Morgunblaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 96
96 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert fullur metnaðar í dag og á
morgun. Ef þú færð einhvern í heimsókn
getur það hjálpað þér við að sættast við
heimili þitt. Gerðu þér glaðan dag með
góðum vinum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þegar maður spyr margra spurninga
getur alltaf farið svo að sum svörin falli
manni ekki í geð. Sá sem hefur verið hvað
mest uppáþrengjandi er að reyna að segja
þér eitthvað.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hvort sem þú ætlar þér það eða
ekki muntu vekja athygli annarra í dag. Ein-
hver nákominn er líklega mikilvægasti tengi-
liður sem þú munt nokkru sinni eignast.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það mun reyna verulega á hæfni
þína á næstunni og þú mátt búa þig undir
að sum verka þinna verði fyrir óvæginni
gagnrýni. Láttu helgi dagsins sitja í fyr-
irrúmi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Tunglið (tilfinningar) er í þínu merki í
dag og það á svo sannarlega vel við þig.
Reyndu að ná trúnaði einhvers svo þú getir
bætt úr þessu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það getur verið erfitt að gefa öðrum
góð ráð. Gakktu úr skugga um hvern mann
þeir hafa að geyma áður en þú ákveður að
bæta þeim í vinahópinn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að komast eitthvert afsíðis og
velta hlutunum fyrir þér. Ef vinur þinn ögrar
þér í dag átt þú erfitt með að sitja á þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki verða hissa eða móðgaður
ef jafnvel bestu vinir setja út á persónulegar
framfarir þínar. Hvort ert það þú sem átt
eigur þínar eða þær sem eiga þig?
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú notar tíma þinn einstaklega
vel. Bíllinn bilar, þú missir af strætó eða
eitthvað í þeim dúr.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er ekki við aðra að sakast
þótt þú sért undir miklu vinnuálagi. Leystu
eigin vandamál fyrst. Reyndar líður þér eins
og fjörugum krakka þessa dagana.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert í góðu skapi og hefur já-
kvæð áhrif á umhverfi þitt. Hvíldu þig oft í
dag og þannig öðlastu víðara sjónarhorn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert foreldri, leiðtogi og velgjörðar-
maður alls konar fólks án þess að vita af
því. Gættu þess bara að hafa báða fætur á
jörðinni þegar þú metur eigin frammistöðu.
Á þriðjudaginn skrifaði PéturStefánsson í Leirinn:
Fréttir ég færi af Tóta,
fíflinu digra og ljóta.
Hann klípur í spikið
og klórar sér mikið,
mest þó á milli fóta.
Ekki stóð á svari frá Fíu á Sandi:
Mér leiðist hann ljóti Tóti,
hann leigir hérna á móti
og glennir sig ber
útí glugga hjá sér.
Ég vil helst að hann hafni í grjóti.
Á þriðjudag sagði Davíð Hjálmar
Haraldsson fréttir af tíðindum dagins:
Læknaverkfall, Landspítali myglar,
löggan kaupir morð- og vígtól æst,
Geir Jón njósnar, Gæslan vopnum smyglar.
Guð minn almáttugur! Hvað er næst?
Sigrún Haraldsson hafði orð á því
að gæfan væri ekki alltaf gallalaus:
Gerð var með gölluðu sniði
gæfan hjá spítalans liði,
sem betlaði örlitla aura,
uppskar svo farao-maura.
Málið horfir þannig við Jóni Arn-
ljótssyni:
Ýmsar stoðir eru sjúkar,
á þeim lækning reyna má.
Meðan stjórna maurapúkar
mun þó ekkert slíkt að sjá.
Ármann Þorgrímsson hafði orð
á því á Boðnarmiði að loksins
gæti hann verið sammála fram-
sóknarmönnum eftir að hafa
hlustað á viðtöl við þá. Innihaldið
var þetta;
Við gerum það sem okkur sýn-
ist því þið kjósið okkur alltaf aft-
ur hvað sem líður skoðanakönn-
unum og mótmælum:
Afleiðingar ykkar gerða
ættuð kannski að líta nær,
aftur tekin ekki verða
atkvæði sem féllu í gær.
