Morgunblaðið - 06.11.2014, Qupperneq 92

Morgunblaðið - 06.11.2014, Qupperneq 92
92 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014 Smáauglýsingar Útskorinn antikstóll Antikskápur frá um 1880 Postulínsstell í úrvali Antik húsgögn í úrvali. Postulíns matar- og kaffistell. Silfurborðbúnaður, postulíns- styttur, kristall og gjafavara. Opið frá kl. 10 til 18 virka daga. Þórunnartúni 6, sími 553 0755 – antiksalan.is Hljóðfæri Klassískur gítar kr. 19.900. Full stærð, poki, auka- strengir og stillitæki. Gítarinn ehf., Stórhöfða 27, s. 552 2125. www.gitarinn.is, gitarinn@gitarinn.is Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Tómstundir Fellanleg bridgeborð nú fáanleg. Einstaklega fallegt borð sem er auðvelt að leggja saman. www.pingpong.is Suðurlandsbraut 10 (2. h.), 108 Reykjavík. Sími 568 3920. Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þjónusta Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Blómaskór. Margir litir. Eitt par 1.400 kr., tvö pör 2.500 kr. Póstsendum. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. TILBOÐ - TILBOÐ - TILBOÐ Góðir og vandaðir dömuskór úr leðri og skinnfóðraðir á tilboðsverði. Stakar stærðir. Tilboðsverð: 5.500 Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Hringtreflar Mikið úrval. Kr.3500 Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. Bílar SUBARU 2008 Eyðslugrannur Til sölu Subaru Justy árg. 2008. Ekinn aðeins 108 þ. km. Beinskiptur, nýtt í bremsum, diskar og klossar, álfelgur, er á mjög góðum heilsárs- dekkjum, rafmagn í rúðum og speglum, aux tengi. Fallegur bíll sem gott er að keyra. Verð 1.050 þ. Uppl. í s. 699 3181 og palli100@gmail.com Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Hjólbarðar Matador heilsársdekk Framleidd af Continental Matador Rubber Slóvakíu Frabær dekk á góðu verði Kaldasel ehf., Dalvegi 16b, 201 Kópavogur, s. 544-4333 (kaldasel@islandia.is), dekkjaverkstæði. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur, hreinsa ryð af þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Ódýr blekhylki og tónerar Verslun í Hagkaup, Smáralind og Fjarðargötu 11, Hafnarfirði Blekhylki.is, sími 815 0150 Antík Árið er 1973, nán- ar tiltekið 23. jan- úar. Örlaganótt, hildarleikur heillar byggðar, áfall, sundraðar fjölskyldur, hætta á einangrun í ókunnu umhverfi. Þetta er myndin sem okkar fimm manna fjölskylda stóð frammi fyrir ásamt fjölda ann- arra þessa fyrstu daga eftir að gosið hófst í Eyjum. Þurftum að yfirgefa heimilið án þess að hafa eitt eða neitt með í farteskinu. Á slíkum tímum koma mannkostir venjulegs fólk oft best fram, hverjir veita sínum samborgurum þann stuðning sem þarf, hugga og hughreysta. Ung móðir, rétt rúmlega 25 ára með 3 kríli hangandi utan á Ásgeir Jóelsson ✝ Ásgeir Jóels-son fæddist 20. júní 1924. Hann lést 13. október 2014. Ásgeir var jarð- sunginn 23. októ- ber 2014. sér, peyja á fimmta ári og tvíbura (stelpu og strák) á öðru ári, þurfti að horfa á eftir eigin- manninum hverfa til mikilvægra starfa úti í Eyjum. Öll orðin þreytt og áttavillt eftir að vera á þvælingi í nokkra daga. Bauðst leiga á neðri hæð á Sunnubraut hjá sjó- manni sem sá aumur á stöðu þessa fólks. Leiga sem komst á gegnum kunningsskap hans við ættingja okkar í Keflavík. Sjó- maðurinn, sem var reyndar kom- inn í land og starfaði í slippnum, hét Ásgeir Jóelsson. Það fyrsta sem hann sagði þegar hann sá mömmuna með krílin, „þú ert bara stelpa.