Hrund - 01.04.1967, Blaðsíða 26
HVERNIG
LÝSA
ST J ÖRNURNAR
ÞÉR?
HRUTS-
MERKIÐ
21. MARZ — 20. APRÍL
Stjörnuspekingar segja okkur að eðli hvers einstaklings og athafnir hans stjórnist meira og minna af gangi himintungla. Hér lýsir stjörnuspekingur í stórum
dráttum eiginleikum og persónuleika þeirra. sem fæddir eru í merki hrútsins: Á tímabilinu frá 21. marz til 20. apríl, —Jafnt karla sem kvenna.
i næstu ellefu blöðum verða stjörnulýsingar fyrir viðkomandi merki, næst er nautsmerkið: 21. apríl — 20. maí.
Meginregla :
Heppileg störf:
Vinnutilhögun:
Helztu einkenni:
Bezti eiginmaður:
Bezta eiginkona:
Við lifum í dag og deyjum
á morgun.
Verkfræðístörf, lækningar,
skipulagsvinna.
Byrjaðu sjálf á verkinu.
treystu öðrum fyrir áfram-
haldinu.
Óbitandi áhugi og kraftur,
jafnvel óþolinmæði og
fljótfærni.
Helzt yngri, rösklegur og
atorkusamur.
Róleg, sem dáir þig og get-
ur fylgzt með hraðanum í
kring um þig.
Stjörnurnar ráða: Höfuð og andlit.
JÁKVÆÐIR Styrkur og kraftur eru helztu eiginleikar þínir -— ásamt rausn. Þú hefur persónuleika og ímynd-
EIGINLEIKAR: unarafl og kannt að notfæra þér hvort tveggja. Drifkraftur þinn er heilinn. ekki vöðvarnir.
Þú ert fædd til forystuhlutverks og kannt að hvetja aðra til atorku. Það er háttur þinn að mæta
lífinu með ákafa og leita sjálf tækifæranna. bíða ekki eftir að þau komi. Þú lifir og starfar
í hraða og hefur ekki af því tjón. því frjó hugsun þín og ákveðin kann einmitt að mæta vanda-
málunum og afgreiða þau á einfaldan hátt. Þú hefur ekki áhyggjur af því að eldast og hugsar
ekki um „mögru árin sjö", því þú trúir ætíð á velgengnina. Þótt þú sért stundum „langt niðri",
ertu aldrei „lengi niðri" og hefur jafnaðargott skap.
NEIKVÆÐIR En eíns og allir aðrir hefurðu einnig þínar veiku hliðar. Þú ert of óþolinmóð og af þeim sök-
EIGINLEIKAR: um stundum ósanngjörn og of tilætlunarsöm. Þér hættir við að leggja meiri áherzlu á að
hrinda hlutunum hratt af stað. en gæta minna að hvernig þú framkvæmir þá og hvernig þeim
reiði af. Þú átt erfitt meö að treysta öðrum og villt helzt snúast sjálf í öllu. Takirðu þér eitt-
hvað fyrir hendur áttu erfitt með að trúa því að það geti gengið án þess að þú fylgir því eft-
ir alla leið. f mótlæti rekur óþolinmæðin þig til „stríðs". því þú sleppir þá beizlinu af skapi
þínu og reynir að vinna þitt mál með offorsi. Þér hættir til aó vera á stundum ónærgætin
og hæðin í orðum, þó ekki af illvilja heldur óvarkárni. Þú þarft að ávinna þér meiri háttvísi
og læra að láta ekki ímyndun hlaupa með þig í gönur. Þú hefur allt að vinna.
Þú ert fædd I merki hrúts-
ins, sem þýðir i fæstum
orðum sagt, að þú hefur
sterka ósk um að vera
númereitt og athafnir þín-
ar og framkvæmdir eru
teknar föstum og áberandi
tökum. Það leynist engum,
að þú hefur takmörk sem
þú ætlar þér og munt ná
og fáum veitist jafn auð-
velt og þér að vinna fólk
til fylgis forystu þinni. Þú
stefnir hátt, og lykilorðið
er athöfn. Beinir Þú
kröftum þínum, og af þeim
hefurðu nóg, í rétta átt,
nærðu þínu takmarki.
*
Fullviss um að gott út-
lit sé mikilvægt atriði gæt-
irðu þess að vera vel útlit-
andi. Er sama hvort þú
ert mikið eða litið klædd,
þú ert alltaf snyrtilega
klædd Klæðnaðurinn á
sinn þátt, engu síður en
framkoman, í traustvekj-
andi viðmóti og útliti.
