Morgunblaðið - 06.11.2014, Side 76

Morgunblaðið - 06.11.2014, Side 76
NÁMerlendis76 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is F yrr á árinu gerðu Eimskip og Samband íslenskra nás- manna erlendis með sér sam- starfssamning. Felur samn- ingurinn m.a. í sér að félagsmeðlimir SÍNE fá sérstök afsláttarkjör af bú- slóðaflutningum. Þórunn Marinósdóttir er for- stöðumaður Viðskiptaþjónustu Eim- skips og segir hún allt gert til að tryggja námsmönnum hagstæð kjör á flutningum, veita þeim vandaða ráðgjöf og snurðulausa þjónustu. Að flytja út í heim með búslóðina og fjölskylduna getur verið stórt verk- efni en með rétta undirbúningnum og góðri aðstoð verður ferlið allt ein- faldara. Bókastaflar og bílar Að sögn Þórunnar eru það ekki hvað síst námsmenn með fjölskyldur sem taka búslóðina, og jafnvel bíl- inn, með sér út í nám. Sumum dugi að koma öllu sínu fyrir í ferðatöskum en í öðrum tilvikum sé besti kost- urinn að taka með húsgögn heim- ilismeðlima og margt annað sem þarf til að geta haldið heimili á nýj- um stað. Sumir sjá t.d. fram á að þurfa að taka með sér mikið safn af bókum og fer strax að verða óhagkvæmt að taka þær með í farangrinum þegar flogið er. Aðrir sjá fram á langa dvöl erlendis og reikna það út að best sé að taka húsgögnin með frekar en að innrétta nýtt heimili erlendis. Sendingin getur verið allt frá því að vera aðeins ein palletta upp í fjörutíu feta gám. „Hvort sem pal- letta eða heill gámur verður fyrir valinu önnumst við flutningana alla leið frá dyrum á Íslandi og að dyrum á áfangastaðnum. Flutningabílar koma með tóman gáminn að heimili viðskiptavinarins sem svo sér sjálfur um að raða þar inn eigum sínum. Ef um pallettu er að ræða þarf aðeins að skilja hana eftir á gangstéttinni svo bílstjórar okkar geti sett trillu undir og tekið inn í bíl. Sé óskað eftir meiri þjónustu, við t.d. burð á bú- slóðinni, getum við einnig veitt þá þjónustu.“ Framtíðar-viðskiptavinir Gámurinn eða pallettan er því- næst flutt niður á höfn, um borð í næsta skip og áleiðis yfir hafið. Þeg- ar skipið kemur í höfn erlendis ann- ast starfsmenn Eimskips eða toll- miðlarar tollafgreiðslu sendingarinnar og gámurinn eða pallettan er flutt áfram á áfangastað. „Ekki má gleyma því að Eimskip vill gjarnan flytja alla námsmenn heim aftur að loknu námi og auðga þannig hóp vel menntaðs fólks á Íslandi. Eimskip lítur á alla námsmenn sem sína framtíðar-viðskiptavini og því er afar mikilvægt að reynsla náms- manna af búslóðaflutningum með Eimskip sé góð og traustvekjandi,“ segir Þórunn. Afar mikilvægt er að gera ít- arlega lista yfir það sem flutt er. Er þægileg leið að skrá, samhliða því að pakkað er niður, t.d. fjölda kassa úr eldhúsi, stofu eða svefnherbergi og tilgreina sérstaklega muni á borð við listaverk og skartgripi. „Því vandaðri sem þessi skrá er, því betra,“ segir Þórunn. „Þá þarf að tryggja allar búslóðasendingar. Eimskip getur séð um milligöngu um tryggingu eða eigandi gert það sjálfur í gegnum sitt trygginga- félag.“ Eins og Tetris að raða í gáminn Verður líka að ganga mjög vand- lega frá öllu því sem fer í gáminn. „Á öllum tímum árs má eiga von á á því því að siglingin yfir Atlantshafið taki á, og alveg sérstaklega yfir vetrartímann. Verður því að búa þannig um húsmuni og kassa að ekkert geti farið á hreyfingu. Inní í gámunum eru festingar sem nota á til að tjóðra niður staka muni og verður að raða öllu vandlega. Þetta getur verið krefjandi Tetris ef lág- marka á hættuna á að hlutir fari á hreyfingu.“ Í flestum löndum gildir sú al- menna regla að búslóðir bera enga tolla. Undantekning á þessu getur verið ef fólk setur í gáminn húsmuni eða aðrar vörur sem eru nýjar, og yfirleitt miðað við að tollur leggist á muni sem fólk hefur átt í skemmri tíma en í eitt ár. „Ef stakir munir eru yngri en eins árs er einfalt ferli að greiða af þeim tilskilin gjöld og þarf bara að muna að geyma kvitt- anirnar.“ Allt frá pallettu upp í fjörutíu feta gám  Með góðri leiðsögn og réttum undirbúningi þurfa búslóðaflutn- ingar milli landa ekki að vera svo erfiðir  Reiknivél á netinu hjálp- ar fólki að velja rétta stærð af gámi m.v. stærð búslóðarinnar og vanda verður til verka þegar húsmununum er raðað í gáminn Morgunblaðið/RAX Námsgögn Sumir verða að taka með sér stóra bókastafla í námið. Búslóðir fólks geta verið mis- stórar og á meðan ein fjöl- skylda þarf stærri gerð af gámi getur önnur fjölskylda látið minni gáminn duga eða jafnvel bara eina til tvær pallettur. „Á heimasíðu Eimskips er að finna handhæga reiknivél til að áætla hversu mikið rúmmál búslóðin tekur,“ útskýrir Þórunn. Siglingaáætlun Eimskips liggur fyrir langt fram í tím- ann. Er Eimskip með sjö skip í reglulegum áætlunum og þar af sigla fimm til Evrópu og tvö eru með viðkomu í Norður- Ameríku tvisvar í mánuði. Flutningstíminn í vesturátt til Portland er um níu dagar en mun styttri þegar siglt er til Evrópu. Að sögn Þórunnar þarf ekki að panta gáminn með miklum fyrirvara og hafa búslóðir for- gang um borð í flutningaskip Eimskips. Þarf fólk þó að gæta þess að gefa sér nægan tíma til að fylla gáminn og ganga frá tilheyrandi pappírum í tíma, til að missa ekki af næsta skipi. Níu daga á leiðinni vestur Morgunblaðið/Eyþór Við tökum svefninn alvarlega. Hjá DUX® byggist góður svefn á háþróaðri tækni, góðu handverki, stöðugum prófunum og vandlega völdum efnum. Þegar þú sefur í DUX rúmi hvílir líkami þinn á meira en 85 ára rannsóknum og þróun. duxiana.com DUXIANA háþróaður svefnbúnaður / Ármúla 10 / 568 9950 Gæði og þægindi síðan 1926 D U X ®, D U X IA N A ® a n d P a sc a l® a re re g is te re d tr a d e m a rk s o w n e d b y D U X D e si g n A B 2 0 12 .
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.