Landspítala fyrir krabbameinsveika á Heilsu- stofnun NLFÍ í Hveragerði verið felld niður 1. september sl. Gunnjóna Una segir fjárhags- aðstæður og félagslega einangrun meðal þeirra þátta sem hvetja fólk út á vinnumarkaðinn fyrr en ella. „Ég hef heyrt margar konur sem hafa farið í brjóstnám segja að þær hefðu þurft að taka lengra veik- indaleyfi og að þegar þær voru komnar aftur til vinnu hefðu þær fundið að þær réðu ekki strax við jafn mikla vinnu og áður,“ segir hún. Úrræði á borð við þau sem eru í boði hjá Krabbameinsfélaginu og hjá Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabba- meinsgreinda og aðstandendur þeirra, geta skipt sköpum í bataferl- inu að sögn Gunnjónu Unu, en þar getur fólk stundað tómstundir í fé- lagsskap fólks með svipaða reynslu. „En fólk þarf líka að vita að þessi þjónusta flýti fyrir bata og það þurfa læknar að segja sjúklingum sínum,“ segir Gunnjóna Una. „Fólk treystir gagnsemi úrræða sem læknar mæla með.“ 44 félög og sjúklingasamtök af- hentu í gær Einari K. Guðfinnssyni, forseta Alþingis, ályktun um ástandið á Landspítalanum. Er þar skorað á ríkisstjórn, fjárlaganefnd og Alþingi að gera nauðsynlegar breytingar á fjárlagafrumvarpinu til þess að tryggja að umhverfi sjúklinga, aðstaða starfsfólks og nema standist bæði lög og þann metnað sem íslensk þjóð vill sýna. „Við blasir að það rekstrarfé sem gert er ráð fyrir í fjárlögum muni ekki duga til að Landspítalinn – há- skólasjúkrahús geti veitt þá þjón- ustu sem lög kveða á um,“ segir í ályktuninni. Einar segist hafa gert ráðstaf- anir til þess að ályktunin berist öll- um þingmönnum. „Fjárlaga- frumvarpið er nú í meðferð þingsins og þetta fer inn í þá fjár- lagavinnu sem þar stendur yfir. Ég held að þingmenn taki áskorun af þessu tagi mjög alvarlega, þótt auð- vitað sé úr vöndu að ráða eins og allir gera sér grein fyrir,“ segir hann. Morgunblaðið/Árni Sæberg Alþingi Stuðningsfélög sjúkra afhenda forseta Alþingis áskorunina. Vilja breytingar  Fjöldi samtaka skorar á yfirvöld að auka fjárframlög til Landspítalans LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 Við erum 110 ára að því tilefni bjóðum við 20%-35% afmælisafslátt 29. október - 8. nóvember
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.