Fréttablaðið - 15.06.2013, Blaðsíða 24
15. júní 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
Þegar við Elín hittumst til að ræða ævintýrið henn-ar í Dubai á ónefndu kaffihúsi í Reykjavik lýsir hún samstundis upp staðinn en Elín er
ein af þessum konum sem er allt-
af jákvæð og skemmtileg.
Af hverju í ósköpunum fluttuð
þið til Dubai? Þegar við fluttum
hingað út þá var það ekkert endi-
lega út af kreppu eða neitt. Við
höfðum nóg að gera á Íslandi. Við
bara ákváðum að prófa eitthvað
nýtt og skemmtilegt og breyta
til. Mér finnst Ísland besta land í
heimi en ég hef einhvern veginn
alltaf þurft að taka frí frá Íslandi í
gegnum tíðina. Við fluttum út árið
2010 bara til þess að prófa eitt-
hvað nýtt og spennandi. Við vorum
orðin svolítið leið á Íslandi. Mái
sótti um starf sem flugumferða-
stjóri og fékk vinnuna.
Erfitt að flytja frá fjölskyldu
Við vorum öll mjög spennt að
fara en vissum í rauninni lítið um
Dubai þegar við fluttum út eða
hvernig þetta myndi verða allt
saman. Við tókum bara sénsinn.
Ég skal alveg viðurkenna það að
fjölskyldan okkar, afar og ömmur,
voru ekkert svakalega ánægð með
okkur þegar við tókum ákvörðun
um að flytja af landi brott. Það
allra erfiðasta var að fara frá
þeim en auðvitað söknum við fjöl-
skyldna okkar og vina sem búa á
Íslandi mjög mikið en þau hafa
verið mjög dugleg að koma í heim-
sókn. Margir eru búnir að koma
oftar en þrisvar til okkar. Svo
dvel ég með krakkana á Íslandi
yfir sumartímann en Mái kemur
og er með okkur í þrjár vikur yfir
sumarið. Samskiptaforritið Skype
gerir þetta auðveldara. Ég hef búið
nokkrum sinnum áður í útlöndum
fyrir tíma Skype en það munar
öllu. Nú fáum við ekki eins mikla
heimþrá því við getum verið í góðu
sambandi við fjölskylduna í gegn-
um internetið.
Búa á dásamlegum stað í Dubai
Viltu lýsa fyrir okkur þínu nán-
asta umhverfi? Við búum á besta
stað í Dubai, mitt á milli tveggja
golfvalla; Emirates golfclub og
Montgomery golfclub. Ég er tíu
mínútur að keyra niður á strönd
og 10-20 mínútur í allt það helsta.
Dubai er ekkert svo stór borg, það
eru rétt um tvær milljónir sem
búa hér. Hverfið okkar er algjör
draumur með mörgum sund-
laugum og tennisvöllum.
Hvernig hefur þér og fjölskyld-
unni gengið að aðlagast? Fyrsta
árið hérna fór bara í að átta sig
á þessu öllu saman, koma krökk-
unum í skólann og gerast góð hús-
móðir. Ég spáði ekki einu sinni í
að reyna að fá mér vinnu. Mér
fannst æðislegt að fá að vera hús-
móðir í rólegheitum, ekkert stress
bara baka og elda, labba í sund,
lesa bækur og kynnast nýju fólki
í góða veðrinu. Við byrjuðum til
dæmis öll að æfa tennis, sem er
alveg frábært. Mér fannst ég bara
fá að kynnast fjölskyldunni minni
betur eftir að við fluttum. Við
erum miklu meira saman núna en
áður, þegar við bjuggum heima á
Íslandi.
DÁSAMLEGT
Í DUBAI
Elín Reynisdóttir förðunarmeistari
flutti ásamt eiginmanni og tveimur börnum til
Dubai fyrir þremur árum. Hún segir fjölskyldu-
tengslin hafa styrkst við flutningana, að ekki sé
minnst á tækifærin í starfinu.
