Stígandi - 01.10.1947, Blaðsíða 72
legri þekkingu. Eitthvað þekkti hún þó til bókar, sem nefndist:
„Hjálp í viðlögum". En hvað sem því og öðru leið, gafst Ingibjörg
ekki upp, fyrr en Jóhann „kom aftur til þessa lífs“. Má það merki-
legt kallast, ekki sízt þegar þess er gætt, hve lengi hann lá í sjón-
um. Þá Eggert sál. bar austur með Sandinum, unz þeir loks náð-
ust rétt fram undan, þar sem nú stendur liúsið Baldurliagi. Voru
báðir í skinnsokkum og þess vegna léttari í. Vitanlega hafði Jó-
hann „drukkið mikið" og sandur og leir fyllti augu, eyru, nasir
og munn. Einnig þrengdi band úr sjóhattinum mjög að hálsi
lians. Strax sem hún hafði skorið bandið, og þá sérstaklega eftir
að hreinsun skynfæranná var lokið, urðu lífsmörkin gxeinilegri.
Nú hafa allir hásetar Holtsbátsins verið nefndir og „liver örlög
jreirra biðu“ — livort heldur þeir hrepptu bana eða „var búið
líf“. Eftir er að nefna formanninn, en það var Júlíus Guðmunds-
son í Halldórsgerði, maður um fertugt. Hann var talinn ágætur
aflamaður og sjómaður góður. Honum varð ekki bjargað né náð.
Lét liann eftir sig konu og 4 börn innan fermingaraldurs. Þótti
mikill mannskaði að honum.
III.
•Nú víkur sögunni til Grundarbátsins. Áf honum drukknuðu 3,
en 3 komust af. Þessir drukknuðu:
1. Björn Haraldur Jónsson, piltur um tvítugt, sonur Jóns Frið-
rikssonar Daníelssonar, bróðir Soffíu konu Zophoníasar Jó-
hannssonar á Jaðri við Dalvík og föðurbróðir Jóns Friðriks-
sonar gagnfræðings á Völlum.
2. Guðmundur Kristjánsson, 15 ára piltur frá Ingvörum, sonur
Kristjáns og Guðrúnar, er bjuggu á Hrafnsstöðum (1876—’95),
en bróðir Hallgríms málara í Brekkugötunni á Akureyri.
3. Guðmundur Ingólfsson frá Skuggabjörgum; aðkomumaður,
sem bað að lofa sér að fara í þennan eina róður. — „Feigðin
hefir kallað hann,“ andvarpaði frásögaikonan.
Þessir komust af:
1. Gunnlaugur Daníelsson Jónssonar síðast bónda í Tjarnar-
Garðshorni og Guðrúnar Gunnlaugsdóttur. Hann var for-
maður á bátnum. Lifir hann enn á Akureyri.
2. Sigurður Sigurðsson frá Hálsi, bróðir Ingibjargar þeirrar, sem
hér segir tfrá.
3. Sigurður Björnsson, bróðir Björns f. bónda Björnssonar í
Göngustaðakoti.
294 STÍGaNDI