Morgunblaðið - 06.11.2014, Side 62
Mælitæki Búnaðurinn er að störfum dag og nótt og gerir viðvart ef eitthvað
fer úr skorðum. Þannig er hámarksöryggi vörunnar tryggt.
Nýsköpunarfyrirtækið Controlant
hlýtur viðurkenningu Morgunblaðs-
ins, Vitann 2014, í Reykjavík. Það býr
til lítil mælitæki sem mæla þætti eins
og hita- og rakastig í viðkvæmum
geymslum lyfja- og matvælaiðnaðar.
Tækin senda upplýsingarnar þráð-
laust til notenda.
Framleiðsluvara Controlant er
eins og spilastokkur að stærð. Þessi
stokkur er með rafeindabúnaði og
mælir stöðugt þætti á borð við hita-
og rakastig og skrásetur jafnóðum
staðsetninguna. Mælitæki þessi er
hægt að nota til að vakta hvaðeina
sem þörf er á, hitastig í vöru-
geymslum, gæta þess að vara sé flutt
við kjöraðstæður eða að lyf uppi í
hillu apóteks séu aldrei geymd við
þær aðstæður að það geti stytt líftíma
lyfjanna. Mælitækið sendir mæling-
arnar þráðlaust frá sér og yfir far-
símakerfi í miðlægan gagnagrunn
Controlant.
Í grunninum eru gögnin geymd og
unnið úr þeim, og þau svo gerð að-
gengileg í gegnum notendavænt við-
mót.
Tækni Conrtolant tryggir að á allri
lífsleið þess varning sem vaktaður er
sé ávallt hægt að ganga úr skugga
um að aðstæður séu réttar. Þetta
dregur úr hættu á skemmdum, eykur
gæði vörunnar sem kemur í hendur
neytenda og ef eitthvað hefur komið
upp á í flutningnum er mjög auðveld-
lega hægt að sjá hvað gerðist.
Mælitæki fyrirtækisins eru þegar í
notkun hjá 150 fyrirtækjum í tíu
löndum. Unnið er að því að byggja
upp sterkt alþjóðlegt sölu- og dreifi-
kerfi til að hámarka þá fjárfestingu
sem sett hefur verið í vöruþróun fyr-
irtækisins. gudmundur@mbl.is
Mælir hita og raka
Hentar vel þar sem viðkvæmur varningur er geymdur
Morgunblaðið/ÞÖK
Öryggi Það er ekki síst í geymslum með viðkvæma vöru eins og lyf sem mælitæki Controlant kemur að gagni.
62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Fyrirtækið Teledyne Gavia í Kópa-
vogi hlýtur viðurkenningu Morgun-
blaðsins, Vitann 2014, á höfuðborg-
arsvæðinu. Það hannar og
framleiðir dvergkafbáta samkvæmt
íslenskri uppfinningu, skapar 25
störf og talsverðar gjaldeyris-
tekjur.
Teledyne Gavia hét upphaflega
Hafmynd og var í eigu nokkurra ís-
lenskra frumkvöðla. Fyrirtækið á
rætur að rekja til vinnu Hjalta
Harðarsonar verkfræðings sem
byrjaði árið 1996 að þróa djúpfar í
samstarfi við Raunvísindastofnun
Háskóla Íslands. Þremur árum
seinna var Hafmynd stofnuð og
fyrsta útgáfan af djúpfarinu sjósett.
Önnur kynslóð djúpfarsins var
hönnuð á árunum 2003 og 2004 og
er enn byggt á þeirri vinnu við
framleiðsluna. Það sem er sérstakt
við íslensku djúpförin er að þau eru
búin til úr einingum, þannig að
kaupandi getur sett þau saman eins
og honum hentar. Þannig er hægt
að setja í þau ný mælitæki eða
nema, þegar þeir koma á markað.
Einnig hvers kyns myndavélar.
Annað sem sérstakt var við ís-
lensku djúpförin í upphafi var að
þau voru minnstu för sinnar teg-
undar sem gátu kafað niður á eins
kílómetra dýpi.
