Morgunblaðið - 06.11.2014, Síða 80
80
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
NÁMerlendis
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Á
sgeir Bjarni Lárusson
stundaði allt sitt há-
skólanám erlendis, og ekki
bara í einu landi heldur
tveimur. „Ég lýk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Kópavogi árið
2007 og held beint af stað sama ár
í nám í framleiðslu- og rek-
starverkfræði í útibúi Árósahá-
skóla í bænum Herning. Það auð-
veldaði ögn þessa ákvörðun að
foreldrar mínir höfðu futt út til
Danmerkur ári áður og bjuggu
einmitt í Árósum en voru svo flutt
aftur til baka til Íslands þegar ég
hafði lokið tveimur námsárum
úti.“
Ekki nafli alheimsins
Ásgeir undi sér vel í Herning þó
hann segi bæinn kannski ekki
vera nafla alheimsins. Þaðan er
um klukkustundarferðalag til Ár-
ósa og vegalengdin til Kaup-
mannahafnar ögn styttri en frá
Reykjavík til Akureyrar. „Þetta
reyndist miklu betri staður en ég
hafði búist við, námið sjálft var
vitaskuld gott en fyrir utan skóla-
stofuna var margt í boði. Herning
er ekki stór bær en „huggulegur“,
mikill íþróttabær og miðstöð fyrir
ýmsa stóra íþrótta- og tónlistar-
viðburði. Góður andi var meðal
nemendanna og oft mikið fjör á
stúdentabarnum.“
Að sögn Ásgeirs voru það flutn-
ingar foredra hans til Danmerkur
sem urðu til þess að hann fór að
skoða af alvöru þann mögueika að
læra verkfræðina annars staðar en
á Íslandi. „Ég hafði fengið inni hjá
Háskólanum í Reykajvik og átti
nánast bara eftir að borga skóla-
gjöldin þegar ég uppgötva þennan
skóla. Ég kveikti strax á perunni
að það væri eftir miklu meira að
sækjast ef ég myndi ljúka gráð-
unni í öðru landi þar sem ég fengi
að kynnast nýjum hlutum og nýju
fólki.“
Bachelor-gráðan tók þrjú og
hálft ár og tók þá við stutt vinnu-
törn hjá ekki amalegra fyrirtæki
en Bang & Olufsen. „Sem hluti af
náminu hafði ég verið i starfs-
þjálfun hjá þeim og unnið loka-
verkefnið mitt undir verndarvæg
B&O. Mín beið áhugavert verkefni
hjá þeim að náminu loknu en fljót-
lega hélt ég áfram til Bretands í
meistaranám.“
Mastersgráða í hvelli
Nú lá leiðin í Háskólann í War-
wick. „Mastersnámið tók tólf mán-
uði, og er það í dag vaninn við
flesta breska háskóla.
Fyrir vikið var námsálagið
meira og kannski minni tími til að
drekka í sig menninguna og
mannlifið á staðnum, en engu að
síður ánægjulegur og gefandi
tími.“
Ásgeir segir greinilegasta
muninn á Warwick og Herning
að í breska skólanum var nem-
endahópurinn mun fjölbreyttari.
„Danir voru í yfirgnæfandi
meirihluta í Herning en fólk frá
öllum heimshornum í meirihluta
í Warwick. Um leið fylgdu skól-
anum ýmsar breskar háskóla-
hefðir og virkt félagslíf en aftur
varð hraðinn í náminu til þess að
lítill tími gafst fyrir annað en
bókalestur.“
Varð Háskólinn í Warwick fyrir
valinu út af náminu frekar en
staðsetningunni. Warwick er í
Bretlandi miðju og svæðið frekar
rólegt en fjarri því líflaust.
