Morgunblaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is
Síðan 1986
3 ára ábyrgð
In Win Office Pro
• Örgjörvi: Intel i3-4130 3,4 GHz
• Vinnsluminni: 8 GB DDR3 (styður 16GB)
• Skjákjarni: Intel HD, VGA, DVI, HDMI
• Harður diskur: 120 GB SSD
• Stýrikerfi: Windows 8.1
• Net: Kapaltengt og þráðlaust
Verð 94.900 kr.
Fyrir þá sem vilja
fullkomna og
örugga tölvu sem
endist og endist
Tölvur og fylgihlutir
In Win Gamer
• Örgjörvi: Intel i3-4130 3,4 GHz
• Vinnsluminni: 4 GB DDR3 (Styður 16GB)
• Skjákort: nVidia GeForce GTX750
• Harður diskur: 120 GB SSD
• Stýrikerfi: Windows 8.1
• Netkort: Kapaltengt og þráðlaust
Verð 109.900 kr.
Vönduð
leikjatölva sem
leynir á sér með
öllu því nýjasta
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Málshátturinn „Eins dauði er ann-
ars brauð“ á svo sannarlega við í
Kolgrafafirði þessi misserin. Eftir
mikinn síldardauða í firðinum vet-
urinn 2012-13 hefur rotnandi síldin
legið eins og teppi á botninum. Í súr-
efnisskortinum undir farginu hefur
tegundum í og á botnsetinu snar-
fækkað, en einstaklingum mengun-
arsækinna tegunda hins vegar fjölg-
að.
Burstaormurinn Capitella capi-
tata hefur blómgast sem aldrei fyrr
og í rannsóknum vísindamanna hef-
ur komið í ljós að 88% allra dýra,
stærri en 0,5 millimetrar, í botnset-
inu tilheyrðu þessari tegund orma
sumarið 2013. Samlokur, skrápdýr
og krabbadýr hafa hins vegar drep-
ist að mestu og finnast ekki á síldar-
menguðu svæðunum. Fiskar og
hreyfanlegri dýr hafa hins vegar
forðað sér í efri lög sjávar.
Flýta framvindunni
„Þessi hefðbundnu botndýr sem
yfirleitt finnast í íslenskum fjörðum
eru dauð eða flúin,“ segir Valtýr Sig-
urðsson, líffræðingur, en rannsókn á
botni fjarðarins er hluti af meistara-
verkefni hans við Háskóla Íslands.
„Sumar burstaormategundir þrífast
hins vegar við þessar aðstæður og
þá sérstaklega Capitella capitata
sem dafnar vel í fjarveru keppinauta
sinna sem hafa jafnan yfirhöndina
þegar aðstæður eru eðlilegar.
Ormarnir flýta framvindunni og
gera öðrum botndýrategundum
kleift að koma til baka með tíð og
tíma. Nú er botndýralífið fábreytt og
mengunarþolnar tegundir í miklum
meirihluta. Þar eru svokallaðir Capi-
tella-ormar alls ráðandi í botnsetinu
um mestallan fjörðinn.“
Margir komu að nægtaborði
Meðan síldin var nýdauð og fersk
kom hún mörgum dýrategundum til
góða. Mikið dýralíf var við fjörðinn,
og margir fengu sér af nægta-
borðinu, nefna má margar tegundir
fugla, seli og minni hvali. Núna eru
það aðallega örverur í botnseti sem
nýta það sem er eftir af síldinni.
Sýni hafa verið tekin úr botni
fjarðarins á sjö sýnatökustöðvum
tvö síðustu sumur og borin saman
við sýni frá 1999. Unnið hefur verið
úr sýnum frá 2013 við tegundagrein-
ingar og mælingar á lífrænum leif-
um í setinu. Líkur eru á að þróunin
sé byrjuð að ganga til baka en fjár-
magn skortir til að ljúka seinlegri
greiningarvinnu á sýnum frá síðasta
sumri. Að rannsókninni komu Nátt-
úrustofa Vesturlands, Rannsókna-
setur Háskóla Íslands á Snæfells-
nesi og Líf- og umhverfisvísinda-
deild HÍ. Vegagerðin veitti styrk til
rannsóknarinnar og er Valtýr von-
góður um að auknir fjármunir verði
veittir í að klára þetta verkefni.
Heimsmet og einstakt tækifæri
Hann segir grunnrannsóknir í vís-
indum ekki hátt skrifaðar á Íslandi
og mikið vanti upp á þekkingu á um-
hverfisþáttum á grunnsævi:
„Í grúski mínu hef ég hvergi fund-
ið frásagnir af viðlíka fiskdauða og
varð í Kolgrafafirði. Stundum er
sagt frá dauða þar sem magnið er
talið í stykkjum, en hvergi nokkurs
staðar hef ég rekist á frásögn af
dauða á 50 þúsund tonnum. Þetta er
heimsmet og það sem gerir þennan
atburð enn merkilegri er að við eig-
um rannsókn úr firðinum frá 1999.
