Stígandi - 01.10.1947, Page 47

Stígandi - 01.10.1947, Page 47
ætti hrós skilið fyrir hugrekki og fastheldni við loforð sín. Mun hún vera eina stjórnin, sem þekkzt hefir, sem framkvæmt liefir það, sem hún lofaði kjósendum sínum, og enga heyrði ég segja, að íhaldsstjórn hefði staðið sig betur í þeim erfiðleikum, sem að þjóðinni steðja. Þó var Shinwell, eldsneytisráðherra, óvin- sæll af öllum vegna eldsneytisástandsins. Auðsætt var, að erfið- leikarnir höfðu einnig vakið meiri hjálpfýsi og bróðurþel manna á milli en þekktist fyrir styrjöldina, og einnig var áhuginn meiri á stjórnmálum og almennari bæði á sviði innanríkismála og við- horfinu í utanríkismálum. Bretar töldu Ameríkumönnum hafa farizt illa við sig, er þeir iiættu fyrirvaralaust að láta England njóta góðs af láns- og leigusamningunum, þegar séð var, að Bretar iröfðu kosið sér alþýðuflokksstjórn. Þóttust Bretar fá litla viður- kenningu fyrir það, að þeir börðust einir á annað ár fyrir sam- eiginlegum málstað þjóðanna. Rússar höfðu átt miklum vinsæld- um að fagna, þar til sýnt var, að enga samninga var hægt við þá að gera, og að þeir stefndu markvisst að því, að útrýnla lýðræði, hvar sem þeir náðu til. Tala flokksbundinna kommúnista var á Bretlandi liæst 60.000, en var kornin ofan í 38.000 árið 1947. Menn óttuðust stríð, en vonuðu, að til þess kæmi ekki. Talsvert hafði þekking á íslandi aukizt, þótt lítil væri hún enn meðal ahnennings. Hefir hernámið hér gert sitt til þess að auka þekkingu á landi og þjóð. Ekki báru hermenn þeir, sem hér voru, okkur söguna neitt sérstaklega vel, töldu okkur hafa tekið sér illa, en mjög skipti þó í tvö liorn um það; aðrir liöfðu unað hér vel hag sínum og báru okkur vel söguna. Að síðustu vildi ég geta þess, að ég teldi það vel farið, að ís- lenzkir námsmenn leituðu meir til Englands og Skotlands en áður hefir verið gert. Englendingar standa frainarlega í vísind- um og lærdómi öllum. íslendingum hefir Jrar hvarvetna verið vel tekið, engu síður en á Norðurlöndum. Námstíminn er styttri, vegna þess að minni tírni fer til ónýtis, og nú sem stendur er ódýrara að stunda nám í Bretlandi heldur en annars staðar. Sem stendur er erfitt að fá inngöngu í háskóla Jrar í landi, en það stendur til bóta, því að í ráði er að fjölga þeim, og stækka ]aá, sem fyrir eru. STÍGANDI 269
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.