Morgunblaðið - 06.11.2014, Page 54

Morgunblaðið - 06.11.2014, Page 54
54 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014 Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Súkkulaði er sagt margra meina bót. Það eflir meðal annars minnið og er gagnlegt þeim sem glíma við þunga lund. Áhugamenn um súkku- laði grípa í feitt á árlegri súkku- laðisýningu sem nú stendur yfir í París – Salon de Chocolat – og til hennar leggur fólk leið sína reyndar alls staðar að úr veröldinni, að sögn aðstandenda. Þar kennir margra grasa. „Má bjóða þér að smakka? Taktu bita, þetta er nokkurs konar sushi súkkulaðsins,“ hrópar hrásúkkulaði- framleiðandinn Frederic Marr er hann laðar gesti að bás sínum af innlifun. Fróðir lofa hrásúkkulaðið sem „ofurfæðu“ en samkvæmt nýj- ustu straumum og stefnum í neyslu afurða kakóbaunarinnar sækir hrá- súkkulaðið mjög á. Málsvarar súkkulaðis segja það heilsusamlegt því það sé unnið úr kakóbaunum við miklu minna hita- stig en hefðbundið súkkulaði. Fyrir vikið verði eftir í því meira af nær- ingarefnum á borð við járn, sink, magnesíum og kopar auk meira af andoxunarefnum. Að sögn Marr, sem rekur súkku- laðifyrirtæki sitt í Montreuil skammt frá París, hafa betr- umbætur í framleiðsluferlinu gert hrásúkkulaðið heilsusamlegra og bragðbetra. „Sögulega séð hefur hrásúkkulaði ekki þótt sérdeilis bragðgott. Þess var neytt í næring- arskyni og því var kastað til hend- inni í framleiðslunni. En hágæða hrásúkkulaði er nú að sækja í sig veðrið í löndum eins og Frakklandi þar sem menn láta bragðið sig miklu varða.“ Lauren Bandy, næringarfræð- ingur við neytendarannsókn- armiðstöðina Euromonitor Int- ernational, segir hrásúkkulaðið enn vera jaðarvöru. Vinsældir þess hafi þó aukist jafnt og þétt á nokkrum árum. Sala á hefðbundnu dökku súkkulaði hafi aukist um 1,4 millj- arða dollara síðustu fimm árin og árleg söluaukning nemi 7%. Plúsar og mínusar „Margir kaupa hrásúkkulaði af sömu ástæðu og þeir voru vanir að kaupa dökkt súkkulaði. Sé sala á því dökka notuð sem vísbending um möguleika hrásúkkulaðis þá lofar það góðu,“ segir Bandy. En neysla þess reynir á pyngjuna því það kost- ar mun meira en annað súkkulaði, um fimm evrur fyrir 45 gramma stöng eða rúmlega 750 krónur. Verðið er ekkert vanda- mál og stendur ekki í veg- inum, segir Kris McGowan hjá breska fyrirtækinu Raw Chocolate Company. Neytendur væru reiðubúnir að borga meira bæru þeir traust til framleiðsluferl- isins og innihaldsins. „Það hefur verið alvöru sveifla yfir í hrásúk- kulaðið undanfarin 10 ár eða svo. Í seinni tíð hafa neytendur láta sig meiru varða hvað þeir kaupa. Þeir vilja vita meira um upprunann og í kjölfar matvælahneyksla treysta Smekkmenn falla fyrir hrásúkkulaði  Betrumbætur í framleiðsluferlinu hafa gert hrásúkkulaðið heilsusamlegra og bragðbetra  Frakkar flykkjast á Salon de Chocolat, árlega súkkulaðisýningu, sem stendur yfir í París AFP Franska hlaupakonan Muriel Hurtis kynnti pils og brjósta- haldara úr súkkulaði. Kóngafólk Gestir á súkkulaðisýningunni í París mynda sköpunarverk súkkulaði- gerðarmanna. Hér hefur franska hirðin úr fortíðinni verið mótuð í súkkulaði. Le Kong Súkkulaðirisi trónir yfir gestum á súkkulaðisýningunni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.