Hrund - 01.04.1967, Blaðsíða 18

Hrund - 01.04.1967, Blaðsíða 18
KVOLDBOÐ HJÁ REYKVISKRI HtJSMÖÐUR HRUND langaði til að forvitnast um, hvernig ung, reykvísk hús- móðir tæki á móti gestum. Fyrir valinu varð Bryndís Jakobsdóttir, BRYNDÍS er fædd og upp- alin á Akureyri, dóttir hjónanna BORG- HILDAR JÓNSDÓTTUR og JAKOBS FRÍMANNSSONAR kaupfélagsstjóra þar. Hún lauk stúdentspróíi frá Menntaskólanum á Akureyri 1951 og gekk í hjónaband árið 1952. Fjögur fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau hjónin erlendis, fyrst í Kaupmannahöfn og síðan í New York. Eftir heimkomuna hafa þau búið í Reykjavík. Magnús setti á stofn eigið fyrirtæki árið 1962, ísól h.f. BRYNDÍS er mikil hann- yrðakona. Hún lærði að mála á postulín, meðan hún dvaldist í Kaupmannahöfn, og seldi framleiðslu sína bæði þar og hér heima. Einnig hefur hún hnýtt ryateppi, saumað mikið út og teiknað. Tónlistina kveður hún þó vera aðalá- hugamál sitt. Á menntaskólaárunum stundaði hún nám í píanóleik hjá frú Margréti Eiríks- dóttur og síðar hjá Árna Kristjánssyni. Eftirlætistónskáldin eru Beethoven og De- bussy Hún hefur ákaflega gaman af að leika undir söng, einkum ,,Lieder“. BRYNDÍ S hefur látið félags- mál allmikið til sín taka og hefur m.a. tekið virkan þátt í störfum Kvenfélagsins Hrings- ins. Á borðinu er handofinn hördúkur í ljósgráum, hvítum, grænum og gulum litum. Blóm og kerti eru gul, en kerta stjakarnir og hnífapörin úr silfri. Diskana hefur Bryndís málað sjálf.

x

Hrund

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hrund
https://timarit.is/publication/1091

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.