Morgunblaðið - 06.11.2014, Side 56
VI
TINN
2014
bátsskrokkur geti
orðið söluvæn vara á
alþjóðlegum mark-
aði.
Stjórnendur
Rafnars vonast til að
tilraunaframleiðsla
fyrirtækisins komist á
það stig á næsta ári að
hægt verði að hefja markaðs-
setningu og sölu. Rafnar má skil-
greina sem þróunar- og nýsköp-
unarfyrirtæki. Það hefur haft afar
VITINN
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Rúmlega tveggja mánaða ferðalagi
blaðamanna Morgunblaðsins um
landið, þar sem sjónum var einkum
beint að vaxtarbroddum í atvinnu-
lífinu, lauk í síðustu viku. Eins og
kynnt var í upphafi ferðar ákvað
blaðið að veita einu fyrirtæki í
hverjum landshluta og einu á lands-
vísu sérstaka viðurkenningu í ferða-
lok fyrir að skapa ný störf og tekjur
eða forsendur sem ný atvinnutæki-
færi geta byggst á. Greint er frá
þeim fyrirtækjum sem urðu fyrir
valinu á næstu síðum. Á landsvísu
hlýtur skipasmíðastöðin Rafnar í
Vesturvör í Kópavogi viðurkenn-
ingu Morgunblaðsins, Vitann 2014.
Rafnar vinnur að þróun og til-
raunasmíði báta með nýju skrokk-
lagi sem hefur mikinn stöðugleika
og mýkri hreyfingar en venjulegir
bátsskrokkar. Lagið á að gera bát-
unum auðvelt að ráða við válynd
veður.
Með 38
starfsmenn
Starfsmenn
fyrirtækisins eru
38 og hefur eig-
andinn, Össur
Kristinsson,
stofnandi stoð-
tækjafyrirtækisins
Össurar hf., lagt til
rekstrarfé. Að auki er
aðgangur seldur að öfl-
ugum vélum fyrirtækisins sem ekki
eru til annars staðar hér á landi.
Mikil bjartsýnir ríkir um að þessi
takmarkaðar tekjur af meginstarf-
seminni, en hún er hins vegar mjög
kostnaðarsöm. Fyrirtækið þarf
stórt húsnæði, öflugan vélbúnað og
fjölda starfsmanna. Sannfæring um
að verið sé að skapa eitthvað sér-
stakt ræður því að eigandinn hefur
undanfarin ár lagt starfseminni til
verulegt fé.
Eftirsóttar vélar
Þær takmörkuðu tekjur sem
Rafnar hefur sem stendur stafa frá
vélum fyrirtækisins. Búnaðurinn er
öflugur og ekki til annars staðar
hér á landi. Til dæmis um búnaðinn
má nefna fimm ása vatnsskurð-
arvélar fyrir nánast öll efni, allt frá
þykku stáli niður í þunnt gúmmí.
Hafa ýmsir aðilar keypt þjónustu á
þessu sviði af fyrirtækinu.
Samstarf við Gæsluna
Rafnar hefur við prófanir sínar
á bátsskrokkum átt samstarf við
Landhelgisgæsluna sem sýnt hefur
verkefninu mikinn áhuga. Hefur
Gæslan haft bátinn Leiftur til próf-
unar um skeið. Hann er skil-
greindur sem aðgerðaslöngubátur.
Hefur honum verið prufusiglt um
þrjú þúsund sjómílur og reynst afar
vel við erfiðar aðstæður á hafinu
umhverfis landið. Hægt er að taka
90 gráða beygju á 40 hnúta hraða
án þess að slá af eða vera nokkurn
tíma hræddur um að detta útbyrðis.
Þykir báturinn fara mjög vel með
áhöfnina í slæmu sjólagi.
Ný tegund af bátsskrokki
Ljósmynd/Rafnar ehf.
Lofar góðu Tilraunir Landhelgisgæslunnar með bátinn Leiftur frá Rafnari hafa gefist mjög vel.
Morgunblaðið veitir 10 vaxtarbroddum í atvinnulífinu viðurkenningu eftir hringferð um landið
Skipasmíðastöðin Rafnar í Vesturvör í Kópavogi hlýtur Vitann 2014 á landsvísu
VITINN 20142014
Á FERÐ UM
ÍSLAND
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Meðan unnið var að greinaflokki Morgun-
blaðsins um vaxtarbrodda atvinnulífsins bár-
ust ábendingar um tugi fyrirtækja um land allt
sem ástæða væri til að veita athygli. Hafa sum
þeirra áður verið til umfjöllunar á síðum blaðs-
ins, en frá öðrum verður sagt síðar þegar til-
efni gefst til. Hér verða nefnd örfá fyrirtæki
sem oft var bent á án þess að tækifæri gæfist
til að fjalla um þau að þessu sinni í greina-
flokknum.
