Morgunblaðið - 14.11.2014, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2014
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
5
7
19
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
NISSAN NOTE
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
rt
öl
ur
fra
m
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri.
/
N
úl
lv
ex
tir
B
L
gi
ld
a
ek
ki
m
eð
öð
ru
m
til
bo
ðu
m
.
• BLINDHORNAVIÐVÖRUN
lætur vita með ljósi í hliðarspegli
og viðvörunarhljóði ef ökutæki er
hættulega nærri hliðum bílsins
þegar skipta á um akrein.
• VEGLÍNUVIÐVÖRUN
fylgist með veglínu vegarins
og lætur ökumann vita með
viðvörunarhljóði ef bíllinn er á
leið út af veginum.
• BAKKVIÐVÖRUN
fylgist með hreyfingum fyrir aftan
bílinn þegar bakkað er og gerir
ökumanni viðvart.
360° MYNDAVÉLATÆKNI MYNDAR
ÖRYGGISHJÚP UM ÞIG OG ÞÍNA
NISSAN NOTE dísil
Eyðsla: 3,2 l/100 km*
Verð frá: 3.090.000 kr.
Nýr og glæsilegur Nissan Note tekur forystu sem öruggasti bíllinn í sínum flokki. Myndavélar á
öllum hliðum fylgjast með hreyfingum allt í kringum bílinn og aðvara ökumann þegar nauðsyn
krefur. Safety Shield myndavélabúnaður er staðalbúnaður í Nissan Note Acenta PLUS.
BAKSVIÐ
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Erik Werlauff, prófessor í viðskipta-
rétti við Álaborgarháskóla sem
skrifaði lögfræðiálit fyrir verjendur
tveggja sakborninga í Al Thani-mál-
inu, var á sínum tíma gagnrýndur
fyrir stjórn sína á Bonusbanken, fjöl-
skyldufyrirtæki sínu. Bankinn lagði
upp laupana 30. september 2008,
stuttu eftir fall
Lehman Broth-
ers, og var tekinn
yfir af Vestjysk
Bank.
Werlauff er
prófessor í við-
skiptarétti við há-
skólann í Álaborg
og hefur ritað
mörg fræðirit á
sínu sviði. Fyrr á
árinu vann Werlauff lögfræðiálit
gegn þóknun fyrir verjendur þeirra
Hreiðars Más Sigurðarsonar og
Ólafs Ólafssonar, þar sem hann lagði
mat á dóm Héraðsdóms Reykjavíkur
í málinu. Werlauff gagnrýndi bæði
dóminn og málsmeðferðina í áliti
sínu, og komst að þeirri niðurstöðu
að skort hefði á það að tekist hefði að
sanna meginatriði ákærunnar. Var
Werlauff harðorður í garð héraðs-
dóms og ákæruvaldsins.
Sagður hafa hvatt til kaupa
Í álitinu tiltók Werlauff hags-
munatengsl sín við sakborninga í
málinu. Greindi Werlauff þar frá því
að hann hefði engin tengsl við þá fyr-
ir utan það að hann hefði eitt sinn
verið stjórnarformaður í dönskum
banka þar sem Kaupþing hefði verið
óvirkur hluthafi sem átti ekki ráð-
andi hlut. Í því samhengi hefði Wer-
lauff hitt Sigurð Einarsson tvisvar
eða þrisvar, en að þeir þekktust ekki
annars og hefðu engin persónuleg
tengsl.
Bankinn sem um ræðir var Bonus-
banken, en Kaupþing átti á sínum
tíma 13% hlut í honum, og var bank-
inn sagður í íslenskum fjölmiðlum
vera einn af stærri hluthöfum í bank-
anum sumarið 2008. Líkt og fyrr
sagði tók Vestjysk Bank Bonusbank-
en yfir í lok september árið 2008, en
að öðrum kosti hefði bankinn verið
tekinn yfir af danska ríkinu.
Það þótti hins vegar orka tvímælis
þegar danska viðskiptablaðið Bør-
sen greindi frá því að Werlauff hefði
selt eigin hlut í bankanum á tíma-
bilinu frá febrúar 2007 og fram til
mars 2008 og fengið 17 milljónir
danskra króna fyrir. Hins vegar
hefði Werlauff hvatt til þess að aðrir
fjárfestar myndu kaupa hluti í bank-
anum í ágúst 2008, um mánuði fyrir
fall hans. Werlauff neitaði því að
hann hefði brotið nokkrar reglur
með sölunni á bréfum sínum og benti
á að hann hefði sjálfur keypt bréf í
bankanum fyrir 1,1 milljón danskra
króna stuttu fyrir fallið. Salan hefði
verið eðlileg viðbrögð á sínum tíma
til þess að dreifa áhættu, og að fjöl-
skylda hans myndi, þegar allt væri
tekið saman, tapa um 9,7 milljónum
dönskum króna á þeim bréfum sem
hún átti enn þegar bankinn féll.
Werlauff viðurkenndi þó að sér
hefði ekki tekist nógu vel upp við
stjórn bankans, þrátt fyrir hina
miklu reynslu sína sem bæði
lagaprófessor í viðskiptarétti og ráð-
gjafi í viðskiptalífinu. Sagði Werlauff
við Børsen þegar bankinn féll að það
væri eitt að geta lesið sjókortin en
annað að stýra fleyinu sjálfur.
Annað að lesa sjókort en að stýra
Erik Werlauff, álitsgjafi í Al Thani-málinu var gagnrýndur fyrir stjórn sína á Bonusbanken
Sagður hafa selt hlutabréf sín en hvatt aðra til að kaupa Kaupþing átti 13% hlut í bankanum
Morgunblaðið/Eggert
Al Thani-málið Erik Werlauff, álitsgjafi í Al Thani-málinu, hlaut gagnrýni fyrir sölu á hlutabréfum sínum.
Foreldrar Eriks Werlauff stofn-
uðu Bonusbanken árið 1958,
eftir að faðir hans, Bent Wer-
lauff, hafði sótt um lán í ýms-
um bönkum en hvergi fengið.
Þar sem Bent, sem var bók-
haldari að mennt, taldi bank-
ana stóru hafa hlunnfarið sig,
ákvað hann að stofna sinn eigin
banka ásamt Sigrid, konu sinni.
Erik sagði eitt sinn að
Bonusbanken hefði verið eins
og systkini sitt, þar sem mál-
efni bankans hefðu verið allt-
umlykjandi í fjölskyldunni.
Sjálfur varð hann formaður
1999 og gegndi þeirri stöðu
fram til 2008.
Fjölskyldufyrir-
tæki í 50 ár
BONUSBANKEN
Erik Werlauff