Morgunblaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 72
72 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014 Bridsdeild Breiðfirðinga Það var spilað á 10 borðum 26. okt. sem var eins kvölds tvímenn- ingur. Úrslit í N/S: Halldór Þorvalds. - Magnús Sverriss. 251 Oddur Hannesson - Árni Hannesson 247 Sigurjóna Björgvins. - Gunnar Guðm. 242 A/V Guðrún Jörgenssen - Þórður Ingólfs. 272 Ingibj. Guðmunds. - Kristín Andrews 238 Jón Jóhannsson – Birgir Kristjánss. 235 Næsta sunnudag byrjar fjögurra kvölda keppni. Spilað er á sunnudögum kl. 19. Súgfirðingaskálin Í byrjun gormánaðar var önnur lota um Súgfirðingaskálina, tví- menningsmóti Súgfirðingafélagsins spiluð. 14 pör mættu til leiks í byrjun sláturtíðar og skemmtu sér vel. Flemming Jessen og Kristján H. Björnsson tóku heljar skor, 66%, enda koma þeir langt að og fara yf- ir kerfið og þvingun í úrspili á leið- inni. Björn Guðbjörnsson og Sturla Eðvarðsson tóku góðan endasprett og enduðu í öðru sæti. Úrslit úr annarri lotu, meðalskor 156 stig. Flemming Jessen - Kristján Björnss. 206 Sturla G. Eðvarðs. - Björn Guðbjörns. 179 Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 177 Kristján Pálss. - Ólafur Karvel Pálss. 174 Friðgerður Friðgeirs. - Friðgerður Beneditksdóttir 170 Heildarstaðan. Sturla G. Eðvarðs. - Björn Guðbjörns. 356 Hafliði Baldurss. - Árni Guðbjörnss. 341 Flemming Jessen - Kristján H. Björnss. 341 Gróa Guðnad. - Alda S. Guðnadóttir 337 Friðgerður Friðgeirs - Kristín Guðbjd. 337 Kristján Pálsson - Ólafur Karvel Pálss. 335 Alls verða spilaðar sjö lotur um Súgfirðingaskálina og gilda sex bestu skorin til verðlauna. Næst verður spilað 24. nóvember í byrjun ýlis. Góðmennt í Gullsmára Spilað var á 10 borðum í Gull- smára mánudaginn 27. október. Úrslit í N/S: Samúel Guðmss. - Jón Hannesson 210 Ágúst Helgason - Haukur Harðars. 203 Guðlaugur Nielsen - Pétur Antonss. 198 A/V Ormarr Snæbjss. - Sturla Snæbjss. 230 Kristín G.Ísfeld - Óttar Guðmss. 202 Jón I. Ragnarss. - Sæmundur Árnas. 179 Spilað var á 11 borðum fimmtu- daginn 30. október.Úrslit í N/S: Guðm.Sigursteinss. - Unnar A.Guðmss. 226 Ágúst Helgason - Haukur Harðarson 193 Auðunn R.Guðmundss. - Björn Árnas. 186 Gunnar Sigurbjss. - Sigurður Gunnlss. 182 A/V Jón Ingi Ragnars. - Sæmundur Árnas. 198 Einar Kristinss. - Ragnar Ásmundss. 183 Gunnar Alexanderss. - Elís Helgas. 183 Ernst Backman - Hermann Guðmss.182 Deildakeppnin stendur sem hæst Lögfræðistofa Íslands gerði best í forkeppni deildakeppninnar. Þær 4 sveitir sem spila í útslátt- arkeppni helgina 22.-23. nóv. eru Lögfræðistofa Íslands, Málning hf., Garðs apótek og J.E. Skjanni ehf. en þá er jafnframt spilað í annarri deild. Björn Halldórsson í forystu Fyrsta kvöldið í Aðalsveitakeppni Bridsfélags Kópavogs var spilað sl. fimmtudag. Þrettán sveitir eru í mótinu og er sveit Björns Halldórs- sonar efst eftir fyrstu tvær umferð- irnar. Björn Halldórsson 34,50 SFG 28,33 Sigmundur Stefánsson 27,54 Vinir 24,01 Dökkir+1 21,04 Þórður Jörundsson 21,04 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Ógn virðist steðja að úr ýmsum áttum og helst vilja Íslendingar, rétt eins og aðrir, leiða hjá sér fréttir um hryðjuverk, viðbjóðs- legar aftökur og stríðs- átök sem óviðkomandi mál. Það er talið gott og gilt sem viðhorf, að við eigum skilið að vera óáreitt enda aldrei gert öðrum mein og lengi lifað saman í friðsemd og spekt. Löggæslunni nægi því kylfa en ekki skotvopn. En