Morgunblaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
fallið að leiða til hærra fasteigna-
verðs, segir Grétar Jónasson slík við-
skipti geta gagnast verktökum.
„Að baki slíku geta verið fullkom-
lega eðlileg sjónarmið. Aðkoma slíkra
milliliða getur grundvallast á því að
koma inn í verkefnið í upphafi, þá
hugsanlega með ódýrari eða greiðari
fjármögnun. Síðan eru líka dæmi um
að eignir séu keyptar af milliliðum á
einhverju stigi framkvæmda og þar
geta vitaskuld verið margháttaðar
aðstæður að baki sem byggingar-
aðilum finnst akkur í,“ segir Grétar.
Markaðurinn verji sig sjálfur
„Það að fasteignasalar hafi síðan
milligöngu um að selja þessar eignir
tryggir öryggi en dæmi hafa verið um
að byggingafyrirtæki séu sjálf að
selja eignir en við þær aðstæður er
hætt við að réttaröryggi sé skert.
Varðandi það hvort slíkir milliliðir
séu til þess fallnir að leiða til hærra
fasteignaverðs verður að telja að
markaðurinn verji sig sjálfur og stýri
því hvernig fasteignaverð þróast. Það
sem á hinn bóginn hefur verið að ger-
ast á mjög þröngu svæði er að fast-
eignaverð hefur hækkað ákaflega
mikið. Þar hafa verðhækkanir verið
leiddar af fjárfestum sem keypt hafa
eignir og komið í útleigu. Á slíkum
svæðum hafa orðið miklar hækkanir.
Þetta endurspeglar á hinn bóginn alls
ekki fasteignamarkaðinn í heild sinni,
þar sem markaðurinn stýrist af við-
skiptum venjulegs fólks sín á milli.“
– Hvenær hófust viðskipti af þessu
tagi á Íslandi?
„Slík viðskipti hafa verið lengi til.
Það virðist vera núna að þetta sé
nokkuð meira áberandi en áður og sé
að koma fram að nýju.“
Fasteignaheildsala snýr aftur
Morgunblaðið/Ómar
Stakkholt Félagið Stakkholt-miðbær keypti 48 íbúðir í stigaganginum sem merktur er Stakkholt 2a.
Reykjavík Fjárfestar sjá kaup-
tækifæri í nýjum íbúðum.
Fjársterkir aðilar kaupa tugi íbúða í einu lagi Slík viðskipti geta skilað hundraða milljóna hagnaði
Félag fasteignasala telur slík viðskipti geta tryggt verktökum ódýrari fjármögnun á byggingartíma
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri
Félags fasteignasala, segir kaup fjár-
sterkra aðila á fjölda íbúða orðin
meira áberandi en áður. Þau séu að
koma fram að nýju.
Eins og fjallað hefur verið um í
Morgunblaðinu á síðustu dögum hafa
fjárfestar keypt samtals 109 íbúðir í
fjórum nýjum fjölbýlishúsum sem
eru í byggingu. Þessi dæmi voru valin
af handahófi og gefa ekki tæmandi
mynd af slíkum viðskiptum.
Í fyrsta lagi keypti MýrInVest 31
íbúð á Mýrargötu 26. Kaupverðið var
tæplega 1.468,2 milljónir króna, eða
um 340 þúsund kr. á fermetra, og má
lauslega áætla að söluhagnaður geti
orðið rúmar 500 milljónir. Hjá Cre-
ditinfo eru tveir hluthafar skráðir í
félaginu, Riverside Capital ehf. og
Guðmundur Ingi Jónsson.
Í öðru lagi keypti félagið Stakk-
holt-miðbær 48 íbúðir í heilum stiga-
gangi í Stakkholti 2a. Sex íbúðir á sex
hæðum voru valdar af handahófi og
var meðalfermetraverðið tæplega
439 þús. krónur. Miðað við það fer-
metraverð er samanlagt söluverð
íbúðanna 48 alls um 1.638 milljónir.
Íbúðirnar eru 3.735 fermetrar. Stjórn
félagsins skipa Ingi Guðjónsson lyfja-
fræðingur og Jón Á. Ágústsson.
