Hrund - 01.04.1967, Blaðsíða 30
LEIKFIMI
Kæri lesandi:
Þessi þáttur er ætlaður konum á öllum aldri, til alhliða líkamsræktunar og fegrunar. Sú hreyfing,
sem við fáum daglega við húsverk og aðra vinnu, er yfirleitt allt of einhliða. Við stirðnum,
fáum hálsríg, höfuðverk, bakverk, fótaverk og óteljandi aðra kvilla. Þessu getum við öllu
komizt hjá með því að eyða fáeinum mínútum á dag til að mýkja og hreyfa alla vöðva líkamans
jafnt. Og auk þess höfum við yfirleitt einhverja vankanta, sem bæta má úr.
Hér munu verða birtar einfaldar, en góðar æfingar, sem síðan má raða saman í kerfi, sem á
við hvern einstakling. Heilbrigður og fagur líkami gerir konuna hamingjusama.
Bára Magnúsdóttir
leiðbeinir
Hér koma fyrst þrjár æfingar, sem miða að
því að gefa fegurri mjaðmalínu.
Leggizt alveg beinar á bakið. Dragið að yður
fæturna með iljar í gólfi. Lyftið síðan mjöðm-
um frá gólfi þannig að bein lína myndast frá
hnjám upp að öxlum.
Látið síðan mjaðmirnar detta til hliðar, axlir
í gólfi og hnén saman allan tímann.
Leggizt síðan aftur á bakið og gerið æfinguna
til skiptis á hvora hlið, fjórum sinnum til að
byrja með og smáaukið við.