Morgunblaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 91

Morgunblaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 91
MINNINGAR 91 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014 ✝ Helga Erlafæddist í Kefla- vík 19. apríl 1934. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Hrafnistu, Nesvöll- um, þann 25. októ- ber 2014. Helga ólst upp hjá foreldrum sín- um á Íshússtíg 5, nú Túngötu 21, en foreldrar hennar voru þau Albert Bjarnason, f. 27. nóvember 1897 í Keflavík, d. 20. júlí 1967 og Lísbet Gestína Guðmunda Sigríður Gests- dóttir, f. 3. júlí 1900 í Bjarg- húsum í Garði, d. 12. febrúar 1994. Systkini Helgu Erlu eru Bjarni Vilberg, f. 28. mars 1922, d. 21. des. 1981, Hinrik, f. 2. júlí 1925, d. 25. nóv. 2004 og Sig- rún, f. 27. ágúst 1943. 3. apríl 1954 giftist Helga Hjálmari Guðmundssyni og hófu þau bú- skap í Keflavík. Þau eignuðust Keflavíkur en eftir hann fór hún í einn vetur í kvöldskólann í Keflavík (nú Gagnfræðaskól- inn). Eftir það nám fór Helga tvo vetur í Héraðsskólann í Hrútafirði og lauk landsprófi þaðan. Á sumrin vann hún í Kaupfélagi Suðurnesja og í fisk- vinnslu. Eftir landsprófið fór Helga í einn vetur í húsmæðra- skólann Ósk á Ísafirði. Ásamt húsmóðurverkinu vann Helga á dagheimili, við verslunarstörf og fiskvinnslu. Helga og Hjálm- ar skildu en 17. júlí 1987 giftist Helga Ólafi Jóni Þórðarsyni, fæddum 15. ágúst 1930, en hann lést 9. janúar 1994. Helga vann frá 1979 í flugeldhúsi Flugleiða á Keflavíkurflugvelli en hætti störfum árið 1998. Hún bjó í Garðabæ 1999 til 2001 með Valdimar Sigurbirni Jónssyni sem fæddist 31. október 1928 og lést 15. júlí 2001. Síðar flutti Helga til Keflavíkur og bjó á Aðalgötu 5, þ.e. Vinaminni, þar til hún fór á hjúkrunarheimilið Garðvang í Garði. Síðustu mán- uðina dvaldi Helga á hjúkrunar- heimilinu Nesvöllum. Útför Helgu fer fram í Kefla- víkurkirkju í dag, 6. nóvember 2014, kl. 13. fjögur börn. Þau eru Albert Bjarni, f. 30. mars 1953, maki Brynja Kjart- ansdóttir og eiga þau tvær dætur og fjögur barnabörn, Hilmar, f. 1. jan. 1955, d. 12. febrúar 2004. Var giftur Steinunni Karls- dóttur, nú látinni, og áttu þau þrjú börn. Hilmar var um árabil í sambúð með Ástríði Sigurþórs- dóttur sem á þrjú börn, Lísbet, f. 28. des 1956, maki Gunnar Ingi Kristinsson og eiga þau tvær dætur, sjö barnabörn og einn uppeldisson, Guðmundur f. 15. mars 1964, í sambúð með Sveindísi Skúladóttur sem á tvo syni. Guðmundur á fjögur börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, Sigurbjörgu Þorláks- dóttur. Helga var í Barnaskóla Elsku mamma og tengda- mamma. Við kveðjum þig með söknuði og virðingu fyrir allt sem þú varst okkur, börnum okkar og barnabörnum. Við viljum minnast þín með eftirfarandi orðum: Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð barna þinna, þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa, og eykur þeirra afl og trú, en það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum eins og þú. Ég flyt þér, móðir, þakkir þúsundfaldar, og þjóðin öll má heyra kvæðið mitt. Er Íslands bestu mæður verða taldar, þá mun þar hljóma fagurt nafnið þitt. Blessuð sé öll þín barátta og vinna, blessað