Hvernig er að vera kona í Dubai
þegar kemur að klæðnaði til að
mynda? Það er bara alveg eins
að vera kona í Dubai og á Íslandi.
Það má klæða sig alveg eins og á
Spáni. Það er ekkert tiltökumál ef
við erum í stuttu pilsi eða hlýrabol.
Einu skiptin sem við konur þurfum
að hylja okkur er þegar við förum
inn í mosku en þá klæðum við
okkur í „abaya“ og hyljum hárið.
Aginn mikill í skólunum
Eru börnin sátt? Krakkarnir hafa
fengið rosalega mikið út úr því að
búa hér. Þau ganga í alþjóðlegan
enskumælandi skóla sem er frekar
strangur en virkilega góður skóli.
Mér finnst þau hafa grætt alveg
svakalega mikið á því að hafa
verið hér því þau hafa lært alveg
ótrúlega mikið á þessu. Til dæmis
er Kolbrún María búin að vera að
læra arabísku, spænsku og ensku
og gengur mjög vel. Oliver er einu
ári á undan í skóla en hann langar
svolítið til að prófa menntó heima
á Íslandi, þannig að kannski flytur
hann heim á undan okkur og verð-
ur hjá mömmu minni.
Mér finnst aginn hérna miklu
meiri og betri en í íslenskum skól-
um. Sem dæmi um það þá ganga
allir nemendur í eins skólabún-
ingum og þar af leiðandi er ekk-
ert einelti þegar kemur að klæða-
burði krakkanna. Eitt sinn þurfti
ég að kvarta yfir því hvernig
einn drengur hagaði sér í byrjun
skólaársins eftir að við komum
út. Hann gerði í því að stríða Kol-
brúnu svo að ég hafði samband við
skólastjórann í kjölfarið og sagði
honum hvernig hann hagaði sér.
Skólastjórinn varð öskureiður
yfir þessari hegðun og sagði hana
ekki líðast í skólanum. Drengur-
inn var næstum því rekinn úr skól-
anum. Það sem ég var svo ánægð
með var að það var tekið strax á
vandamálinu. Þessi strákur hefur
verið eins og engill síðan og allir
eru glaðir. Það sem ég er sérstak-
lega ánægð með er að krakkarnir
hafa eignast alveg fullt af nýjum
og góðum vinum úr öllum heims-
álfum og eru alsælir með þetta.
Fjölmörg spennandi verkefni
Þú fékkst stórt atvinnutækifæri
sem förðunarmeistari – viltu
„HRESSILEG OG DREPFYNDIN
SKVÍSUSAGA. VELHEPPNUÐ BLANDA
AF SATC OG GIRLS MEÐ DASSI AF
ALÍSLENSKUM HALLÆRISGANGI.“
FRIÐRIKA BENÓNÝSDÓTTIR / FRÉTTABLAÐIÐ
„... LÍFLEG OG SKEMMTILEG ...“
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON / FRÉTTATÍMINN
2.699
KYNNIN
GAR-
VERÐ
Náðu í sýnishorn úr bókinni
með því að skanna QR kóðann Gi
ld
ir
til
1
. j
úL
Í.
ELÍN REYNISDÓTTIR Elín tók sénsinn eins og hún segir sjálf og flutti alla leið til Dubai. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Aldur 43 ára
Maki Már Ormarsson
flugumferðarstjóri
Börn Oliver 17 ára, Kolbrún
María, 12 ára
Áhugamál Ferðalög, íþróttir,
förðun, músík og matur.
Menntun 1991-1993 lærir
förðunarfræði í Hollywood
1994 hefur störf í
Þjóðleikhúsinu.
Ferillinn 1996-2000 ráðin
hjá Borgarleikhúsinu 2000-
2010. Byrjar að vinna hjá RÚV
2000-2010 samhliða förðunar-
starfinu hjá sjónvarpinu starf-
ar Elín sjálfstætt í fjölmörgum
verkefnum eins og Eurovision
svo fátt eitt sé nefnt.
26
Ellý
Ármanns
elly@365.is