Það er ekki rétt að segja
að þú bíðir eftir tækifær-
um lífsins, vegna þess, að
þú veizt hvernig á að hag-
nýta þau og þú leitar eftir
þeim. Það er sama hvað
þú tekur þér fyrir hendur,
— þú vilt helzt gera allt
eða sem mest sjálf, því þú
treystir ekki öðrum til að
sjá hlutina i samá Ijósi
og þú sjálf. En þrátt fyrir
ótakmarkaðan áhuga,
framkvæmdasemi og full-
vissu, sérðu yfirleitt ekki
árangur athafna þinna
strax. Þú leggur út i stærri
verkefni og stefnir hærra
en svo: — að öllu jöfnu
notar þú árangur eins verks
til að hrinda öðru af stað.
Skapgerð
Þú ert draumamanneskja,
en jarðbundin þó. Þú hefur
alltaf margar frjóar hug-
myndir og getur leyst
vandamál undir hvaða
kringumstæðum, sem er
og ert snögg að taka á-
kvarðanir Þú einfaldar
hlutina fyrir þér, setur þá
upp i einföld og auð-
reiknanleg dæmi. Útkom-
an er siðan framkvæmd,
og það er þitt hlutverk
að hefja framkvæmdina.
Ef þú ert sannur „hrútur"
þá hefurðu á þinum snær-
um fólk til að fylgja hlut-
unum eftir. Stundum er
það þó neikvætt, hvað þú
hrærist i mörgum verkum
i einu og i þeim tilfellum
hættir þér til nokkurrar ó-
reiðu. Þér hættir lika til að
valda óánægju með því að
taka ekki nægilegt tillit
til hæfileika annarra og
skoðana þeirra, því þótt
þú búir yfir mörgum góð-
um hæfileikum, verðurðu
að læra að treysta öðrum
fyrir verkefnum og fram-
kvæmdum.
Skefjalaus áhugi þinn
kveikir titt áhuga annarra,
en þú getur misst áhuga
á hlutum jafn fljótt og þú
færð hann og þannig get-
urðu oft skipt um skoðun
og jafnvel ruglað með því
móti aðra i riminu.
Þú hefur „snöggt" skap,
en ekki að sama skapi
„djúpt". Eins er það með
ástarævintýri þín, þau
rjúka upp eins og benzín-
logi, en geta dáið út og
orðið að engu á skammri
stund.
Dýrkir þú einhverjar per-
sónur hættir þér til að lita
þær gagnrýnislausum aug-
um og verða á vissan hátt
fórnardýr þeirra. Hraði
framkvæmda þinna kann
að vekja andúð ýmissa,
þú ættir að leggja meiri
rækt við að kynna þér
skoðanir annarra og þú
ættir ekki að ástæðulausu
að vanmeta hæfileika nán-
ustu vina þinna og sam-
starfsfólks. Umfram allt:
forðastu að spenna bog-
ann of hátt, jafnt heilsu-
farslega sem i fjármálum.
Heilsan
Þú býrð yfirleitt við góða
heilsu. Fólk fætt i hrúts-
merkinu er flest sterk-
byggt, en má þó gæta
sin að veðja ekki um of
á þann eiginleika. Þú ætt-
ir að gæta þín sérstaklega
ef þú ert að ferðast í hrað-
skreiðum farartækjum og
eins ef þú æfir íþróttir. Al-
gengt er um konur fædd-
ar i merki hrútsins að þær
séu fallega byggðar, há-
vaxnar og fremur grann-
leitar, oft imynd sport-
stúlkunnar. Stjörnumerki
stjórnar höfðinu og likam-
legur veikleiki þinn eru
taugarnar. Taugaspenna
og höfuðverkur eru
þinn hættulegasti ó
vinur. Þú þarft að læra
að slappa af og stjórna
tilfinningum þinum — það
yrði þér ómetanleg hjálp
ef þú lærðir að gleyma á-
hyggjum og vandamálum
nema rétt i því augna-
bliki, sem þú ert að af-
greiða þau. Þú þarfn-
ast hvildar, svefns og
góðrar fæðu með nægi-
legu grænmeti. Sjúkdóm-
ar og kvillar hafa yfirleitt
ekki varanleg áhrif á þig
og þú hefur allar likur til
að lifa löngu og athafna-
sömu Iffi. En þar sem þú
leggur mikið af persónu-
legum krafti i verk þin
þarftu þó að gæta þess
sérstaklega að neyta ekki
óhófs i mat og drykk. Þó
þróttur æskunnar geti
enzt þér fram eftir aldri
kanntu að slita þér út fyrir
timann, ef þú lærir ekki
að lægja örlítið öldur ákaf-
ans og athafnaseminnar.