Þessir Orðaleikir eru eftir
Tryggva Líndal:
Brennisóley bráðum verður
sólskinsbrúna stúlkan mín;
hrífuknáa hnátan, Gerður;
heykist þegar dagur dvín.
Sætukoppum suðar hjá
silalega hunangsflugan;
sykur þeirra sýgur þá,
svo að fái ber er duga.
Og svo er það staka eftir Pál
Ólafsson:
Dagana drep ég svo flesta
að drekk ég mitt brennivín,
hugsa um vísur og hesta
og hugsa á milli til þín.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fréttir af Tóta, maurum
og framsóknarmönnum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG VEIT AÐ ÞETTA ER FYRSTA SKIPTIÐ ÞITT
Í 38 ÁR, EN HVAÐ MYNDI GERAST EF ALLIR
VÆRU TÍU MÍNÚTUM OF SEINIR Í VINNUNA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... ljúf tónlist í eyrum
þínum.
ÉG ER Í
STUÐI FYRIR
RÓMANTÍK
ÉG ER Í
STUÐI FYRIR
PÖNNUKÖKUR!
RÓMANTÍSKAR
PÖNNUKÖKUR!
VEL
BJARGAÐ,
RÓMEÓ
ÉG VÆRI TIL
Í AÐ KAUPA
GRJÓT Í
VALSLÖNGVUNA
MÍNA
JÁ, HERRA...
EN ÉG VERÐ
AÐ VARA ÞIG
VIÐ...
...KAUPANDI VERÐUR SJÁLFUR
AÐ FLYTJA VÖRUNA HEIM
Það er fátt jafn ógnvekjandi í lífihins miðaldra kontórista og að
vera að keyra í vinnuna um morgun
og sjá í miðri Ártúnsbrekkunni að
nálin í bensínmælinum er farin að
slást upp við stóra „E“-ið. Víkverji
komst þó klakklaust á bensínstöð og
gat bætt úr bensínskortinum áður
en bíllinn missti allt vélarafl. Sá Vík-
verji fyrir sér að hann hefði alveg
eins getað orðið bensínlaus vegna at-
hugunarleysis síns.
x x x
Víkverji lítur raunar á sig sem einnaf seinheppnari mönnum lands-
ins þegar kemur að bensíni og bílum.
Hann er nefnilega á skrá hjá Atl-
antsolíu, og fær þaðan reglulega
fréttir um tilboð og ódýrara bensín.
Það bregst hins vegar aldrei að þeg-
ar Víkverji fær textaskilaboðin um
að nú kosti bensínsopinn tíu eða
fimmtán krónum minna, að þá sé
hann nýbúinn að fylla á bílinn fullu
verði. Hefur hann Atlantsolíu
grunaða um að hafa komið fyrir
skynjara í bensíntanknum, sem segi
þeim hvenær óhætt sé að senda Vík-
verja tilboð, sem aldrei verði nýtt!
x x x
Það er annars ágætt að hafa alltviðhald bílsins í huga þessa dag-
ana. Ný reglugerð um dýpt á dekkja-
mynstrinu mun eflaust neyða ýmsa
til þess að skipta um dekk. Vonandi
verður breytingin þó til góðs, því að
öllu skiptir í mesta skammdeginu að
dekkin séu í lagi, sérstaklega þegar
hálkutíðin byrjar. Víkverji mun vera
á frekar nýlegum heilsársdekkjum,
en hyggst láta athuga dýptina sem
fyrst. Víkverji vildi síður vera grip-
inn á veginum með einungis 2,9 milli-
metra í dýptinni.
x x x
Þú kemst aldrei heilan Víkverja ánþess að tala um fótbolta!“ sagði
einn vinnufélaginn við hann um dag-
inn. Það var rétt hjá honum. Víkverji
skilur nefnilega ekki nýlega umræðu
um liðsval Brendan Rogers, knatt-
spyrnustjóra Liverpool, í leiknum
gegn Real Madrid í vikunni, þar sem
sjö „lykilmenn“ voru hvíldir. Stað-
reyndin er sú að sjömenningarnir
hafa hreint ekki staðið sig sem
skyldi í vetur. Skiljanlega vildi
Rogers vinna leikinn!
víkverji@mbl.is
Víkverji
Fel Drottni verk þín og þá bera áform
þín árangur. (Orðskviðirnir 16:3)
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
FYRIR HANN OG HANA