“ Hafði sjálfsagt búist við eitthvað eldri konu fyrst hún átti þrjú börn. Það þarf ekki að vera með stór- yrði eða hamagang, hæg stígandi og stöðug nærvera veitir öryggi og vernd. Vernd sem nærir og styrkir. Ásgeir varð mjög fljótt að Geira frænda og börnin hænd- ust að honum, leituðu til hans. Yngri börnin muna kannski ekki mikið eftir þessum atburð- um öllum. Sá elsti man vel þegar hann fékk aðstoð Geira frænda til að skríða inn um klósettgluggann á annarri hæð þar sem annar tví- burinn hafði náð að læsa sig inni. Í huganum var þetta mikil hetju- dáð sem hafðist með aðstoð frænda, ráðum og hvatningu. Geiri kom í heimsókn til okkar í Eyjum nokkru eftir að gosinu lauk og við vorum flutt aftur heim. Það urðu fagnaðarfundir. Þegar frá leið rofnaði sam- bandið eins og gengur og gerist þegar leiðir skilur. Eftir stendur minning um góð- an mann sem veitti okkur aðstoð á erfiðum tímum í lífi okkar. Minning um mann sem lét verkin tala frekar en óþarfa orð. Það hefur meira gildi að verkin tali og minningin lifi. Takk fyrir okkur, Geiri frændi. Fjölskyldan Hrauntúni 30, Vestmannaeyjum, Ingi, Guðlaug, Björgólfur, Sigurður, Heiða og Júlíus. Þegar ég sá hana Elínu fyrst álengdar fyrir um 30 árum hugsaði ég hvað þetta væri flott og áhugaverð kona. Næst þegar við hittumst, í ákveðnu einskismanns- landi, gafst tækifæri – ég kynntist þessari merkilegu konu og líf mitt varð ríkara. Hún bjó yfir ein- stökum persónutöfrum, leiftrandi gáfum, hlýju og kolsvörtum húm- or. Kona að mínu skapi. Hún bauð mér í morgunverð á heimili sitt, það var hátíð því hún kunni „þetta litla fingurgóma extra“. Heimili hennar óvenju fagurt, þakið lista- verkum og bókum hvert sem auga Elín Oddgeirsdóttir ✝ Elín Oddgeirs-dóttir fæddist 28. maí 1953. Hún lést 12. október 2014. Útför Elínar fór fram 21. októ- ber 2014. leit enda bókaunn- andi mikill og menntuð í þeim fræðum öllum. Elín átti gull í hjarta og hún gaf mér af gulli sínu, vináttuörlæti; hugulsamar smá- gjafir, fallega bók til að skrifa í ljóðin mín sem hvatningu, sem hún var manna best að lesa yfir, hvítan léreftsoka með ilmandi lavenderf- ræjum frá Suður-Frakklandi sem hún hafði tínt af akrinum og saum- að í upphafsstafi mína bláum perluþræði. Hvítur blúndudúkur sem ég hef fyrir augunum alla daga hefur öðlast nýja merkingu, stendur fyrir vináttu, fegurð, hreinleika, trú og von. En stund- um bar skugga á, þráðurinn á milli okkar hnökraðist en hann slitnaði aldrei. Í seinni tíð tókum við hann upp aftur og áttum varkárar gæðastundir sem mér þótti afar vænt um. Einlægnin í fyrirrúmi, rætt opið um allt sem skipti máli, hvatningar á báða bóga og alltaf slegið á létta strengi. Alltaf hægt að hlæja frá innstu hjartans rótum með blik í auga í fullkomnum skilningi. Já, hún gat verið kald- hæðin, hún Elín mín, svo stundum stakk, en ég upplifði það sem varnarhátt, því hún var ofurvið- kvæm auðsærð sál sem þráði ekk- ert nema ást og virðingu. Þegar við töluðumst við dagana áður en hún hvarf ætlaði hún að bjóða mér í heimsókn alveg á næstunni og ég ætlaði að fá hana til að koma með mér í leikhús. En nú verður ekk- ert framar næst, engin Elín að mæta á Skólavörðustígnum og skjótast inn á kaffihús í djúpspjall og hlátur. Elín er horfin. Ég finn fyrir sorg og söknuði og finnst ég hafa misst mikið – vináttu Elínar Oddgeirsdóttur. Það var enginn eins og hún og enginn kemur í hennar stað. Örlagavefurinn hefur spunnið sinn þráð, þráðurinn okk- ar