Vinnan
Eins og allir aðrir ræður
þú yfir vissum hæfileikum
og getu. Merki hrútsins er
tengt járni og eldi, svo
trúlegt er að áhugi þinn
beinist eitthvaö í átt til
starfa sem tengd eru
málmum, svo sem verk-
fræði eða tæknifræði þeirra
sviða. Hrúturinn stjórnar
höfði og gáfum. Þú hefur
sköpunargáfu.markmið og
framkvæmdahæfileika.Ný-
ir tímar með breytt viðhorf
bjóða hæfileika þina vel-
komna til starfs í' þágu
sköpunar og uppbygging-
ar og þú munt hagnast á
nýjungum. Þér hæfir vel
það starf, er krefst um-
gengni við fólk, sérstak-
lega ef um er að ræða
ábyrgðarstöðu. Þú ert
fæddur leiðtogi, því þú
hefur einmitt kjark, atorku
og hugmyndaflug, er fær
aðra til að vinna eftir leiö-
sögn þinni.
Peningar
Þótt það sé á engan hátt
takmark þitt að safna auði,
þá gerirðu þér grein fyrir
þeirri aðstöðu og þeim
þægindum, er peningar
veita. Þú ert fljót að kom-
ast yfir peninga, en jafn-
fljót að eyða þeim og
fjárfesta. í viðskiptalifinu
veltirðu miklum peningum,
þótt þú hafir ekki alltaf
mikið fjármagn milli handa.
Þú hefur ánægju af að
kaupa þér föt og'húsgögn
sem þér lika, svo þú skalt
setja þér takmörk, sem
gera þér fært að eignast
þau. Ef þú einu sinni hef-
ur takmark, þá nærðu því.
Heimilið
Þú ert fædd til fallegs
heimilis, elskar að hafa
það eftir þínu eigin höfði
og sparar ekkert til þess.
Þú vilt hafa börn í kring
um þig og ánægjulegt
heimili finnst þér sann-
asta öryggi i lífinu. Þar
viltu eiga algjöran frið til
einkalífs — en bjóðirðu
gestum, þá ertu hinn full-
komni gestgjafi. Þú hefur
gaman af heimsóknum ná-
inna vina, enda er nóg af
þeim, því þú ert dáð fyrir
heimili þitt. Fólk í hrúts-
merkinu fer oft snemma
að heiman til að geta ráð-
ið sínu eigin einkalifi.
Vinátta
Þú átt auðvelt með að
kynnast nýju fólki og eign-
ast nýja vini. Jafnvel svo,
að þú „skiptir" um vini
oftar en gengur og gerist.
Ástæðan er sú, að þú
leggur ekki kapp á að
kryfja hugsanir þeirra og
persónu, þannig að af van-
gá missir þú vini, sem ann-
ars gætu orðið þér mikils
virði. Þú ert rausnarleg við
vini þina en tekur ekki
alltaf nægilegt tillit til
þeirra. Með óvarkárri
gagnrýni hættir þér til að
særa tilfinningar þeirra og
lýsa óviljandi vantrausti á
geto þeirra.
Ástir
Þú ert jafn full af áhuga
og orku i ástum eins og
öðru. Þú þarfnast bliðu
vegna þess öryggis, sem
hún veitir þér. Fólk í hrúts-
merkinu er góðhjartað á
kaldrifjaðan hátt, það er
ekki dreymið í sambandi
við ástina, en tekur hana
raunhæfum tökum, eins
og um verkefni I starfi
væri að ræða. Raunhyggja
þin kennir þér, að þú
þarfnast varanlegrar ástar,
en samt viltu um leið
nokkurt frjálsræði. „Hrúts"
konan er oft falleg og
aðlaðandi en erfitt að nálg-
ast hana. Hið hreina og
stolta útlit hennar vekur
oft aðdáun áhrifaríkra
manna.En hinu sama
gegnir I ástum og starfi,
— hún verður að taka
tillit til annarraj Hrútsfólk
vill hafa forystuna á báð-
um sviðum og það tekur
rómantikina engum vettl-
ingatökum. Annaðhvort —
eða. Samt ertu alltaf að
leita að einhverju nýju,
— þangað til þú loks finn-
ur það rétta, og þar eru
raunar heldur engin vettl-
ingatök. Þú elskar frjáls-
ræði i ástum, elskar það
nýja, ert stöðugt að eign-
ast nýja vini, en það er
samt ekki á kostnað hjóna-
bandsins.
Hjónabandið
Það væri synd að jafna
hjónabandi þinu við ástar-
Frh. á bls. 39.