í alvörunni skal spurt, hvort Ísland sé öðrum fremur undanskilið eða tryggt fyrir ofbeldi glæpagengja eiturlyfja- heimsins ? Getur það sama ekki átt við um vitfirringsleg hryðjuverk, sem svo sorglega hafa brostið á vestan hafs og austan? Þarf þá ekki lög- reglan hér að hafa aðgang að skot- vopnum, eins og t.d. í Noregi, þótt þau séu ekki borin daglega? Ég leyfi mér að halda að svo sé í raun og að það sé lítt við hæfi að ala á tortryggni á eðlilegri löggæslu og búnaði henn- ar. Lítið er minnst á mikla byssueign Íslendinga, að hluta til ólöglega að sögn Væri annars ekki nær að spyrja af hverju Norðmenn, eins og allar aðrar Norðurlandaþjóðir, standa undir stórútgjöldum vegna nútímahers með nýjustu orrustuþotum, vopnaðri lögreglu og sérsveitum? Og er ekki tilhlýðilegt að Norðmenn, áhyggju- fullir út af þessari varn- arlausu frændþjóð sem þeir leggja til þátttöku í loftrýmisgæslu , fái þakkir fyrir það og þá hjálp að íslenska lög- reglan og strandgæslan fái þó eitthvað í hendur, sem óaldarseggir ótt- ast? Óskhyggja um sér- stöðu friðelskandi smá- þjóðar nægir ekki þegar í harðbakkann slær, það vita Íslend- ingar vel. Það hætturástand sem nú ríkir er annars eðlis en heimsstyrj- aldir en ekki síður ógn fyrir væru- kæra smáþjóð. Hervæðingu og spennuástand í okkar heimshluta töldum við vera úr sögunni eftir kalda stríðið. Svo er því miður ekki eftir innrásina í Úkraínu. Þá hefur Pútín Rússlandsforseti ekki viljað að það fari fram hjá neinum, að undanfarið hefur orðið meiriháttar hervæðing á rússneska landsvæðinu við Norðurskautið. Þær fréttir bárust 29. október, að þá hefði rússneski flugherinn hafið mikla árásaræfingu gagnvart NATO-strandríkjum við Norðursjó. Um var að ræða hópflug fjögurra Tu-95 langdrægra sprengju- flugvéla sem hannaðar eru til að bera stýriflaugar, en í fylgd voru fjórar I-78 birgðavélar með eldsneyti tekið á flugi. Flugvélaflotinn hafði ekki gef- ið upp flugáætlun, hafði lokað fyrir talstöðvar og slökkt á sjálfkrafa út- sendingu staðsetningar. Þessu fylgir árekstrarhætta við farþegaflugvélar. Rússnesku flugvélunum var mætt af norskum og portúgölskum F-16 or- ustuþotum og síðan breskum af Typhoon-gerð. Þá var samdægurs í fréttum að mikið hefði verið um yf- irflug af sex gerðum af rússneskum orustuþotum við Eystrasaltsríkin sem loftrýmisgæsla NATO sinnti. Hún er varanleg, þ.e. allan sólar- hringinn, allt árið og með þátttöku Svía og Finna utan NATO. Sú var tíðin í kalda stríðinu, að Ís- land var methafi í gríðarlegu yfirflugi sovéska flughersins. Rússar láta okk- ur afskiptalaus hvað sem verða kann. Þá mætti geta þess, að Kínverjar sem láta sér mjög dælt við okkur, stunda hernaðarlega útþenslu í Asíu. Þar hafa þeir átt í útistöðum við Japan, Filippseyjar og Víetnam út af yfirráð- um á hafsvæðum og þar með Banda- ríkin vegna varnarskuldbindinga. Síðustu fregnir herma að í Asíu séu Kínverjar komnir upp á kant við Ind- verja vegna hernaðarsamvinnu við Sri Lanka. Þar var Xi Jinping forseti í heimsókn og í Colombo fagnaði hon- um kínverskur kafbátur. Kannski er draumurinn að geta einhvern tíma efnt til slíks fagnaðar hér og helst í Finnafirði í sameign með Þing- eyingum? Vonandi má öllum vera ljóst að nú, meir en nokkru sinni áður, verða Ís- lendingar að treysta varnir og öryggi sitt innan NATO og í tvíhliða sam- starfi við Bandaríkin. Atlantshafs- bandalagið nýtur nú forystu Jens Stoltenbergs, sem er okkur að góðu kunnur. Í