Morgunblaðið - 14.11.2014, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2014
Borgarstjóri hefur í gegnum tíð-ina litið á það sem hlutverk sitt
að gæta hagsmuna allrar Reykjavík-
ur og allra Reykvíkinga. Á liðnum ár-
um hefur þetta verið að breytast og
með nýrri kynningu
Dags B. Eggerts-
sonar á þróun og
uppbyggingu höf-
uðborgarinnar kem-
ur hann fram í nýju
hlutverki miðborg-
arstjóra, þar sem öll
áhersla er lögð á
vesturhluta borg-
arinnar og miðborgina en engin
áhersla er á svæði og íbúa austar í
borginni.
Dagur kynnir áform sín um aðþrengja mjög byggð vestast í
borginni og að þar eigi að byggjast
upp þúsundir íbúa á næstu árum, en í
austurhluta borgarinnar á nánast
ekkert að byggja.
Þetta á að gera til að koma höfuð-borgarbúum út úr bílum sínum
og inn í bíla borgarinnar, og til rök-
stuðnings þessu er ferðamáti borg-
arbúa borinn saman við ferðamáta í
öðrum „norðlægum borgum“, svo
sem Karlsruhe, í suðurhluta Þýska-
lands!
En það er ekki nóg með að Dagurætli að þrengja borgina vestan-
verða, hann vill í leiðinni þvinga fram
fjölgun leigu- og búseturéttaríbúða,
sem honum hugnast betur en að fólk
búi í eigin húsnæði, eins og eftirsókn-
arverðast hefur þótt hér á landi.
Markmiðið er með öðrum orðumað draga úr einkaeign hús-
næðis og einkaeign á bílum og búa til
nýja „félagslega blöndun“ eins og
það er orðað.
Og allt gerist þetta vitaskuld ánþess að vart verði við ágreining
í borgarstjórn.
Dagur B.
Eggertsson
Miðborgarstjóri
kastar grímunni
STAKSTEINAR
„Þetta úrkomu-
magn er hlið-
stæðulítið hér á
landi,“ segir Ein-
ar Sveinbjörns-
son veðurfræð-
ingur.
Mikið rigndi á
Austurlandi í
fyrrakvöld og yfir
nóttina. Á Há-
nefsstöðum var
sólarhringsúrkoman 168 mm. Ekk-
ert tjón varð, öndvert því sem gerð-
ist í Sognsfirði og á nærliggjandi
slóðum við vesturströnd Noregs á
dögunum. Búsifjar þar urðu tals-
verðar, þó svo úrkomumagnið væri
þar svipað því sem var eystra í fyrri-
nótt.
Einar segir að í stóra samhenginu
sé þetta ágæt áminning um hvað
margt sé sterkbyggt á Íslandi og
mannvirki standist yfirleitt krafta
náttúrunnar, svo sem mikið úrhelli.
Þótt ósköpin öll hafi rignt á
Seyðisfirði féll þar þó ekki íslenskt
úrkomumet. Mest rigndi á einum
sólarhring 292 mm á Kvískerjum í
Öræfum dag einn í janúar 2002.
sbs@mbl.is
Úrkoman
nærri Nor-
egsástandi
168 mm mældust
við Seyðisfjörð
Einar
Sveinbjörnsson
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Samkeppni við þau tjaldsvæði sem
sveitarfélögin hafa látið útbúa og
reka er ójöfn. Við teljum okkur því
knúin til að loka tjaldsvæðunum
hér, sem er mjög sárt því þau hafa
verið fjölsótt og gestirnir ánægðir,“
segir Steinar Berg Ísleifsson, ferða-
þjónustubóndi í Fossatúni í Borg-
arfirði.
Steinar Berg og Ingibjörg Páls-
dóttir kona hans hófu starfsemi í
Fossatúni fyrir rúmum áratug. Þau
útbjuggu m.a. tjaldsvæði með góðri
hreinlætisaðstöðu, veitingaskála,
leiktækjum fyrir börn o.fl.
„Við fórum í þessa fjárfestingu í
fullvissu þess að jafnt væri gefið.
Samkeppnisstofnun sagði að sveit-
arfélögum væri heimilt að reka
tjaldsvæði með lágmarksaðstöðu,
það er grasflötum með hreinlæt-
isaðstöðu,“ segir Steinar Berg.
Nú séu sveitarfélögin að færa sig
upp á skaftið. Þau hafi komið upp
tjaldsvæðum þar sem gestir fá, fyrir
lágmarksverð og jafnvel ókeypis,
rafmagn í fellihýsi, netsamband, að-
gang að sturtu og fleira. Til þessa sé
skattfé varið og í samkeppni við
einkaaðila sé leikurinn ójafn.
„Við höfum að jafnaði tekið 1.000
til 1.200 krónur sem næturgjald á
hvern gest. Á tjaldsvæðum sveitar-
félaganna, sem eiga aðild að Úti-
legukortinu, er næturgjaldið mun
lægra. Við kjósum því að loka tjald-
svæðinu og nýta fjárfestingu sem
þegar er fyrir hendi til annars í
ferðaþjónustu,“ segir Steinar.
Ætla að loka tjaldsvæðinu í Fossatúni
Fossatún Aðstaðan þykir góð.
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira, en bara ódýrt
frá 795
Hjólkoppar
12” 13” 14” 15” 16”
Jeppa/fólksbíla
tjakkur 2,25T
lyftihæð 52 cm
Bílskúrshurðaopnarar
Sonax vörur
í úrvali á
frábæru
verði
4.995
Bílabónvél
8.995
Loftdæla
12V 35L
19.995
Farangursteygjur
mikið úrval
Strekkibönd
frá 495
24.975
frá 1.995
Bílamottur
Startkaplar
margar gerðir
frá 1.495
Veður víða um heim 13.11., kl. 18.00
Reykjavík 10 rigning
Bolungarvík 5 skýjað
Akureyri 7 rigning
Nuuk -2 snjókoma
Þórshöfn 10 þoka
Ósló 2 skúrir
Kaupmannahöfn 10 skýjað
Stokkhólmur 7 skýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 10 heiðskírt
Dublin 7 skúrir
Glasgow 11 skúrir
London 12 skýjað
París 12 heiðskírt
Amsterdam 10 heiðskírt
Hamborg 10 alskýjað
Berlín 11 súld
Vín 12 alskýjað
Moskva 5 alskýjað
Algarve 20 skýjað
Madríd 17 skýjað
Barcelona 18 heiðskírt
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 16 skúrir
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg -11 snjókoma
Montreal 3 léttskýjað
New York 7 léttskýjað
Chicago -1 alskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:54 16:32
ÍSAFJÖRÐUR 10:18 16:18
SIGLUFJÖRÐUR 10:01 16:00
DJÚPIVOGUR 9:28 15:57