„Námsbrautin þóti mjög góð og á
þessum tíma var háskólinn að
mælast með þeim bestu í Bret-
landi, þó eitthvað hafi þeim hrak-
að í mælingunum síðan þá.“
Í dag er Ásgeir kominn aftur
til Íslands, ánægður með náms-
gráðurnar og ekki síður með þá
reynslu sem dvölin erlendis veitti
honum. Er ekki laust við að hann
sé orðinn ögn danskur og ögn
breskur eftir samtals fimm ár í
útlandinu, og hafi tileinkað sér
sumt það besta frá báðum þjóð-
um.
Áætlanagerð og stundvísi
„Maður kemst t.d. að þvi þegar
búið er erlendis að Íslendingar
hafa sín sérkenni og ekki endi-
lega alltaf góð. Þurfti ég fljótt að
venjast því í Danmörku að Dan-
inn er ákaflega stundvís og gerir
áætlanir langt fram í tímann. Ís-
lendingurinn, vitaskuld, er á
margan hátt villtari, og fylgir
„þetta reddast“-reglunni.“
Hann segir líka dvölina erlend-
is til þess gerða að kenna náms-
manni aukið sjálfstæði. „Þegar út
er komið upplifir maður fljótt að
öryggisnetið er ekki lengur það
sama og í heimalandinu og jafn-
vel einföldustu hlutir geta orðið
flóknir og erfiðir. Verður maður
að temja sér ákveðna úrræðasemi
til að takast á við allt það sem
getur komið upp.“
„Eftir miklu meira að sækjast ef ég
myndi ljúka gráðunni í öðru landi“
Eignaðist vini frá öllum heimshornum í samtals fimm ára löngu háskólanámi í Danmörku og Bretlandi
Ásgeir Bjarni vann lokaverkefið í bachelornáminu í Danmörku undir verndarvæng Bang & Olufsen
Ljósmynd / Víkurfréttir
Félagar Ásgeir með vinum sínum úr náminu í Bretlandi. Nemendahópurinn þar var mjög fjölþjóðlegur.
Tækifæri „Ég kveikti
strax á perunni að það
væri eftir miklu meira
að sækjast ef ég myndi
ljúka gráðunni í öðru
landi þar sem ég fengi
að kynnast nýjum hlut-
um og nýju fólki,“ seg-
ir Ásgeir.
Með mastersgráðuna i vasanum hefði Ásgeir ef-
laust getað fundið sér vinnu hvar sem er í heim-
inum. Hann valdi þó að snúa aftur til Íslands. „Eins
og það virðist vera mikið ævintýri að fara út í
heim eftir að hafa búið alla ævi á Íslandi þá verður
það ævintýralegt að uppgötva Ísland á ný eftir
langa fjarveru erlendis. Ég hafði fylgst úr fjarska
með öllu því sem gerst hafði í samfélaginu og
áhugavert að koma aftur og sjá þær breytingar
sem höfðu orðið þessi fimm ár sem ég var í burtu.“
Ásgeir segir ekki hafa verið erfitt að smella aft-
ur inn í íslenskt samfélag og auðvelt að taka upp
þráðinn þar sem frá var horfið með vinum og ætt-
ingjum. „Þegar ég var úti, sérstaklega fyrstu miss-
erin, fannst mér stundum eins og ég væri að missa
af öllu með því að vera ekki á Íslandi. Ég gat séð á
Facebook að vinirnir voru að skemmta sér og upp-
lifa alls kyns tímamót í lífinu. Þegar ég skaust
heim til Íslands um jól og í sumarfríum uppgötvaði
ég hins vegar að þrátt fyrir allt það sem ég var að
missa af uppi á Íslandi var ég að upplifa eitthvað
annað, og oft mikið meira, í útlandinu. Þegar ég
svo kom heim voru vinirnir enn á sínum stað, og
þau sambönd sem höfðu skipt mig mestu þegar ég
hélt út í heim voru enn óbreytt, nema hvað ég var
reynslunni ríkari.“
Ísland ævintýralegt eftir langa fjarveru