sínu fyrsta opinbera ávarpi minntist hann þess hvernig NATO hefði áður tryggt öryggi Noregs frá því að hann var barn að aldri. Hann segist í starfinu hafa þrjú áherslu- atriði: Í fyrsta lagi að NATO séu sterk samtök. Fjölmargt sé gert í þeim efnum. Í annan stað að vinna með samstarfsþjóðum og gæta lýð- ræðislegra réttinda og frelsis þeirra. Sérstaklega er vísað til Úkraníu. Í þriðja lagi minnir Stoltenberg á, að hann, fyrstur aðalframkvæmdastjóra NATO, á heimaland með landamæri við Rússlandi. Samskipti Noregs og Rússlands hafi þróast vel á mörgum sviðum. Aðeins það NATO, sem hefur styrkleika til að bera, getur átt já- kvæða og gagnlega samvinnu við Rússa. Hér verður ekki fjölyrt um framtíð samvinnunnar við Bandaríkin í ör- yggis- og varnarmálum, sem hljóta að vera í náinni athugun stjórnvalda. Þar mun sendiherrann í Washington gegna miklu og vandasömu hlutverki. Ógn og viðbrögð Eftir Einar Benediktsson » Vonandi má öllum vera ljóst að nú, meir en nokkru sinni áð- ur, verða Íslendingar að treysta varnir og öryggi sitt innan NATO og í tvíhliða samstarfi við Bandaríkin. Einar Benediktsson Höfundur er fv. sendiherra. Nú verða íbúar á landsbyggðinni að berjast gegn öllum tilraunum miðstýring- arafla mennta- kerfisins við að stöðva þá uppbyggingu og rekstur framhalds- skóla sem átt hefur sér stað undanfarna áratugi og leggja þar með af tækifæri til virkustu jöfnun búsetuskilyrða, sem fáanleg eru í okkar dreifbýla landi. Framhaldsskólanám þarf að vera til staðar út um allt land. Það er blóðtaka frá heimilum að sjá á eftir unglingunum til framhalds- náms í fjarlægu sveitarfélagi, ekki bara fjárhagslega heldur einnig félagslega. Þetta er ekki bara vandamál heimilanna heldur líka eitt stærsta félagslega vandamál sveitarfélaga, sem missa á þennan hátt í burt unga fólkið úr fé- lagsstarfi og íþróttum sem grund- valla vellíðan þeirra sem yngri og eldri eru í sveitarfélaginu, einmitt á þeim árstíma sem félagslíf sveit- arfélaga þarf mest á unga fólkinu að halda. Við skulu líta á það sem stað- reynd að lágt og þvingað mennt- unarstig fámennis þvingar fólk til að færa sig þangað sem mennt- unarskilyrði eru því við hæfi. Það er fyrst og fremst ástæða offjölg- unar fólks á höfuðborgarsvæðinu, en ekki atvinnugeta svæðisins. Ekki er hægt að fjölga atvinnu- möguleikum án fjölbreyttrar menntunar og menningar. Ef grunnþörfum er fullnægt á heimaslóð geta menn haldið að heiman með mal, ask og visku til að bragða á heilahunangi visku- brunna æðri menntunar, sem finnst í háskólakjöllurum um allan heim, en ekki bara á höfuðborgar- svæði Íslands, sem betur fer. Mín skoðun er sú að mennta- mála yfirvöldum hef- ur á margan hátt tek- ist að gera framhaldskóla- menntun, allt frá vit- leysisbreytingunni 1948 og síðar, allt of dýra fyrir íslenska þjóð ekki síst fyrir landsbyggðarfólk. Ekki bara dýrari heldur og einnig allt of dýrkeypta fyrir nemendur sjálfa. Þetta var gert með því að byggja upp miðlæga fram- haldsskóla með óteljandi val- greinum frá fyrsta áfanga, með þeim árangri að nemendur eru flestir að berjast við að ná tökum á frumgreinum allt sitt skólanám með blóði, svita og tárum. Undirritaður tók að sér fjögurra ára sjálfboðaliðastarf á Egils- stöðum við að reka iðnskóladeildir og kenna við þær og síðar í fram- haldi að kenna og stjórna viðbót- arnámi vélstjóra í Stykkishólmi og Ólafsvík. Í báðum tilvikum voru allir nemar í fullu starfi, svo um kvöld- og