Bandarískt fyrirtæki keypti Haf-
mynd haustið 2010 og var þá núver-
andi nafn tekið upp. Starfsemin er
áfram á Íslandi og eru engar breyt-
ingar áformaðar á því. Við kaupin
voru starfsmenn 18 til 19, en eru nú
25, þar af tveir í söludeild í Banda-
ríkjunum. Tveir starfsmenn verða
ráðnir til viðbótar á næstunni.
Viðskiptavinir Teledyne Gavia
eru í meginatriðum þrír hópar. Rík-
isstjórnir kaupa djúpförin til notk-
unar fyrir her eða landhelgisgæslu,
olíuleitarfyrirtæki kaupa þau til
rannsókna og háskólar og stofnanir
hafa margvísleg not af þeim. Fyrir
tveimur árum keypti rússneski her-
inn átta djúpför af fyrirtækinu og
er sá samningur metinn á þrjá
milljarða króna. Djúpförin eru að-
allega seld til ríkja í Evrópu, en
fara þó víðar. Eftir sölu Hafmyndar
fyrir fjórum árum hefur velta fyrir-
tækisins 2,5-faldast og söluaukn-
ingin á þessu ári er um 10 til 15%.
gudmundur@mbl.is
Framleiða dverg-
kafbáta í Kópavogi
Morgunblaðið/Þórður
Framleiðsla Eitt af djúpförunum í verksmiðju Teledyne Gavia.
Fyrirtækið nú í eigu Bandaríkja-
manna en verður áfram á Íslandi
Fyrirtækið Stolt Sea Farm hlýtur
viðurkenningu Morgunblaðsins, Vit-
ann 2014, fyrir Suðurnes. Það rækt-
ar innflutta senegalflúru til útflutn-
ings, nýtir vannýtta auðlind á
Reykjanesi og affallsvatn sem áður
fór til spillis. Fyrirtækið veitir 18
manns atvinnu og verður innan
skamms 70 manna vinnustaður.
Senegalflúran er flutt til Íslands
frá Spáni og alin í landeldisstöð fyr-
irtækisins á Reykjanesi. Þegar
slátrun hefst í janúar næstkomandi
verður fiskurinn um 500 til 600
grömm að þyngd. Eldisstöðin er ein-
hver hin stærsta sinnar tegundar í
heimi. Er byggingin rúmlega 20 þús-
und fermetrar að stærð og á eftir að
verða enn stærri. Fiskurinn verður
seldur óunninn úr landi eftir slátrun,
mest sjóleiðis en einnig flugleiðis.
Markaður fyrir senegalflúru er jafnt
í Ameríku sem Evrópu, mest í Bene-
lux-löndunum.
Ástæðan fyrir staðsetningu eld-
isstöðvarinnar á Reykjanesi er að-
gangur þar að hreinum og góðum
jarðsjó. Á grundvelli samnings við
HS Orku fær stöðin aðgang að volgu
kælivatni sem rennur frá Reykja-
nesvirkjun til sjávar. Vatnið er 35
gráður og er sjálfrennandi inn í stöð-
ina. Það er blandað með köldum
jarðsjó úr borholum fyrirtækisins,
þannig að það er 21 gráða þegar
fiskurinn svamlar í því. Þykir það
vera kjörhitastig fyrir senegalflúru.
Stolt Sea Farm er í eigu norskra
aðila. Móðurfyrirtækið StolNielsen
Ltd. er ein stærsta tankskipaútgerð
heims, rekur olíubirgðastöðvar og
annast gasflutninga. Það er skráð í
kauphöllina í Osló. Dótturfyrirtækið
sem hér starfar rekur fiskeldi í sex
löndum. gudmundur@mbl.is
Rækta senegalflúru
á Reykjanesskaga
Þykir lostæti víða um heim
Starfsmenn allt að 70 innan tíðar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Eldi Senegalflúran dafnar vel við
kjöraðstæður á Reykjanesi.
2014
þjóðlegt
gómsætt
og gott
alla daga
Gríptu með úr næstu verslun
www.flatkaka.is
kÖku
gerÐ hp