Hrund - 01.04.1967, Blaðsíða 33

Hrund - 01.04.1967, Blaðsíða 33
BERNARD BUFFET: „HÚN ER EINS OG ELEKTRA í SVARTRI REGNKÁPU“ FRANCOISE HARDY VINSÆLASTA SÖNGKONA FRAKKLANDS Frangoise Hardy býr á fjórðu hæð í gömlu húsi í París. Þar er engin lyfta og þegar komið er upp á stigapallinn sjást tvær stórar svartar dyr. Á annarri hurðinni er miði, þar sem á stendur: „Hér býr frú C. . . illgjörn kona. Frangoise Hardy býr í næstu íbúð“. Hver hún er? Hún er 22 ára — leikkona, söngkona og sýningarstúlka—nýjasta og fallegasta stjarna Frakklands, segja aðdáendur hennar . . . „hrœðilega ljót“ segir hún sjálf . . .“ og get hvorki leikið né sungið“. Þó seljast plötur hennar í stærra upplagi en nokkurs annars fransks söngvara og ungar stúlkur kappkosta að líkjast henni í klæða- burði og hárgreiðslu. Hún hefur þegar leikið í nokkrum kvik- myndum og þegar hún er ekki að leika eða syngja, hefur hún nóg að gera sem ljósmynda fyrirsæta fyrir tízkublöð. í frönsku blöðun- um er hennar getið jafnoft, ef ekki oftar en de Gaulle forseta — og a.m.k. 20 frönsk tízkublöð hafa birt myndir af henni á forsíðu. Bandarísku blöðin Vogue, Harper’s Bazaar, Town & Country og Look hafa einnig skartað henni á mörgum síðum. Málarinn Bernard Buffet segir um Fran- goise: „Hún er eins og Elektra í svartri regnkápu". Hún sjálf: ,,Ég get ekkert leikió nema sjálfa mig“. Sönglög hennar eru raunar harla lítilsigld sé nánar að gætt, enda er hún aldrei ánægð með þau. En hún nennir ekki að vanda þau meira ,,ég strika aldrei út þaó sem ég hef skrifaö . . . endurbœti ekkert". Einkenni Frangoise er, að sumir segja „takmarkalaust kæruleysi". Aðrir segja, að hún sé „Frangoise Sagan fransks dægur- söngs“. Hún lék raunar í kvikmyndinni, sem gerð var eftir sögu Sagans „Kastali í Svíþjóð“ og var sú eina af leikendunum, sem fékk sæmilega dóma ,,Ég var ekki eins slcem og þeir bjuggust við“, segir hún. Vorum við að tala um íbúðina hennar? Það er tæpast hægt að kalla þetta íbúð. Eitt stórt kvistherbergi, blámálað baðher- bergi, eldhús, sem alltaf virðist ónotað og á einum veggnum á salerninu er mynd af Terence Stamp. Stofan er næstum tóm — einn stór svartur dívan, svartur hægindastóll með leðuráklæði, plötuspilari, segulbands- tæki, nokkrar hljómplötur og bókahilla. Bækurnar eftir Zola, Puskin, Simone de Beauvoir og fleiri fræga höfunda. ,,Ég er afar hrifin af Shakespeare sem stendur “ segir Frangoise — hef haft dálœti á enskri leiklist frá því ég var í Englandi. Fyrir þremur mánuðum hitti ég brezka leikar- ann, Peter McEnery, og hann fékk mig til að lesa Shakespeare, fyrst og fremst Romeó og Júlíu. Ég er afskaplega rómantísk og vil helzt alltaf vera ástfangin. Ég hef eytt fimm árum af lífi mínu til aó hugsa um einn mann, Ijósmyndarann Jean Marie Pétier. Ég hef verið hrœðilega óhamingjusöm og þó þetta sé allt búið núna, finnst mér ég vera bundin honum á einhvern hátt. “ — Já, ég var ung, þegar ég hitti Jean Marie. Eg var nýbúin að syngja inn á fyrstu hljóm- plötuna mína og hann var nýkominn úr herþjónustu. Vinur hans bað hann aó taka nokkrar myndir af mér, en hann vildi það ekki. Honum fannst ég svo Ijót og mér fannst hann hrœðilega leiðinlegur og alltof ánœgóur meö sjálfan sig. Það tók okkur þrjá mánuði að uppgötva hvort annað. Vió vorum auóvitað mjög hamingjusöm saman en ég var alltaf hrœdd um að missa hann, því að ég hafói svo mikla minnimattárkennd. Ég var líka alltof ung og óreynd til að skilja, að vió gœtum ekki verió saman öllum stundum. Hann starfaði þá sem fréttamaður og ég þurfti aó fara í söngferðalög. Heföum við verið þrítug, hefói þetta allt farið öðru vísi. — Já, móðir mín hefur hjálpað mér mikið í vandrœðum mínum. Hún reynir að veita mér stuóning, en það er ekki gott að tala vió mömmu sína um sínar innilegustu tilfinningar. Mceður segja alltaf ,,Þetta sagði ég þér“, þegar eitthvaó fer út um þúfur og það er ekki sérlega upplífgandi. — Hvað ég vilji heldur heyra? Að þetta lagist allt saman og ég hafi ímyndað mér þetta allt. — Ástfangin núna? Hún roðnar og segir: ,,Eigum við nokkuð aó tala umþaó. Ég er nefnilega afar hjátrúarfull og vil helzt ekki viðurkenna það. — Þér eruð trygglynd Frangoise Hardy, að hafa haldið tryggð við Jean Marie allan þennan tíma? — Trygglynd? Ef til vill. Þetta endist, þar til maður uppgötvar, aó til eru fleiri karlmenn í heiminum en þessi eini. — Auðvitað vil ég giftast. Mig langar að eignast börn.

x

Hrund

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hrund
https://timarit.is/publication/1091

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.