Morgunblaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 48
48 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það verður að bregðast við. Vand-
inn er orðinn sambærilegur og var
þegar ráðist var í lagningu byggða-
línunnar á sínum tíma. Það mynd-
ast eyjar í raforkukerfinu vegna
þess að byggðalínan er ekki nógu
öflug til að anna álaginu,“ segir
Þórður Guðmundsson, forstjóri
Landsnets. Liðin eru 30 ár frá því
landið var hringtengt með síðasta
áfanga byggðalínunnar svonefndu.
Stjórnvöld ákváðu á árinu 1974
að leggja háspennulínu á milli
Norður- og Suðurlands og var haf-
ist handa við framkvæmdir árið
eftir. Þórður rifjar upp að aðdrag-
andann megi rekja til olíu-
kreppunnar. Olíukostnaður við
upphitun húsa og raforkufram-
leiðslu var orðinn stór þáttur í
þjóðarbúskapnum. Til þess að nýta
innlenda orku þurfti að samtengja
íslenska raforkukerfið. Fram að
þeim tíma var öflugt flutningskerfi
frá virkjunum á Suðurlandi og um
Suður- og Suðvesturland. Þórður
segir að þrjár aðrar raffræðilegar
eyjar hafi verið í kerfinu, Norður-
land, Austurland og Vestfirðir.
Þær hafi haft vatnaflsvirkjanir,
eins og Laxárvirkjun fyrir norðan,
en orðið að keyra dísilvélar til að
fylla upp í skörðin. „Til að nýta
orkuna þurfti að tengja Búrfells-
virkjun og fyrirhugaðar virkjanir á
Þjórsársvæðinu við hin kerfin. Það
var gert með línum sem fengu
samheitið byggðalínan,“ segir
Þórður.
Lína með þjóðveginum
Byggðalínan fékk nafn sitt af því
að hún fór í meginatriðum með
byggðum norður í land. Endar
byggðalínunnar náðu saman 10.
nóvember 1984 þegar línan frá
Austurlandi var tengd við Sigöldu.
Tveimur árum áður tók Lands-
virkjun við byggðalínunni af Raf-
magnsveitum ríkisins sem fram að
því stóðu fyrir uppbyggingunni.
Síðar tók Landsnet við flutnings-
kerfinu, við stofnun fyrirtækisins í
byrjun árs 2005.
Sambandið rofnar oft
„Byggðalínan hefur staðið sig
ágætlega. Það hefur þurft að end-
urbæta ýmislegt á þessum tíma.
Nú erum við að fjárfesta töluvert á
Vestfjörðum, í varaafli og end-
urbótum á kerfinu þar, vegna þess
að aðeins ein lína er þangað og yfir
erfiðar heiðar að fara,“ segir Þórð-
ur.
Hann tekur þó fram að byggða-
línukerfið sé nú komið að fótum
fram í því samhengi að orkuþörfin
hafi aukist það mikið að það anni
ekki álaginu. Nú sé þörf fyrir sam-
bærilegt átak í styrkingu flutn-
ingskerfisins og gert var þegar
ráðist var í byggðalínuna á sínum
tíma.
Landsnet hefur verið með áætl-
anir um að styrkja byggðalínuna
frá Blönduvirkjun til Akureyrar og
þaðan austur í Fljótsdal. Mest
mæðir á þeim kafla. Þórður nefnir
að á síðasta ári hafi samband á
milli kerfanna fyrir norðan og
sunnan rofnað 23 sinnum og miðað
við reynsluna það sem af er þessu
ári megi búast við að það verði enn
oftar í ár.
Vatnsrennsli er mismunandi á
milli ára og landshluta. Virkj-
anafyrirtækin, ekki síst Lands-
virkjun, geta ekki nýtt orku-
vinnslugetu virkjana sinna með því
að nýta vatnsforðann til fulls, af
því að þær geta ekki flutt rafmagn-
ið á milli landshluta. Þórður nefnir
einnig að fiskimjölsverksmiðjur á
Austur- og Norðausturlandi hafi
fjárfest fyrir milljarða til að nýta
rafmagn í stað olíu. Það sé sam-
bærileg breyting og varð í hús-
hitun þegar byggðalínan var lögð
og menn gátu skipt olíunni út fyrir
rafmagn. Nú þurfi verksmiðjurnar
að reka olíukerfi samhliða raf-
orkukerfum því ekki sé hægt að
flytja til þeirra það rafmagn sem
þær þurfa.
Bregðast þarf við vanda
Þegar byggðalínan var und-
irbúin var því hafnað að tengja
kerfin saman með línu yfir hálend-
ið vegna slæms veðurfars. Nú er
Landsnet á fullu í undirbúningi há-
spennulínu um Sprengisand. Þórð-
ur segir að miklum upplýsingum
hafi verið safnað undanfarna ára-
tugi og telur hann engar tækni-
legar hindranir í vegi þess að
leggja línu þar yfir. Meiri spurning
sé um umhverfismálin. Hins vegar
verði reynt að staðsetja línuna
þannig í landslaginu og hanna
möstur með það í huga að línan
verði ekki eins áberandi og ella. Til
greina kemur að leggja jarðsteng
sem hluta af línunni og mun
ákvörðun um það ráðast af stefnu-
mörkun stjórnvalda í jarðstrengs-
málum sem Þórður vonast til að
verði afgreidd á næstu vikum.
