Hrund - 01.04.1967, Blaðsíða 3

Hrund - 01.04.1967, Blaðsíða 3
FRÁ ÚTGEFANDA HRUND er nafnið, sem við völdum þessu nýja kvennablaði, gamalt nafn og þjóðlegt og hæfir vel nýtízkulegu og vönduðu blaði, sem í senn er byggt á þjóðlegum grundvelli. HRUND er ætlað að koma út mánaðarlega. Mjög verður til blaðsins vandað og við gerð þess eru notaðar ýmsar nýstárlegar vinnuaðferðir, sem hingað til hafa verið óþekktar hjá íslenzkum blöðum. HRUND er fyrsta íslenzka blaðið, sem er filmusett og offsetprentað, en sú prentunaraðferð gefur nær óendanlega möguleika á glæsilegu útliti og er vel hugsanlegt að litprenta blaðið að miklu leyti. Það er Lithoprent hf. sem prentar blaðið. Það er að mestu verk ritstjóra og útgefanda að móta HRUND efnislega og ákveða þá stefnu, er blaðið tekur. Þó verður síður en svo gengið fram hjá þeim óskum, sem lesendur sjálfir kynnu að hafa. Síðustu vikurnar hefur út- gáfa HRUNDAR verið kynnt þúsundum íslenzkra kvenna, þeim er sent fyrsta tölublaðið ókeypis, en síðar verður haft samband við þær og þær beðnar að láta í Ijós álit sitt á blaðinu og allar uppástungur eru vel þegnar. Þetta er með öðrum orðum víðtæk skoðanakönnun á hvernig byggja skuli upp íslenzkt kvennablað og árangurinn lagður til grundvallar frekari útgáfu blaðsins. Ritstjóri HRUNDAR hefur verið ráðinn Margrét Bjarnason, sem er að góðu kunn fyrir skrif sín í Morgunblaðið svo og fyrir þættina ,,Við, sem heima sitjum" í Ríkisútvarpinu. Sér til aðstoðar hefur Margrét lið starfs- krafta, sem sumir hverjir skrifa í þetta tölublað. Má þar nefna Vigdísi Jóns- dóttur, skólastjóra Húsmæðrakennaraskóla íslands, en hún mun að jafnaði skrifa fræðsluþætti um heimilishald. Bára Magnúsdóttir leiðbeinir í frúar- leikfimi, en sá þáttur verður að staðaldri í blaðinu. Bára er lærð frá skóla í líkamsrækt í London og rekur nú sinn eigin ballettskóla í Reykjavík. Það er engan veginn auðvelt verk að koma út jafn vönduðu blaði og HRUND er ætlað að vera. Má til gamans geta þess, að við undirbúning og vinnu blaðsins kemur við sögu starfsfólk af hvorki meira né minna en sex þjóðernum. CD MÁNAÐARLEGT KVENNABLAÐ - UTGEFANDI: HANDBÆKUR H.F Ritstjóri: Margrét Bjarnason. Framkvæmdastjóri: Einar Sveinsson. Filmusett og offsetprentað I Lithoprent hf. Útlit: Auglýsingaþjónustan. Ritstjórnarskrifstofa: Lindargötu 48, sími 19645. Sölu og auglýsingaskrifstofa: Tjarnargötu 14, sími 19400. Verð: I lausasölu kr. 65.00, í áskrift kr. 55.00, greitt fjórða hvern mánuð. Söluskattur innifalinn. HRUND I APRÍL I 1967 EFNISYFIRLIT: 3 Frá útgefanda 4 Stúlkan á forsíðu 5 Lesendur skrifa 5 Ritstjórarabb 6 Þeir buðu gull og græna skóga Viðtal við Kristínu Björnsdóttur. Texti: Margrét Bjarnason. 10 Breytingin mikla Smásaga eftir Sherwood Anderson. Teikning: Gylfi Reykdal. 12 Tízkutildur um aldir Teikningar: Barbara Stasch. Texti: Silja Aðalsteinsdóttir. 14 Æskuár Viktoríu Englandsdrottningar 18 I kvöldboði hjá Reykvískri húsmóður Áslaug Ragnars heimsækir Bryndísi Jakobs- dóttur. 20 Pressuballið 1967 Ingimundur Magnússon ljósmyndaði fyrir HRUND 26 Hvað segja stjörnurnar ? Persónulýsing fyrir hrútsmerkið. 27 Borðhaldið og börnin Vigdís Jónsdóttir skólastjóri skrifar 28 Ó, ég er svo veik Smásaga eftir Christian Gellert. Teikning: Gylfi Reykdal. 30 Frúarleikfimi Bára Magnúsdóttir sýnir og leiðbeinir. 34 Rudolf Nureyev á krossgötum 39 „Elektra“ í svartri regnkápu Spjall um frönsku söngkonuna Francoise Hardy. 42 í næsta blaði

x

Hrund

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hrund
https://timarit.is/publication/1091

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.