Morgunblaðið - 06.11.2014, Síða 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skarkali Yrsa Roca Fannberg og Helga Rakel Rafnsdóttir hafa rekið framleiðslufyrirtækið Skarkala síðan 2009.
fyrir sjálfa sig. Ég held að ég hafi
verið frekar miskunnarlaus við
hana,“ segir Yrsa.
Heilluð af Salóme
Myndin sýnir einstaka listakonu
að störfum. Salóme hefur ofið und-
urfögur teppi, saumað í þau og notað
óhefðbundin efni í verkin, eins og
þang, víra, óunna ull og fleira. Hæfni
hennar er augljós og skín í gegn út
alla myndina. Því er framleiðandinn,
Helga Rakel Rafsdóttir, sammála en
hún ákvað að framleiða myndina eft-
ir lestur handritsins árið 2009. „Sam-
band mitt við móður mína er líka
mjög flókið,“ segir Helga Rakel þeg-
ar hún er spurð út í hvað hafi heillað
hana við verkið. „Þess vegna talaði
einmitt þetta efni til mín. Sjálf hef ég
ekki hugrekki til að gera svona mynd
en það er svo gaman að eiga þátt í að
Yrsa komi sinni mynd áfram,“ segir
hún. Mynd sem þessi segir í raun
sögu margra og er fyrir vikið þakk-
látt verkefni, ef svo má að orði kom-
ast. „Mæðgnasambönd eru alltaf svo
mikið tabú og mér finnst svo mik-
ilvægt að snerta á þessu,
ekki síst á Íslandi. Svona
innileg, persónuleg og
hugrökk heimildarmynd,
bæði að forminu og efninu
til, er svo mikilvæg fyrir
samfélagið og líka fyrir
kvikmyndagerð,“ segir
Helga Rakel. Formið er
sannarlega óhefðbundið
því Yrsa og móðir hennar
voru að mestu inni í íbúð
Salóme og Yrsa var með
eina tökuvél, þrífót og
hljóðnema. Það er form sem þrengir
nokkuð að kvikmyndadgerðarmann-
inum og viðmælandanum og er til-
tölulega sjaldgæft í kvikmyndagerð
hér á landi.
Sjálf hefur Salóme séð myndina
og er sátt. Sá tími sem varið var í
tökur vara á köflum erfiður fyrir
mæðgurnar en útkoman er ein-
staklega hjartnæm.
Myndin hefur nú þegar hlotið
þrenn verðlaun; Einarinn á Skjald-
borgarhátíðinni, Best Nordic Docu-
mentary á Nordisk Panorama og
Most Moving film á kvikmyndahátíð
í Póllandi. Nánari upplýsingar um
myndina er að finna á vef Skarkala,
www.skarkali.net/salome.html.
Myndin fer í almennar sýningar í Bíó
Paradís á morgun, föstudaginn 7.
nóvember.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
„Hér ægir ýmsu saman og enginn einn stíll er ráðandi.
Hver og einn skilur myndirnar á sinn hátt, tekur e.t.v. ást-
fóstri við einhverjar þeirra en finnur öðrum allt til for-
áttu,“ segir Ragnar Hólm sem opnar sýningu á nýjum olíu-
málverkum og vatnslitamyndum sínum í dag kl. 16.30 í
Bókasafni Háskólans á Akureyri.
Sýning Ragnars ber yfirskriftina „Sitt sýnist hverjum“
og segir listamaðurinn að titillinn vísi til þess að á sýning-
unni séu mjög ólíkar myndir, stór olíumálverk og minni
vatnslitamyndir inn á milli.
Ragnar Hólm er mikill áhugamaður um myndlist og
helgar henni mestallan frítíma sinn. Undanfarin misseri
hefur hann notið handleiðslu Guðmundar Ármanns Sigur-
Endilega...
Portrett Eitt af verkum Ragnars sem verður á sýningunni.
...kíkið á verk Ragnars
jónssonar myndlistarmanns í myndbyggingu, málun með
eggtemperu og meðferð vatns- og olíulita. Hann hefur áð-
ur haldið sjö einkasýningar á myndum sínum, sex á Akur-
eyri og eina í Reykjavík.
Sýningin er opin á opnunartíma bókasafnsins.
Á haustdögum árið 2009 varð framleiðslufyrirtækið Skarkali til. Það er
ekki hægt að segja að aðdragandinn hafi verið hefðbundinn.
Yrsa var í kvikmyndagerðarnámi á Spáni og hitti Helgu Rakel
Rafnsdóttur þegar hún kom heim til Íslands. Þá hafði Yrsa séð
myndina Kjötborg eftir þær Helgu Rakel og Huldu Rós. Hún
kom til Helgu Rakelar og sagði: „Þú gerðir heimildarmynd.
Getum við hist í kaffi?“ Yrsu var boðið í kaffi og eftir hálft ár
höfðu þær stofnað saman fyrirtækið Skarkala. Heimildar-
myndagerð er þar efst á baugi enda hafa þær Yrsa og Helga
Rakel báðar sérhæft sig í heimildarmyndagerð og því sem að
henni snýr. Þrjár myndir hafa verið gerðar á vegum Skarkala en
það eru Góði hirðirinn sem er í undibúningsvinnu, Salóme og
myndin Keep Frozen sem er í eftirvinnslu. Gert er ráð fyrir að
sýningar á Keep Frozen hefjist í apríl 2015.
Getum við hist í kaffi?
SKARKALI VERÐUR TIL
Ljósmynd/Yrsa Roca Fannberg
Formið Form myndarinnar er nokkuð óvenjulegt því nánast öll myndin ger-
ist inni í íbúð Salóme. Yrsa tók upp 120 klst. af myndefni á fjórum árum.
Tilvalið er að dilla sér og dansa á
Airwaveshátíðinni, en diskóhnettirnir
í Boogie Trouble spila dansvæna tón-
list. Hljómsveitina skipa þau Ingi-
björg Elsa Turchi, Klara Arnalds,
Kristinn Roach, Sigurður Tómas Guð-
mundsson, Sindri Freyr Steinsson og
Sunna Karen Einarsdóttir, en þau
koma fram fjórum sinnum á hátíð-
inni, fyrst í kvöld á Loft Hosteli kl.
19:15, á morgun föstudag á Bæjarins
Bestu kl. 18 og í Iðnó kl. 01:30. Síðast
á laugardag á Bar 11 kl. 18:30.
Endilega...
... dansið með Boogie Trouble
Boogie Trouble Íslensk hljómsveit.