helgarnám var að ræða. Þetta voru rúmlega 80 iðn- aðarmenn og vélstjórar sem töldu sig ekki hafa, eða einfaldlega höfðu ekki efni á að fara til Reykjavíkur til að ljúka náms- skyldu sinni til að öðlast full at- vinnuréttindi í sínum greinum. Lesskilningur í stærðfræði og annarri eðlisfræði var líka, sam- hliða hinum fjárhagslega ótta, ástæða afneitunar á að sækja sér menntun á fjarlægum stöðum, fjarri sinni konu, börnum og heim- illi. Hann Jói múrari á Þránd- arstöðum hafði að baki einungis þriggja mánaða farandskólanám heima í Eyvindarárdal. Þótt kot væri, var ljóðum vel tekið, svo börnin lærðu að lesa svo ánægja varð af allri ljóðasmíð og brag- fræði. Jói var eins svo margir hræddur við algebruna í þessum okkar iðn-kvöldskóla á Egils- stöðum, hún er ekki neitt auðlesin. En lesskilningur og bragfræði Jóa gaf honum háa einkunn á loka- prófi, sérstaklega í stærðfræði, og hjálpaði honum að verða múr- arameistari. En Jói kenndi mér kennaranum, að ljóðaleikir og lest- ur ljóða efla lesskilning meir en nokkuð annað. Ég tel að grunnskólinn eigi að sinna kennslu frumgreina fyrstu þrjú ár framhaldsskólanáms og að framhaldskólamenntun hefjist í 9. bekk. Frumgreinar eru stærð- fræðin, eðlis- og efnafræði ásamt tungumálum, þjóðfélagsfræði og hagfræði. Ég treysti mjög vel vel- menntuðum grunnskólakennurum frá Kennaraskóla Íslands til að sjá um þessar greinar og enn vænkast á því sviði með aðgengi á upplýsingavefjum. Þannig má vona að unga fólkið geti snúið til baka og aukið fram- legð og framleiðni heima fyrir. Framhaldsskólar í grunnskóla Eftir Erling Garðar Jónasson » Jói var eins svo margir hræddur við algebruna í þessum iðn- kvöldskóla á Egils- stöðum, hún er ekki neitt auðlesin. Erling Garðar Jónasson Höfundur er formaður Samtaka aldraðra. Tónlist er eitt af undrum veraldar. Hún er svo einstök og ynd- isleg og svo sjálfsögð í lífi okkar. Hún er í stóru hlutverki á gleði- stundum okkar í lífinu og á sorgarstundum. Hún er án efa eitthvað sem við getum alls ekki verið án. En hvaðan kemur tónlist- in? Hún er sköpun tón- listarfólks. Og hvaðan kemur tónlist- arfólkið? Það kemur langflest úr tónlistarskólum landsins. Í þeim er unnið metnaðarfullt starf sem hefur mikið gildi fyrir menningu okkar og samfélag. Við njótum þess dag hvern að hlusta á tónlist og hún er hluti af okkar daglega lífi á svo margan hátt. Ég er viss um að eng- inn vill svo mikið sem ímynda sér líf- ið án tónlistar. Hversu svarthvítt og óspennandi væri lífið ef engin væri tónlistin og ekkert tónlistarfólk til að skapa fyrir okkur hina töfrandi tóna hvenær sem okkur hugnaðist! Tónlistarkennarar eru í verkfalli. Þeir krefjast þess að fá sambærileg laun og aðrir kennarar. Það er lítið að gerast og deilan er enn í hnút. Yfirvöld sýna hvorki nægilegan áhuga né skilning. Það er ekki nóg að sýna áhuga og dásama tón- list og gildi hennar við hátíðartilefni. Sveit- arfélögin verða að sýna að þau virkilega kunni að meta hana með því að borga tónlistarkenn- urum mannsæmandi laun! Styðjum tónlistarkennara í baráttu þeirra fyrir betri launum. Okkur á ekki að vera sama! Ímyndaðu þér lífið án tónlistar Eftir Írisi Dröfn Halldórsdóttur Íris Dröfn Halldórsdóttir » Við njótum þess dag hvern að hlusta á tónlist og hún er hluti af okkar daglega lífi á svo margan hátt. Höfundur er grunnskólakennari, móðir tónlistarnemanda og tónlistarunnandi. Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.