Fréttablaðið - 28.03.2013, Síða 27
EMMA Í VAX
Leikkonan Emma Watson sem flestir þekkja
úr Harry Potter-myndunum er nú til sýnis
í Madame Tussaud‘s-vaxlistasafninu í
London. Emma er klædd í svartan Elie Saab-
kjól. Fjóra mánuði tók að móta styttuna.
Matreiðslumaðurinn Úlfar Finnbjörnsson sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar eldar hann ljúffenga rétti úr Holta-
kjúklingi fyrir áhorfendur. Hér færir Úlfar okkur upp-
skrift að ferskum hátíðarfugli með sítrónum og rós-
maríni. Rétturinn er er fyrir sex manns og borinn fram
með bökuðum kartöflum, steiktu grænmeti og salati.
Hægt er að fylgjast með Úlfari elda þessa ljúffenga
hátíðarmáltíð annað kvöld klukkan 21.30 á sjónvarps-
stöðinni ÍNN.
Þætt irnir verða svo endursýndir yfir helgina. Einnig
er hægt að horfa á þá á heimasíðu ÍNN, inntv.is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann
sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast með
honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
1 ferskur hátíðarfugl 2,2-2,5 kíló
2 sítrónusneiðar
2 msk. rósmarínnálar
2 msk. bráðið smjör
Salt og nýmalaður pipar
AÐFERÐ
Smeygið hendinni undir haminn
á fuglinum og losið hann frá
bringunum alveg niður að lærum.
Setjið sítrónurnar, rósmarínið og
smjörið undir haminn á fuglinum
og kryddið fuglinn með salti og
pipar. Bakið í ofnskúffu við 180
gráður í einn og hálfan til tvo
tíma eða þar til kjarnhiti er 71°C.
Þegar 10 mínútur eru eftir af
steikingartímanum er vatni hellt í
ofnskúffuna.
Rósmarín og hvítlaukssósa
2 msk. olía
1 laukur, smátt saxaður
2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
1-2 msk. rósmarínnálar
2 dl hvítvín
2½ dl rjómi
2 dl soð úr ofnskúffunni
1-2 msk. kjúklingakraftur
40 g kalt smjör í teningum
Sósujafnari
Salt og nýmalaður pipar
AÐFERÐ
Hitið olíuna í potti og kraumið
laukinn, hvítlaukinn og rós-
marínið í tvær mínútur án þess
að brúna. Bætið þá hvítvíninu í
pottinn og sjóðið niður í síróp.
Rjómanum, soðinu og kjúklinga-
kraftinum bætt út í og þykkt
með sósujafnara. Takið pottinn
af hellunni og hrærið smjörinu
saman við þar til smjörið hefur
bráðnað.
Berið fuglinn fram með bökuð-
um kartöflum, steiktu grænmeti
og salati.
FERSKUR HÁTÍÐARFUGL MEÐ SÍTRÓNUM OG RÓSMARÍNI
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
Mikið af flottum tilboðum
TÆKIFÆRISGJAFIR
Margar gerðir
Save the Children á Íslandi