Stígandi - 01.10.1947, Side 30
bókin“ brann í Svínárnesi 11. júní 1894, og verður saga félagsins
því ekki rakin fyrr en ný „embættisbók“ er upp tekin, en sú bók
skýrir fyrst frá fundi 25. nóv. 1894. Blaðið Félagið er þó til frá öll-
um árunum 1887—1894, og má af því ráða, að starfsemi félagsins
liefir eigi verið eins reglubundin þau ár og nteðan Einar stýrði
félaginu, en þó sæmilega fjörug með sprettum. Eftir 1894 reyndi
l'élagið enn að halda í horfinu um nokkur ár, og tókst það með
sprettum. Þó fór svo, að mjög tók að dofna yfir því. í ársbyrjun
1901 var samjrykkt að sameina það Framfarafélagi Grýtubakka-
lirepps, öðru félagi er Einar hafði stofnað, — og það nokkrum ár-
um áður en lestrarfélagið, — og haldið starfandi nreð sömu alúð-
inni og liann lagði um langt skeið við lestrarfélagið.
LEIÐRÉTTING
I síðasta liefti Stígauda birtust brcfkaflar frá lesendum, m. a. Benjamfn
Sigvaldasyni. Hefir slæðzt Jtar inn prentvilla í ártal, sagt að Jakob Pétursson
hafi verið alþingismaður 1945—47 og 49, en á auðvitað að vera 1845—47 og
49.
En aðalvillan í bréfinu er Jtó lrá höfundarins hendi. Hann segir, að séra
Sigurgeir Jakobsson á Grund í Eyjafirði hafi verið leystur frá embætti sökum
drykkjuskapar og barneigna. Ritstjóra Stíganda hefir verið bent á, að þetta
um barneignir séra Sigurgeirs muni alrangt, og linnist enginn fótur fyrir
Jiessum orðum Benjaniíns í skjölum um mál Joessi. Einnig kannast eldri Ey-
firðingar ekkert við að hafa heyrt nokkuð slíkt um séra Sigurgeir.
Ritstj.
252 STÍGANDI