Á Íslandi hefur botndýralíf ekki
verið rannsakað í mörgum fjörðum
en einmitt Kolgrafafjörður var rann-
sakaður árið 1999 vegna fyrirhug-
aðrar brúargerðar. Eftir síldardauð-
ann hafa ýmiss konar mælitæki
verið sett upp í Kolgrafafirði til að
mæla umhverfisþætti eins og
súrefnismettun sjávar, strauma, hita
og seltu. Veðurmælingastöðvum hef-
ur einnig verið fjölgað til að geta sett
hegðun síldarinnar í samhengi við
þessa þætti.
Það ætti að nýta þetta tækifæri og
gera sem flestar rannsóknir sam-
hliða mælingunum til þess að auka
þekkingu okkar á strandsvæðum
landsins. Ég viðurkenni að bursta-
ormafræði og botndýralíf eru algjört
jaðarsport svona almennt en samt
eru þessir atburðir svo merkilegir að
við verðum að geta sinnt þessu frá
öllum hliðum. Þangað til fjármagn
fæst eru sýni frá síðasta sumri hins
vegar varðveitt í formalíni,“ segir
Valtýr.
Burstaormar braggast á botninum
Tegundum undir síldarteppinu í botnseti Kolgrafafjarðar hefur fækkað mikið Mengunarþolnar
tegundir taka völdin og Capitella capitata lifir góðu lífi Samlokur, skráp- og krabbadýr hafa drepist
Ljósmynd/Símon Sturluson
Sýnatökur síðasta sumar Frá vinstri Jón Einar Jónsson, Róbert Arnar
Stefánsson, Árni Ásgeirsson, Jörundur Svavarsson og Valtýr Sigurðsson.
Ljósmynd/Valtýr Sigurðsson
Líf og fjör Ormahrúga sem kom upp með einni skóflu við sýnatöku. Ormur
sem nefnist Capitella capitata var áberandi, en hann þolir aðstæðurnar vel.
Morgunblaðið/RAX
Febrúar 2013 Dauð síld í fjöru í Kolgrafafirði og síldarteppi var á botninum.
Engar fréttir hafa borist af síld í
Breiðafirði í haust eins og verið
hefur frá haustinu 2007. Þá fór ís-
lenska sumargotssíldin að veiðast í
Grundarfirði og síðan hafa nöfn
eins og Kolgrafafjörður, Kiðeyjar-
sund og Hofsstaðavogur í grennd
við Stykkishólm orðið áhugamönn-
um um síldveiðar töm í munni.
Stóru síldveiðiskipin hafa eink-
um verið við veiðar í Kolluál út af
Snæfellsnesi, en í gær voru nokkur
skip að veiðum út af norðanverðum
Faxaflóa. Minni bátum er heimilt að
veiða 750 tonn af síld í reknet gegn
16 króna greiðslu á kíló. Margir
hugsuðu gott til glóðarinnar eins
og þrjú síðustu ár, en ekkert hefur
enn frést af veiðum í reknet.
Óttast umhverfisslys
Óttast er að umhverfisslys eins
og varð veturinn 2012-13 geti end-
urtekið sig, en síðasta vetur er talið
að um 80 þúsund tonn af síld hafi
haft vetursetu í Kolgrafafirði. Til
að fylgjast með súrefnisstöðu í firð-
inum og fleiri umhverfisþáttum var
nettengdum mælum komið fyrir
þar í fyrrahaust.
Þær aðstæður sköpuðust ekki í
fyrravetur sem leiddu til síldar-
dauða, en tvívegis féll súrefnis-
magn svo langt niður að skoðaður
var möguleiki á að reyna að reka
síldina út úr firðinum. Í bæði skipt-
in batnaði súrefnisstaðan með
auknum vindi áður en gripið var til
slíkra aðgerða. Í nóvember 2013
var gerð tilraun til þess að reka
síldina út með því að nota hvell-
hettur til að styggja hana.
Leiðangrar til að meta stærð ís-
lenska síldarstofnsins við landið
hefjast í næstu viku og verður þá
m.a. farið í Breiðafjörðinn. Í fyrra-
vetur hafði stór hluti stofnsins vet-
ursetu í Kolluál og hugsanlega
verður svo áfram í vetur. Það er
þekkt frá árunum 2004-6, en fyrr
var hún að stærstum hluta í fjörð-
um austanlands. Það er gömul saga
og ný að ekki er á vísan að róa þeg-
ar síldin á í hlut.
Morgunblaðið/Alfons
Veturseta Smábátar veiddu vel af
síld í Kolgrafafirði í fyrrahaust.
Síldin hefur enn ekki
sést í Breiðafirðinum
Hvellhettur til að styggja síldina