Hrund - 01.04.1967, Blaðsíða 14
ÆSKUÁR
VIKTORlU
E N G L A NDSDROTTNINGAR
Þær eru ekki margar konurnar,
sem skipa jafn veigamikinn sess
í mannkynssögunni og Viktoría,
drottning Englands, hin mikil-
hæfa og skapmikla kona, sem
þar réð ríkjum hátt á sjötta ára-
tug reisti brezku krúnuna úr
hí' igerðri niðurlægingu og mark-
? i óafmáanleg spor í brezkt
pjóðlíf.
Margt og mikið hefur verið
ritað um valdaferil Viktoríu og
kosti hennar og galla, bæði sem
manneskju og drottningar — og
það fordæmi, er hún setti þjóð
sinni sem eiginkona og móðir.
Verður sú saga ekki rakin hér
að sinni, heldur aðeins sagt litil-
lega frá bernsku hennar og æsku-
árum, sem voru ekki alltaf ýkja
björt eða skemmtileg og hafa
án efa haft afdrifarík áhrif á fer-
il hennar sem þjóðarleiðtoga.
Faðir Viktoríu var Játvarður
prins, hertoginn af Kent, fjórði
sonur Georgs III konungs. Hann
framaðist lítið — var um hríð í
hernum, en hrökklaðist þaðan
árið 1803. Árið 1815 fluttist hann
til Sviss skuldum vafinn, ásamt
franskri konu, að nafni Julie de
St. Laurent, sem hafði verið hon-
um sem eiginkona í aldarfjórð-
ung.
Það átti eftir að valda mikil-
vægri breytingu á högum Ját-
varðar, að hann hafði um hríð
milligöngu um bréfaskipti ungra
elskenda, þýzka prinsins Leo-
polds af Saxlandi og bróður-
dóttur sinnar, Charlotte, dóttur
ríkisarfans, Georgs, sem framan
af var algerlega andvígur sam-
bandi þeirra.
Þegar úr þeim málum rættist
og leyfi var fengið fyrir giftingu
þeirra,urðu þau sem vænta mátti
afar ánægð og jafnframt þakk-
lát Játvarði fyrir hans aðstoð í
erfiðleikum þeirra. Ákváðu þau
að gera sitt til þess, að hann gæti
losnað úr skuldabaslinu og snúið
aftur til Englands.
Ráðið var nærtækt. Systir Leo-
polds, Viktoría, var nýorðin
ekkja, aðeins þrítug að aldri og
tveggja barna móðir. Hvað var
æskilegra en að hertoginn kvænt-
ist henni ?
Þegar Játvarður hafði kynnzt
konunni leizt honum allvel á
hugmyndina — en ekki er víst,
að hann hefði treyst sér til að
skiljast við sína frönsku Julie
fyrir fullt og allt, hefði ekki rás
atburðanna beinlínis neytt hann
til þess. Charlotte, kona Leo-
polds, sem stóð næst föður sín-
um að rikiserfðum, lézt af barns-
förum sumarið 1817. Þar með
krafðist framtíð brezku krúnunn-
ar þess beinlínis, að þeir synir
gamla konungsins, sem enn voru
ókvæntir, leituðu sér kvonfanga
og eignuðust erfmgja, svo að
einhver yrði til að taka við krún-
unni síðar meir.
Ástandið í konungsfjölskyld-
unni var þá slíkt, að konungur
sjálfur var andlega vanheilt gam-
almenni, af fimmtán börnum
voru tólf eftir og öll komin á
efri ár; systurnar fimm voru allar
ógiftar og af börnum bræðranna
tæpast nokkurt er þótti hæft til
ríkiserfða. Annað hvort voru
þau ekki hjónabandsbörn eða
eitthvað annað við þau að at-
huga.
Viktoría prinsessa á barnsaldri.
14