Gætu hagnast um 123 milljónir
Í þriðja lagi keypti félagið Túnfljót
30 íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum í
Austurkór 63-65. Kaupverðið var 970
milljónir króna fyrir 3.298,4 fer-
metra. Lauslega má áætla, út frá
uppgefnu fermetraverði á fasteigna-
vef, að söluhagnaður geti numið 123
milljónum. Í stjórn Túnfljóts sitja
hjónin Magnús P. Örnólfsson og
Anna Björg Petersen og er heimilis-
fang félagsins það sama og lögheimili
þeirra.
Spurður hvort það sé góð þróun
eða slæm, að milliliðir kaupi eignir af
verktökum og feli svo fasteignasölum
að selja þær, og hvort það sé til þess
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Félagið Eclipse fjárfest-
ingar slhf. keypti fyrir
skömmu fjórar íbúðir í
tveimur samliggjandi
parhúsum í Austurkór 27
og 29 í Kópavogi.
Íbúðirnar eru allar
114,3 fermetrar.
Samkvæmt hluta-
félagaskrá sitja Sölvi H.
Blöndal, Eiríkur Finnur
Greipsson og Lýður Þór
Þorgeirsson í stjórn fé-
lagsins. Heimilisfang félagsins er
Garðastræti 37, 101 Reykjavík, en
þar er fjárfestingafélagið Gamma til
húsa. Lýður Þór og Sölvi eru jafn-
framt sjóðsstjórar hjá Gamma.
Kaupa hundruð íbúða
Fram kom í Viðskiptamogganum
nýverið að Eclipse fjárfestingar slhf.
og Centrum fjárfestingar slhf. haldi
utan um íbúðarfjárfestingar
Gamma. Kom þar jafnframt fram að
sjóðirnir tveir hafa fjárfest í um 400
leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu
og að sjóðirnir eigi Leigufélag Ís-
lands hf., ásamt Upphafi fasteigna-
félagi slhf.
Meðal verkefna Upphafs er bygg-
ing 20 íbúða í Skipholti 11-13. Áætl-
uð verklok eru í október 2015.
Kaupa íbúðir fyrir sjö milljarða
Haft var eftir Sölva að saman-
lagðar íbúðarfjárfestingar Eclipse
og Centrum næmu um sjö millj-
örðum króna. Hann sagði félögin
hafa fjárfest í um 40 íbúðum í Breið-
holtinu, fyrir 700-800 milljónir
króna. Sölvi útilokaði ekki að sjóð-
irnir myndu kaupa fleiri íbúðir í
Breiðholti.
Kaupin í Austurkór 27 og 29
benda til að sjóðirnir sjái líka tæki-
færi í nýjum hverfum Kópavogs.
Systurfélag Gamma
kaupir í Kópavogi
Eclipse kaupir fjórar nýjar íbúðir
Morgunblaðið/Þórður
Austurkór 27-29 Eclipse fjárfestingar slhf.
keyptu fjórar íbúðir í þessum húsum.
Samkvæmt
heimildum
blaðsins er
það mat
margra fast-
eignasala að
umsvif á
markaði end-
urspegli ekki
umræðu um
þann bata
sem sagður er hafa orðið í efna-
hagslífi þjóðarinnar. Á það er
bent að stærri eignir í út-
hverfum seljist hægt og að
dæmigerðir kaupendur slíkra
eigna kaupi nú frekar sérhæðir,
eða stórar íbúðir í fjölbýlis-
húsum.
Spurður hvernig gangurinn er
á markaðnum segir Vilhjálmur
Einarsson, fasteignasali hjá
Eignaborg í Kópavogi, það vera
mat fasteignasala sem hann
hefur rætt við að hægt hafi á
markaðnum að undanförnu.
„Til mín komu fasteignasalar
frá stórri fasteignasölu sem
sögðust ekki skilja hvað það
hefði verið lítið að gera í haust.
Það er sameiginleg skoðun
okkar að það eigi þátt í þessum
samdrætti hversu hægt hefur
gengið að koma niðurstöðu
leiðréttingarinnar til skila.“
Hjá Þjóðskrá Íslands fengust
þær upplýsingar að tólf vikna
meðaltal í fjölda þinglýstra
kaupsamninga á höfuðborgar-
svæðinu hefði verið stöðugt í
kringum 120 samninga á viku
frá því í maí.
Á árinu 2014 hefði hlutur ein-
staklinga í viðskiptunum verið í
kringum 90%.
Beðið eftir
leiðréttingu
MARKAÐUR Í BIÐSTÖÐU?
Vilhjálmur
Einarsson