sé hús þitt, garður feðra minna, sem geymir lengi gömul spor. Haf hjartans þakkir, blessun barna þinna, – og bráðum kemur eilíft vor. (Davíð Stefánsson) Hafðu þökk fyrir allt og hvíl í friði. Albert og Brynja. Minningar eru dýrmætar og til eru margar slíkar um elskulegu Helgu ömmu okkar. Hún var brosmild og mikil húmoristi sem með nærveru sinni lét öllum líða betur. Hún var besta vinkona okk- ar. Á sama tíma gat hún verið ansi ákveðin og alvarleg sérstaklega þegar hún var að kenna okkur lífs- reglurnar. Við vorum varla farnar að ganga þegar kennsla um lífið hófst. Engin hlúði að heimili sínu eins vel og amma. Þær urðu ófáar stundirnar sem við vorum saman á meðan hún straujaði og þreif. Við fengum leiðsögn um hvernig ætti að gera þetta rétt. Hún straujaði allt frá tuskum upp í nærfatnað og gerðum við systurn- ar óspart grín að því. Tuskur eru vættar og þurfa ekki að vera slétt- ar og nærfötin sjást ekki svo til hvers, var okkur ætíð spurn. Hennar svar var að þessa hluti ætti að gera almennilega og alla tíð vorum við minntar á hvernig ætti að gera þetta rétt. Varðandi að strauja allt skilaði sér reyndar ekki en varð til þess að í hvert sinn sem straujárnið er tekið upp heyr- um við í ömmu og hún brosir að þessum rökræðum okkar. Varð- andi þrifnað, já það reyndar skil- aði sér og virkar glimrandi vel. Við fórum oft til ömmu í mat. Hún gerði bestu kjötsúpu í heimi og voru kótelettur í raspi einnig í uppáhaldi. Í seinni tíð þegar við vorum farnar að halda okkar eigin heimili var símtal frá henni ómet- anlegt sem innihélt: Hæ elskan, amma er að gera kjötsúpu. Viltu ekki kíkja með krakkana yfir? Stundirnar með ömmu yfir góðum mat eru ógleymanlegar því þær færðu okkar ætíð lexíu um lífið og tilveruna í leiðinni. Hún kenndi okkur margt og átti endalausa þolinmæði handa okkur öllum. Amma fyllti barnæsku og líf okkar með gleði og hamingju. Endalausar skemmtilegar minn- ingar. Að fá að fikta og prufa snyrtivörurnar, hita sér grænar baunir í dós eftir skóla, fara í sum- arbústað, ýmis ferðalög og fá að gista í holunni hjá ömmu sín. Alla tíð vakti mikla kátínu þegar við laumuðust í hálsakot hennar og hún flissaði alltaf að uppátækinu en fannst það alltaf svo gott og dýrmætt sem og okkur. Það var vinsælt að hoppa yfir til ömmu að horfa á sjónvarpið. Á föstudagskvöldum fórum við oft til hennar að horfa á Idol. Auðvitað laumaði hún alltaf smáaurum að barnabörnunum fyrir sælgæti þegar þau höfðu aldur til að fara sjálf í sjoppuna. Amma var mikið fyrir tónlist. Hún kenndi okkur að hlusta og meta hana til fulls, sem við hefðum annars farið á mis við. Þurfum við ekki annað en að setja á lag með Pavarotti til þess að minnast stunda með henni. Það var alltaf gaman að sitja við plötuspilarann og fara í gegnum safnið hennar, liggja á mjúka teppinu og hlusta. Á meðan færði amma okkur glas af appelsíni og oft laumaði hún til okkar örfáum kandísmolum. Allar minningarnar um og með ömmu eru ómetanlegar. Þær munu ylja okkar hjörtum um ókomna tíð og arfleifð hennar mun ávallt lifa því það er svo margt sem hún kenndi okkur og færði. Guð geymi þig, elsku amma. Munum sakna þess að laumast í hálsakot þitt og sjá brosið sem ávallt lét okkur líða svo vel. Þínar ömmustelpur, Helga Erla og Sóley. Helga langamma mín var stór- kostleg og glæsileg kona í alla staði. Orð fá því ekki lýst hversu mikilvæg hún var mér og öllum öðrum sem þekktu hana. Ég og hún pössuðum mjög vel saman og gátum við setið heilu stundirnar að spila og tala saman. Nú hvílir gullfallegur engill á himnum. Elsku langamma mín. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíldu í friði, elsku langamma, elska þig endalaust og hugsa til þín alltaf. Lísbet Helga Helgadóttir. Elsku amma Helga okkar. Nú er komið að kveðjustund og það er svo margt sem fer um huga okkar. Þær eru margar góðar minning- arnar sem ylja hjarta okkar og munu gera um alla ævi. Minningar um yndislega og skemmtilega ömmu sem hafði alltaf margt til málanna að leggja, bjó til dýrindis kjötsúpu, vissi alltaf hvernig átti að gleðja litlu börnin í fjölskyld- unni og allt mátti á hennar heimili. Hún vildi ávallt allt fyrir okkur gera og veitti okkur ótakmarkaða ást og umhyggju. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Guð blessi minningu þína, elsku amma, og gefi að við getum varð- veitt allt það sem þú hefur kennt okkur og minningarnar sem þú hefur gefið okkur. Elsku amma, hvíl í friði. Helga Erla Albertsdóttir og Sigríður Ósk Albertsdóttir. Elsku langamma. Mikið sakna ég þín og mun ávallt vera þakklát fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Mig langar að kveðja þig með þessari bæn: Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu halt mér fast í spori þínu, að ég fari aldrei frá þér, alltaf, Jesús, vertu hjá mér. Um þig alltaf sál mín syngi sérhvern dag, þó eitthvað þyngi. Gef ég verði góða barnið, geisli þinn á kalda hjarnið. (Ásmundur Eiríksson) Hvíldu í friði, elsku langamma. Þín Brynja Ósk. Helga Erla Albertsdóttir ✝ Signý ÁgústaGunnarsdóttir fæddist í Skipa- gerði í Vestur- Landeyjahreppi í Rang. 6. ágúst 1926. Hún and- aðist á hjúkrunar- heimilinu Eir, Grafarvogi, 20. október 2014. For- eldrar hennar voru Björglín Guð- rún Stefánsdóttir, f. 22. sept- ember 1885, d. 15. apríl 1962 og Gunnar Gunnarsson, f. 12. júlí 1899 á Blábringu á Rangárvöllum, d. 3. mars 1979 í Reykjavík, bóndi í Oddakoti (Vesturjörð) 1927-36, Ljót- arstöðum 1936-43 og síðan verkamaður í Reykjavík, for.: Gunnar Ásbjörnsson, f. 3.12. 1868 í Galtaholti í Rang- árvallahr. í Rang., d. 17.5. 1954, bóndi í Skipagerði í V- Landeyjahr í Rang., og k.h. Katrín Jónsdóttir, f. 1.11. 1864 í Blábringu í Rang., d. 20.12. 1941, húsfreyja í Skipagerði í V-Eyjafjallahr. í Rang. Björg- lín eignaðist með Gunnari Reykjavík. Börn Signýjar og Lofts eru: 1) Gunnar, f. 25.2. 1949, giftur Halldóru Guð- laugu Ragnarsdóttur, f. 1.5. 1952. 2) Magnús, f. 13.4. 1951, giftur Elsu Árnýju Bjarnadótt- ur, f. 22.7. 1960, og eiga þau fimm börn og níu barnabörn. 3) Rúnar, f. 23.1. 1955. 4) Reynir, f. 29.5. 1957, fyrri kona hans er Sigrún Jóns- dóttir, f. 18.10. 1959 og eiga þau einn son, seinni konan hans er Guðný Elín Jónsdóttir, f. 31.12. 1958 og eiga þau tvær dætur. 5) Björg Sigurlaug, f. 8.10. 1961, fyrri maður hennar er Steven Leo Hall, f. 22.12. 