Morgunblaðið - 06.11.2014, Side 94
94 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Guðbjörg Andrésdóttir, hjúkrunarfræðingur, kennari og ljós-móðir, hætti störfum 2009, en hún er þó ekki hætt aðkenna. „Nú er ég að kenna það sem mér finnst skemmti-
legast og það eru hannyrðir eða baldýring á þjóðbúninga. Ég er
að kenna þetta í Annríki – þjóðbúningar og skart, sem er í Hafn-
arfirði.“ Annríki er fyrirtæki sem sérhæfir sig í öllu er viðkemur
íslenskum þjóðbúningum. Þar er Guðbjörg með átta vikna nám-
skeið og kennt er einu sinni í viku. Guðbjörg er því með tvö til
þrjú námskeið á önn. Baldýring er útsaumsgerð þar sem saumað
er með gull-, silfur- eða silkiþráðum. Mynstur er saumað á flauel
og það síðan sett á búninginn. „Þetta er dásamleg vinna en
vandasöm. Það er miklu meira um það að ungar konur séu að
sauma og það er stöðugt að aukast.“
Guðbjörg kenndi hjúkrun í Fjölbrautaskólanum við Ármúla í 30
ár auk þess að hafa alltaf unnið meira og minna við hjúkr-
unarstörf og sem ljósmóðir. „Maður varð að halda sér við í þess-
um störfum til að geta kennt þau.“
Eiginmaður Guðbjargar er dr.jur. Gunnar Jónsson og eiga þau
tvö börn, Höllu og Árna, og sjö barnabörn. Guðbjörg verður með
sinni nánustu fjölskyldu í dag en ætlar að halda afmælisveislu á
laugardaginn.
Guðbjörg Andrésdóttir er sjötug í dag
Í fullum skrúða Guðbjörg ásamt börnum sínum, Höllu og Árna.
Kennir baldýringu
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Dísa María Sig-
þórsdóttir og Eyja
Rós Sigþórsdóttir
á Akranesi héldu
tombólu og söfn-
uðu 2.223 krónum
fyrir Rauða kross-
inn.
Hlutavelta
G
eir Óttar fæddist í
Reykjavík 6.11. 1954:
„Ég átti frábæra æsku
í Skaftahlíðinni.
Fyrstu árin sem ég
man eftir mér þar voru kartöflu- og
kálgarðar í allri Kringlumýrinni
með kartöfluskýlum og litlum sum-
arhúsum. Síðan kom öllu þessi upp-
bygging í Bólstaðarhlíðinni, Álfta-
mýrinni og í Háaleitishverfinu, að
ógleymdri Miklubraut og Kringlu-
mýrarbraut í núverandi mynd.
Þarna í Skaftahlíðinni var fjöld-
inn allur af krökkum og sum þeirra
eru enn góðir vinir mínir. Fallin
spýta var vinsælasti hópleikurinn.
Svo var hefðbundinn rígur milli
hverfa og stundum sló í bardaga.
Ég fékk að fara með í veiðitúra
austur að Hvítá og í einum túrnum
hóf pabbi að leggja rafmagn í bæ-
inn þar sem alltaf var komið við.
Geir Óttar Geirsson leikmyndahönnuður 60 ára
Glaðvær fjölskylda Geir Óttar með eiginkonunni, Margréti Harðardóttur, og börnunum, Gylfa Má og Hildi Elínu.
Að hanna sögusviðið
Pylsupartí Geir Óttar og dóttursynirnir, Stefán Breki og Finnur Kári.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
MÚSIKEGGIÐ
tryggir að þú fáir eggið þitt
soðið eins og þú vilt hafa það.
Þú setur það með eggjunum
í pottinn við suðu, og þegar
eggin eru linsoðin heyrist:
„Killing me softly“
og harðsoðin:
„Final Countdown“
Skólavörðustíg 12 • www.minja.is • facebook: minja
Bráðnauðsynlegt fyrir tónlistarunnendur og þá sem vilja hafa eggin sín rétt soðin.
Músikeggin (EggStream) er samstarfsverkefni þýska hönnunarteymisins „Brain Stream“
Verð aðeins 5.500 kr.