er brostinn. Mínar dýpstu sam- úðarkveðjur til fjölskyldunnar og ekki síst mannsins með djúpu bláu augun sem fylgdi henni alla leið. Gunnhildur. Viceroy og Vallas. Í dag kveðjum við hann Gulla frænda. Mikil gleði og um- hyggja umléku Gulla alltaf. Eflaust hefur uppeldið á fjórum yndislegum börnum hans og Möddu gefið honum þá þolin- mæði sem hann ávallt sýndi mér. Ég minnist þess þegar hann á sunnudagsmorgnum tók mig með í barnamessu og tók seinna við óstýriláta vandræðagemlingnum, þegar foreldar mínir voru búnir að gefast upp á mér, og fór t.d. með „drenginn“ til tannlæknis. Endalausar minningar streyma fram, þó er það ein sem mér þykir allra vænst um – 25. desember. Það var svo gaman að koma í af- mælið hans á jóladag og geta rétt honum afmælisgjöfina sem var ávallt sú sama – Old Spice-rak- spíri. Þarna stóð hann með sitt stóra bros og enn stærri eldhús- svuntu með mynd af risastórri áfengisflösku og bauð mig vel- Guðlaugur Helgi Karlsson ✝ Guðlaugur HelgiKarlsson fæddist 25. desember 1928. Hann lést 11. októ- ber 2014. Útför Guð- laugs fór fram 18. október 2014. kominn. Hann var að klára að gera sósuna og fór inn í eldhús aftur, þar sem hann og Madda voru á fullu að koma því síðasta fram á borðstofu- borðið. „Nei, sæll elskan mín, ertu bara kom- inn?“ Madda var ávallt svo elskuleg og maður var svo virkilega vel- kominn. Guðdómlega sviðasultan með kartöflustöppuröndinni ofan á, skreytt rauðrófustrimlum. Því- líkar kræsingar. Borðið var drekkhlaðið af kræsingum og end- aði á jólablöndunni hans Gulla. Eftir að hafa heilsað gestunum og óskað gleðilegra jóla kom Gulli fram í stofuna, ennþá með svunt- una framan á sér og glas í hendi. „Góðu gjörið þið svo vel.“ Eftir smá vandræðalegt augnablik tók Hinni Andrésar af skarið og varð fyrstur til að labba að kræsingun- um. Svona leið þetta kvöld í róleg- heitum með mat og drykk og allir stóðu á blístri. Þegar leið á kvöldið og eftir nokkrar ferðir nokkurra gesta með Gulla niður í þvottahús, fór að léttast nokkuð yfir mann- skapnum. Gulli var að sjálfsögðu hrókur alls fagnaður og karla- kórsferðir til útlanda og regnhlífa- sagan frá Svíþjóð með kirkjukórn- um þarna um árið voru rifjaðar upp ásamt mörgu öðru. Kalli tók nokkur lög á píanóið og ég man eftir því að hafa velt fyrir mér jóla- trénu í stofunni, sem mér fannst vera pínulítið og stóð á svartri styttu sem hefði eflaust ekki þolað gagnrýnisraddir nútímans. Svona leið þetta kvöld þar sem við yngra fólkið smám saman færðumst niður í sjónvarpsher- bergi og horfðum á jólabíómynd á meðan það eldra leysti heimsmál- in aftur og aftur. Eftir eina bíó- myndina man ég eftir að hafa skriðið upp stigann í sparifötunum og legið í efsta þrepinu. Þaðan heyrði ég í öllum gestunum og lág- væru óperutónlistinni inni úr stof- unni. Þar að auki tók á móti mér yndisleg vindlalykt frá Gulla og Hinna, sem efalaust voru að reykja London Docks- eða Fauna- vindla. „Hvað, ertu sofnaður drengur?“ Gulli tók mig upp og bar mig upp í svefnherbergi, þar sem ég svaf áfram þangað til við fórum heim. Þetta var yndislegt kvöld. Gulli frændi á stóran stað í mínu hjarta og ég þakka Guði fyrir þennan yndislega frænda, sem æv- inlega gaf af sér gleði, ánægju og umhyggju við hver fótmál. Elsku Madda, Guðný, Guðrún, Kalli, Guðbjörg og fjölskyldur. Innileg- ustu samúðarkveðjur og megi minningin um góðan mann lifa. Sveinn Hjartarson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.