1952 og eiga þau tvö börn og eitt barnabarn, seinni maður hennar er Þórður Geir Þor- steinsson, f. 27.5. 1969 og eiga þau einn son. 6) Arnar, f. 13.5. 1967, hann eignaðist eina dótt- ur með Ólöfu Haflínu Ingólfs- dóttur, f. 23.6. 1971, með fyrri sambýliskonu sinni, Elínu Sig- urðardóttur, f. 25.1 1971, eign- aðist hann eina dóttur og með seinni sambýliskonu sinni, Ingibjörgu Sigurðardóttur, f. 19.3. 1978, eignaðist hann eina dóttur. 7) Birgir, f. 13. maí 1967, giftur Helgu Ágústs- dóttur, f. 25. janúar 1971, og eiga þau fjögur börn. Útför Signýjar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 6. nóv- ember 2014, kl. 15. Kristjáni Jak- obssyni, f. 9.11. 1865, d. 11.6. 1943, Stefán Krist- jánsson, f. 3.7. 1905, d. 3.2. 1991. Með Ingvari Sig- urgeiri Eyþórs- syni, f. 8.11. 1890 í Reykjavík, d. 8.9. 1934 í Reykjavík, eignaðist Björglín Hafstein Baldur Fossan Ingvarsson, f. 21.9. 1917 í Reykjavík, d. 23.7. 1979, í Reykjavík, verkamaður í Kópavogi. Börn þeirra: a) Haf- dís, f. 6.5. 1945, b) Unnur, f. 8.9. 1946. Börn þeirra Gunnars og Björglínar: a) Gunnar Karl, f. 6.8. 1926, b) Signý Ágústa, f. 6.8. 1926. Signý giftist Lofti Jens Magnússyni hinn 29.12. 1955, f. 1.12. 1925. Foreldrar Lofts voru Magnús Loftsson, f. 22.5. 1899 í Gröf, Miðdalahreppi, Dalasýslu, d. 11.12. 1957 á Víf- ilsstöðum og Geirlaug Sigríður Jónsdóttir, f. 2.11. 1905 á Efri- Grund í Grindavík, d. 26.10. 1964 í Reykjavík, húsfreyja í Móðir mín Signý er látin. Hún er komin af alþýðufólki, bændum og öðru sveitafólki. Það fólk var kjarni íslensku þjóðarinnar, vinnusamt, dug- legt og guðrækið fólk sem skil- aði sínu dagsverki möglunar- laust. Signý var og er samt sem áð- ur áhrifavaldur í lífi margra, tuga manna og kvenna. Hún hefur verið leiðarljós í lífi þeirra með eftirbreytni sem vert er að fara eftir. Hún er allt það sem hefur einkennt ís- lenskt kvenfólk í gegnum aldir, sem er þolgæði, dugnaður, fórnfýsi, hjálpsemi og það sem einkenndi hana mest, jafnaðar- geð, blíða og skilyrðislaus kær- leikur í garð barna sinna og annarra sem hún kynntist og sýndi öllum í verkum sínum. Hún var trúuð og ól börn sín upp í kristnum sið. Signý var birtingarmynd kærleikans eins og hann birtist í boðskap Jesús Krists og lifði hún alla tíð eftir boðskap kirkjunnar, því að hún var trúuð manneskja. Signý fæddist í Landeyjum 1926. Hún ólst þar upp við góð- an kost til unglingsára. Hún bjó í Oddakoti 1927 til 1936. Árið 1936 fluttust þau að Ljót- arstöðum, Austur-Landeyjum og síðan fluttust þau til Reykjavíkur 1942. Í Reykjavík bjó Signý ásamt foreldrum sínum og bræðrum á Seljalandsvegi. Signý gekk í húsmæðraskólann 1946-47 og sagði hún síðar að það hefði verið besta tímabil lífs síns. Hún bjó vel að þekkingu sinni sem hún aflaði þar, saumaði föt, bakaði og vann við hann- yrðir. Signý kynntist Lofti Jens Magnússyni 1948 í Reykjavík. Þau voru gefin saman 29. des- ember 1955. Þau hjónin voru á flækingi fyrstu árin enda mikil húsnæð- isekla á þessum tíma eða þar til þau fluttust í Blesugróf en þar áttu þau heima í hartnær 60 ár. Signý fluttist þá á hjúkrunar- heimilið Eir og bjó þar til and- láts. Blesugrófin var eins og lítið þorp. Þar myndaðist