Hrund - 01.04.1967, Blaðsíða 42
STYRMIR HF. PÚSTHÚLF 335
FRANSKA
VIBRO
NUDDTÆKIÐ
Maðurinn hefur um langan aldur reynt margt
til þess að viðhalda hinni upprunalegu fegurð
líkama síns.
Loksins er nú hægt að fá hér það tæki, sem
hefur reynzt einna bezt til þess að fyrirbyggja
óæskilega fitumyndun, eða jafnvel eyða fitu
sem þegar hefur safnast á líkamann.
Vibró nudd er einföld og ódýr leið til grenn-
ingar, — og að auki skapar það vellíðan, sem
þér hafið ekki kynnzt fyrr.
Franska Calor Vibro nuddtækið fæst nú hér
á landi.
Kynnið yður kosti þess og þér munuð verða
sammála okkur um að Calor Vibro nudd-
tækið ætti að vera til á hverju heimili.
Oma í
Z- 1967
MARÍA
GUÐM UND SDÓ TTIR
frægasta ljósmyndafyrirsæta íslands.
Frásögn og myndir áf fimm ára
starfsferli.
Tilviljun réði því að María hóf starf sem
ljósmyndafyrirsæta. Hún ætlaði aðeins að
gera tilraun í vikutíma en síðan hefur hún
skartað á forsíðum allra helztu tízkublaða
heimsins.
HRUND birtir í næsta blaði fjölda ljós-
mynda þar á meðal margar myndir, sem
aldrei hafa birzt áður, hvorki hér á landi né
annars staðar. Glæsilegt safn ljósmynda,
bæði í svart/hvítu og fullum litum.
42