Á Vesturlandi: Vignir G. Jónsson sem sérhæfir
sig í fullvinnslu á hrognum. Það er sagt eitt
farsælasta og best rekna fyrirtæki á Akranesi.
Niðursuðuverksmiðjan Akraborg sem í rúm 20
ár hefur verið leiðandi í framleiðslu á hágæða
niðursoðinni þorsklifur. Norðanfiskur sem
sérhæfir sig í áframvinnslu sjávarafurða í stó-
reldhús- og neytendapakkningar. Loftorka í
Borgarnesi sem er eitt af stærstu fyrirtækjum
landsins á sviði framleiðslu húseininga úr
steinsteypu. Límtré Vírnet í Borgarnesi sem
framleiðir valsað stál og ál til klæðninga utan-
húss og innanhúss. Brugghúsið Steðji í Flóka-
dal sem er fjölskyldufyrirtæki. Garð-
yrkjustöðin Sólbyrgi í Reykholtsdal.
Fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir um 10%
allra jarðarberja á íslenskum neytendamark-
aði.
Snæfellsnes og Dalir: Rjómabúið að Erps-
stöðum, fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir ís,
konfekt og osta fyrir sælkera og rekur að auki
gistingu fyrir ferðalanga. Hótel Framnes í
Grundarfirði sem gerir m.a. út á hvalaskoð-
unarferðir í Kolgrafafirði. Fiskiðjan Bylgjan í
Ólafsvík sem verkar, frystir og flytur út yfir
fimmtán fiskitegundir og leggur áherslu á
vandaða umhverfisstefnu. Skipavík í Stykk-
ishólmi sem rekur dráttarbraut og vélsmiðju
og stundar einnig almenna verktakavinnu.
Hraðfrystihús Hellissands sem er eitt stærsta
útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið í Snæ-
fellsbæ með aðsetur á Rifi. Hjá fyrirtækinu
starfa fimmtíu manns við fiskvinnslu og tutt-
ugu á sjó.
Vestfirðir: Standaber sem nýtir aðalbláber
tínd í Strandasýslu. Berin eru pressuð og nýtt
í safa og hratið er nýtt sem hráefni fyrir búst
eða þurrkað sem millimál. Vélsmiðjan Logi
sem sinnir almennum skipa- og véla-
viðgerðum á Patreksfirði. Gullsteinn á Reyk-
hólum sem er að þróa og sérhæfa sig í fram-
leiðslu á lífrænum þara og þangi í formi
fæðubótarefnis. Arna í Bolungarvík sem fram-
leiðir laktósafríar mjólkurvörur.
Norðurland: Pharmarctica á Grenivík sem
framleiðir snyrtivörur, fæðubótarefni, sápur,
smyrsl og fleira. Frís litla íspsinnagerðin á
Sauðárkróki sem framleiðir íspinna. Steindór
Haraldsson á Skagaströnd sem undirbýr fram-
leiðslu á súpum til útflutnings á Japans-
markað. Ferðaþjónustufyrirtækið Haf og land
sem stendur fyrir siglingum um Skagafjörð.
Austurland: Fjölskyldufyrirtækið Tanni Tra-
vel á Eskifirði sem rekur persónulega ferða-
þjónustu. Móðir Jörð í Vallanesi á Fljótsdals-
héraði sem sinnir lífrænni ræktun og
matvælaframleiðslu.
Suðurland: Ferðaþjónustufyrirtækið Iceland
Activities í Hveragerði. Ölvisholt Brugghús
sem framleiðir nokkrar vinsælar bjórtegundir.
Millibör á Höfn í Hornafirði sem hannar og
framleiðir föt.
Suðurnes: Útgerðarfyrirtækið Einhamar Sea-
food í Grindavík. Veitingahúsið Vitinn í Sand-
gerði.
Höfuðborgarsvæðið: Hugbúnaðarfyrirtækið
Handpoint.
Reykjavík: Mentor sem rekur upplýsingakerfi
fyrir menntastofnanir. Mint Solutions sem hef-
ur hannað og þróað MedEye-lyfjaskannann
sem talinn er geta stóraukið lyfjaöryggi hjá
sjúkrahúsum. Nýsköpunarfyrirtækið Hugvak-
inn sem framleiðir snjallsímaforritið Tuneri-
fic. Það er nú notað í yfir milljón farsímum.
Þess má geta að ábendingar bárust um nokkra
tugi nýsköpunarfyrirtækja í Reykjavík sem
ekki var rúm til að fjalla um í greinaflokknum.
gudmundur@mbl.is
Ábendingar bárust
um tugi fyrirtækja
Morgunblaðið/Kristinn
Sproti Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík hefur vakið mikla athygli fyrir vörur sínar.
Fjölskrúðugir vaxtarsprotar um land allt