mikil sam- staða meðal kvenna sem hjálp- uðu hver annarri við uppeldi barnanna. Signý eignaðist margar vinkonur í hverfinu og entist vinátta þessi ævilangt við þær flestar. Signý vann í Kexverksmiðj- unni Frón í Reykjavík og síðar í Lakkrísverksmiðju. Hún gerði hlé á starfsferlinum þegar hún hóf barneignir. Hún hóf aftur störf hjá Ofnasmiðjunni í hluta- starfi. Síðar starfaði hún hjá Kópavogshæli við umönnun vistfólks við miklar vinsældir þess og starfsfólk. Hún var vel liðin á vinnustöðum sínum og vinsæl meðal samstarfsmanna sinna. Signý var söngelsk og var um skeið í kór í Kópavogi. Hún helgaði meirihluta fullorðinsára sinna uppeldi barna sinna og þegar síðustu börnin voru kom- in á unglingsár, fór hún á vinnumarkaðinn aftur. Hún var dugleg að afla til búsins það sem upp á vantaði. Alltaf var þó átt til hnífs og skeiðar og liðu börn þeirra hjóna aldrei skort. Signý saum- aði föt, bakaði og ól börnin með blíðri hendi alla tíð. Efri ár þeirra hjóna ein- kenndust af kærkomnum friði, fjárhagsöryggi og ferðlögum. Þau ferðuðust umtalsverð á sínum yngri árum um landið en á efri árum bættust útlöndin við. Árið 1994 vann Signý sum- arbústað í Grímsnesinu í happ- drætti DAS. Þetta var þeim kærkomið afdrep á sínum efri árum meðan heilsa þeirra ent- ist. Birgir Loftsson. Ég vil kveðja elskulegu tengdamóður mína með nokkr- um orðum. Ég er búin að vera tengd Signýju og hennar fjöl- skyldu í 27 ár. Strax í byrjun tók hún mér vel en ég var bara unglingsstúlka þegar ég hitti hana fyrst. Ég sá fljótlega að Signý var harðdugleg mann- eskja sem hafði eignast sjö börn og stýrt stóru heimili með mikilli fórnfýsi, kærleika og dugnaði. Eftir að börnin voru uppvaxin þá fór hún að vinna á Kópavogshæli og vann þar þangað til hún fór á eftirlaun. Vistfólkið þar hafði miklar mætur á henni enda hugsaði hún vel um þau eins og sín eig- in börn. Hún var yfirleitt alltaf hress og kát. Hún hafði gaman að hitta fólk, syngja og fara í veislur. Alltaf voru einhver af- mæli, fermingar, útskriftar- veislur og fleira í gangi hjá stórfjölskyldunni sem henni þótti gaman að mæta í. En síð- asta árið fór heilsu hennar hrakandi og þá gat hún lítið mætt í veislur. Hún hafði líka gaman að ferðast og fara í göngutúra sér- staklega um Elliðaárdalinn þegar hún hafði heilsu til þess. Mörgum stundum eyddu þau hjónin í bústaðnum sínum í Grímsnesi sem þau gerðu að sínum sælureit á efri árum og það var alltaf gaman að koma í heimsókn til þeirra þangað. Síðustu árin sín dvaldi Signý á Eir, fyrst í dagvistun og svo í langtímadvöl eftir að eiginmað- ur hennar lést fyrir einu og hálfu ári síðan. Henni leið mjög vel á Eir og hrósaði alltaf starfsfólkinu þar. Sérstaklega fannst henni gaman í dagvist- uninni og kallaði það leikskól- ann sinn. En nú er komið að leiðarlok- um hjá þessari sterku og dug- legu konu sem gekk í gegnum bæði erfiða og góða lífsbaráttu. Hvíl í friði, elsku Signý og guð geymi þig. Loks beygði þreytan þína dáð, hið þýða fjör og augnaráð; sú þraut var hörð – en hljóður nú í hinsta draumi brosir þú. (Jóhannes úr Kötlum) Helga Ágústsdóttir. Signý Ágústa Gunnarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.