„Það er von okkar að sem víðtæk-
ust sátt náist um þessa fram-
kvæmd,“ segir Þórður en gerir sér
grein fyrir því að það geti orðið
erfitt að ná fullri sátt. Ekki gangi
annað en að bregðast við þeim
vanda sem uppi er.
Fljótvirkasta lausnin
Landsnet fór af stað með und-
irbúning að Blöndulínu 3 fyrir
fimm árum en hún á að styrkja
byggðalínuna á milli Blönduvirkj-
unar og Akureyrar. Mikil andstaða
er við framkvæmdina, sérstaklega
í sveitum Skagafjarðar og Eyja-
fjarðar, og hefur málið strandað.
Aðspurður segir Þórður að
Sprengisandslína muni létta mjög
á byggðalínunni en hún dugi ekki
ein og sér þar sem þörf er fyrir
frekari styrkingar. „Sprengisand-
slínan er fljótvirkasta lausnin til að
ráða bót á þeim bráðavanda sem
við stöndum frammi fyrir.“ Áfram
þurfi að vinna að styrkingu
byggðalínunnar með lagningu 220
kílóvolta línu við hlið þeirrar
gömlu. Hins vegar sé ör þróun í
hönnun lína og jarðstrengja og
hugsanlegt að hægt verði að leggja
130 kílóvolta línu í jarðstreng á
ákveðnum svæðum þegar end-
urnýja þarf eldri hluta byggðalín-
unnar og þá sem mótvægisaðgerð
vegna annarra línubygginga. Það
dragi úr umfanginu.
Þarf að líta fram í tímann
„Við getum ekki aðeins litið til
þess sem við getum komist af með
núna. Miðað við óbreytta fram-
leiðslu og raforkunotkun, gæti
minni framkvæmd dugað. Við
verðum hins vegar við okkar fjár-
festingar að líta 30-40 ár fram í
tímann og taka mið af líklegri þró-
un,“ segir Þórður og bendir á sem
dæmi að í samþykktri rammaáætl-
un um vernd og nýtingu orku-
svæða sé gert ráð fyrir virkjun 600
MW afls á Norðurlandi. Ef þar eigi
að virkja umfram aukningu í raf-
orkunotkun svæðisins þurfi að hafa
samhangandi raforkukerfi enda sé
markaðurinn einn og sá sami. Svo
verði að vera svigrúm ef bilanir
verða og náttúruhamfarir geti sett
strik í reikninginn. Kerfið eigi í
erfiðleikum nú þegar, þótt allt sé í
lagi.
Byggðalínan komin að fótum fram
Þrjátíu ár eru liðin frá því að byggðalínan náði hringinn Forstjóri Landsnets segir að vandinn í
raforkukerfinu sé orðinn sambærilegur við það sem var áður en byggðalínan komst í gagnið
Raforkukerfið
Heimild: landsnet.is
Háspennulínur
220 kV
132 kV
66 kV
33 kV
„Það eina sem mig vantar er tími til að sinna öllum áhugamálunum,“
segir Þórður Guðmundsson sem lætur af starfi forstjóra Landsnets
um áramót, 65 ára að aldri. Hann hefur stýrt fyrirtækinu frá stofn-
un, 1. janúar 2005, og var áður framkvæmdastjóri flutningasviðs
Landsvirkjunar.
„Ég hóf störf hjá Landsvirkjun 1975 þegar ég var enn í verk-
fræðinámi og var í fullu starfi frá 1978. Þetta hefur verið skemmti-
legur tími og alltaf gaman að mæta til vinnu. En álagið er mikið og
hefur verið lengi og eftir öll þessi ár langar mig að gera eitthvað
annað. Það er líf utan Landsnets,“ segir Þórður.
Efst á dagskrá hjá honum er að læra fjögur ný tungumál. Hann er
byrjaður í spænskunámi og ætlar síðan að taka til við frönsku,
ítölsku og rússnesku. „Það stafar fyrst og fremst af löngun til að
geta tjáð mig á ferðalögum erlendis, á tungumáli íbúa landanna.
Rússneskuna ætla ég að læra til að geta lesið bókmenntirnar, ég hef
ekki hug á að fara mikið þangað eins og staðan er nú,“ segir Þórður.
Hann nefnir einnig að hann langi til að læra sagnfræði og sinna ætt-
fræðirannsóknum og svo eigi hann eftir að ljúka smíði sumarbú-
staðar. „Ég vonast einnig til að geta sinnt verkfræðistörfum í nokkur
ár.“
Efst á dagskránni að bæta
við sig fjórum tungumálum
HÆTTIR UM ÁRAMÓT
Forstjóri Þórður Guðmundsson segir að grípa þurfi til aðgerða til að tengja
raforkukerfi landsins betur saman. Sprengisandslína er til þess gerð.
Morgunblaðið/Þórður
ALLT
á einum stað!
Lágmarks biðtími www.bilaattan.is
Dekkjaverkstæði
Varahlutir
Bílaverkstæði
Smurstöð