Morgunblaðið - 06.11.2014, Síða 66
66 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Áætlað er að fuglum hafi fækkað um 421 milljón í
Evrópu á 30 árum, samkvæmt nýrri rannsókn sem
birt var í vísindatímaritinu Ecology Letters. Rann-
sóknin byggist á talningu fugla í 25 Evrópulöndum.
Skýrsluhöfundarnir rekja fækkunina einkum til
breytinga í landbúnaði og landnýtingu og þess að
gengið hefur verið á búsvæði fugla. Fækkunin er
mest, eða 90%, meðal algengustu fuglategunda álf-
unnar og skýrsluhöfundarnir segja að til að koma í
veg fyrir að fuglunum fækki enn meira þurfi að
vernda búsvæði þeirra. Rannsóknin leiddi einnig í
ljós að fuglum af nokkrum sjaldgæfari tegundum hef-
ur fjölgað í álfunni, líklega vegna friðunar og vernd-
unarráðstafana.
Fuglum í álfunni hefur fækkað um 421 milljón á 30 árum, samkvæmt nýrri rannsókn
90% fækkunarinnar urðu
í 36 algengustu og útbreiddustu
fuglategundum álfunnar
Fuglum í Evrópu fækkar
Sönglævirki
Lítill brúnleitur fugl. Lyftir kambinum
þegar hann verður hræddur eða
æstur. Honum hefur fækkað
til mikilla muna víða í Evrópu
Stari
Starar, eða starrar, fljúga oft saman
í risastórum hópum og eru á meðal
algengustu garðfugla Evrópu
Akurhæna
Verpur á ræktarlandi um nær
alla Evrópu og hefur verið
veidd til matar. Akurhænunni
hefur stórfækkað í allri álfunni
Gráspör
Verpur yfirleitt við mannabústaði
og er einkennisfugl borga og bæja.
Heldur sig einnig við sveitabæi
en hefur verið álitinn meindýr þar
vegna þess að hann étur fræ
og spillir uppskeru. Er á meðal
fugla sem hefur fækkað
mjög í Bretlandi
Talning á vegum stjórnvalda hefur leitt í ljós að fuglum hefur fækkað um 12% í Bretlandi frá árinu 1970
Algengir fuglar í Evrópu
Fuglar eftir búsvæðum
100
120
Fækkun í prósentum
55
28
24
17
1970 75 80 85 90 95 00 05 10 2013
80
60
40
20
Fuglar í Bretlandi
Fuglar á ræktar-
landi
Fuglar í skógum
1970 = 100
1975 = 100
Fuglar á vötnum
og votlendi
1986=100
Sjófuglar
Heimildir: Royal Society for the Protection of Birds/Ecology Letters/bresk stjórnvöld/DEFRA
Fækkunin stafar einkum af eyði-
leggingu búsvæða fugla og
breytingum í landbúnaði, skv.
niðurstöðum rannsóknarinnar
Fuglum fækkaði um 421 milljón
Kúrdískir piltar mynda sigurmerki með fingrunum í flóttamannabúðum
við tyrkneska bæinn Suruc, við landamærin að Sýrlandi. Herlið íraskra
Kúrda fór yfir landamærin frá Tyrklandi um helgina til að taka þátt í átök-
um við vígasveitir samtaka íslamista, Ríkis íslams, um bæinn Kobane. Kúr-
díska herliðið gerði harðar sprengjuárásir í vígasveitirnar í gær.
AFP
Sigurvon í búðum flóttafólks
Norska öryggislögreglan (PST) var-
aði í gær við því að hætta væri á að
hryðjuverkamenn reyndu eða gerðu
árásir í Noregi innan árs.
Odd Reidar Humlegård ríkis-
lögreglustjóri sagði á fréttamanna-
fundi að talið væri að hættan beindist
einkum að lögreglu- og hermönnum,
frekar en almenningi.
Benedicte Bjørnland, yfirmaður
öryggislögreglunnar, tók í sama
streng en bætti við að talið væri að
stjórnmálamenn væru einnig í hættu.
Ríki íslams hvatti til árása
Humlegård sagði að lögregluyfir-
völd væru að íhuga þann möguleika
að vopna lögregluna vegna hættunn-
ar á hryðjuverkum gegn lögreglu-
mönnum. Formaður samtaka norskra
lögreglumanna, Sigve Bolstad, sagði
að þau myndu ekki krefjast þess að
lögreglan yrði vopnuð og vildu láta
yfirvöld um að meta hvort það væri
nauðsynlegt.
„Á næstu tólf mánuðum er líklegt
að Noregi verði hótað hryðjuverka-
árásum eða að slíkar árásir verði
reyndar,“ segir í nýju áhættumati
norsku öryggislögreglunnar.
Benedicte Bjørnland sagði í viðtali
við TV2 að engar nákvæmar upplýs-
ingar um hugsanlega árás lægju fyrir.
„En við höfum orðið vör við slæma
þróun,“ sagði hún og skírskotaði með-
al annars til nýlegra árása eða til-
rauna til árása í Kanada, Bretlandi og
Ástralíu.
Bjørnland vísaði einnig til þess að
samtök íslamista, Ríki íslams, hvöttu í
september stuðningsmenn sína til að
gera árásir á öll lönd sem tækju þátt í
árásum Bandaríkjahers á vígamenn
samtakanna í Írak og Sýrlandi.
Noregur tekur ekki þátt í árásun-
um sjálfum en tilkynnti í vikunni sem
leið að 120 norskir hermenn yrðu
sendir til Íraks til að aðstoða við þjálf-
un hermanna í baráttunni gegn öfga-
samtökunum.
Að sögn PST hafa sextíu manns
með tengsl við Noreg farið til Sýr-
lands til að taka þátt í styrjöldinni þar
í landi. bogi@mbl.is
Beinist að her
og lögreglu
Hætta talin á hryðjuverkum í Noregi
innan árs, að sögn öryggislögreglunnar
Hafnar eru tilraunir með bóluefni
gegn ebólu í Sviss. Þetta var mögu-
legt í kjölfar þess að heilbrigðis-
yfirvöld í landinu heimiluðu til-
raunirnar.
Tilraunirnar með bóluefnið fara
fram á sjúkrahúsi í borginni Laus-
anne. 400 sjálfboðaliðar hafa lýst
yfir áhuga á að taka þátt í þeim. 120
verða valdir til þátttöku. Af þeim
munu um 50 líklega fara til Vestur-
Afríku.
Spænski hjúkrunarfræðingurinn
Teresa Romero, sem smitaðist af
ebólu, fékk að fara heim til sín af
sjúkrahúsi í Madríd í gær. Átti hún
erfitt með halda aftur af tárunum
þegar hún ræddi við fjölmiðla.
„Ég er hér til þess að þakka öll-
um fyrir, ég er ennþá mjög veik-
burða,“ sagði hún á blaðamanna-
fundi á sjúkrahúsinu. Þar hefur
hún verið í mánuð, lengst af í
sóttkví.
SPÆNSKUR HJÚKRUNARFRÆÐINGUR ÞAKKLÁTUR EFTIR AÐ HAFA LÆKNAST AF EBÓLU
Tilraunir með bóluefni gegn ebólu hafnar í Sviss
Verið velkomin í breytta og
betri verslun okkar í Smáralind