Fréttablaðið - 15.06.2013, Blaðsíða 73
KYNNING − AUGLÝSING Íslensk framleiðsla15. JÚNÍ 2013 LAUGARDAGUR 5
Margar af nýjungum Mjólkursamsölunn-ar hafa slegið í gegn undanfarin ár. Þar má nefna Hleðslu en í hana er nýtt osta-
mysa sem áður fór til spillis. Einnig má nefna
gríska jógúrt, ostana Óðals Tind, Ljótan og Dala-
Auði, auk margvíslegra nýjunga og umbóta innan
hefðbundinna vöruflokka eins og jógúrts, skyrs,
smjörvara og osta.
Að mati Björns og Ólafs Unnarssonar, matvæla-
fræðings í vöruþróun MS, eru Íslendingar mjög
opnir fyrir nýjungum en jafnframt kröfuharð-
ir neytendur. Það geri starfið í vöruþróuninni að
mikilli en skemmtilegri áskorun.
Skyr.is í nýjan búning
Eitt af stærri verkefnum síðasta árs var að setja
Skyr.is í nýjan búning. „Við það tækifæri voru
gerðar lítilsháttar en mikilvægar breytingar á
vörunni sem gerði okkur kleift að draga úr sykri í
skyrinu um 10-15 prósent,“ segir Ólafur.
Þetta er í samræmi við áherslumál MS und-
anfarin misseri, að auka framboð sykurminni
mjólkur vara og draga úr sykri í þeim vörum sem
fyrir eru á markaði.
„Sýrðar bragðbættar afurðir eins og skyr þurfa
einhverja sætu til að milda súra bragðið og lyfta
undir ávaxtabragð,“ segir Björn. „Því miður dugar
sætan í ávöxtunum sjálfum ekki til ein og sér og
því þarf líka að bæta við sykri eða öðrum sætu-
gjöfum. Undanfarin ár höfum við unnið markvisst
að því að draga úr notkun sykurs eins og hægt er
án þess að bæta við sætuefnum. Skyr.is er dæmi
um það.“
Einnig voru gerðar breytingar í Skyr.is drykk og
hann kynntur undir skráargatsmerkinu, norrænu
hollustumerki fyrir þær matvörur sem teljast holl-
astar í sínum flokki.
Laktósafrí mjólk og súkkulaðimjólk
Nú í lok maí markaðssetti MS laktósafría mjólk
en úr henni er búið að fjarlægja allan laktósa, eða
mjólkursykur, úr vörunni svo hún hentar þeim
sem hafa mjólkursykursóþol. „Þessi vara var
nokkuð flókin í þróun og tók það okkur á annað
ár að lenda henni með fullnægjandi hætti. En við
erum mjög ánægð með útkomuna,“ segir Ólafur.
„Þessari vöru hefur verið mjög vel tekið á mark-
aði,“ bætir Björn við. „Margir neytendur hafa end-
urnýjað kynnin við mjólk og ekki fundið til neinna
óþæginda.“
Fyrr á þessu ári kom fersk súkkulaðimjólk á
markað og hefur hún einnig hlotið góðar viðtök-
ur. Sú vara er nokkuð lík Kókómjólk en er ekki
geymsluþolin á sama hátt. „Kókómjólkin er sann-
arlega ein af okkar allra sterkustu vörum, en ár-
angur Súkkulaðimjólkur er athyglisverður. Það
er eins og fólk hafi verið að bíða eftir ferskri slíkri
mjólk,“ segir Björn.
Að lokum benda
Björn og Ólaf-
ur á að góðan
á r a n g u r í
vöruþróun
hjá MS sé
ek k i síst
að þakka
öflugu
fagfólki á
öllum starfs-
töðvum f yrir-
tæk isins. Enn
fremur séu eig-
endu r f y r i r tæk-
isins, sem eru kúa-
bændur í landinu, allt-
af mjög áhugasamir um
vöruþróun og nýjung-
ar og styðji vel við bakið
á starfsfólki fyrirtækis-
ins þegar kemur að fjár-
festingum í nýsköpun og
vöruþróun.
Á hverju ári markaðssetur Mjólkursamsalan fjölda nýjunga sem yfirleitt er
vel tekið af neytendum, enda reynir Mjólkursamsalan ávallt að mæta óskum
neytenda um hollar og góðar vörur. Að sögn Björns S. Gunnarssonar,
vöruþróunarstjóra MS, fær fyrirtækið oft hugmyndir um nýjungar frá
neytendum, en einnig sækir fyrirtækið hugmyndir til útlanda og til
hugarflugs innanhúss.
Björn S. Gunnarsson, vöruþróunarstjóri MS, og Ólafur Unnarsson, matvælafræðingur í vöruþróun MS. MYND/ANTON
MS - leiðandi í ný-
sköpun og vöruþróun