Fréttablaðið - 15.06.2013, Side 86

Fréttablaðið - 15.06.2013, Side 86
15. júní 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 46TÍMAMÓT Elskulegur stjúpfaðir minn, afi okkar og bróðir, JÓN KLEMENZ JÓHANNESSON lyfjafræðingur, áður til heimilis að Stóragerði 28, Reykjavík, sem lést á Droplaugarstöðum mánudaginn 10. júní, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. júní kl. 15.00. Elín Davíðsdóttir Bergljót Gyða Guðmundsdóttir Kolbrún María Guðmundsdóttir Kristján Páll Guðmundsson Óskar Gíslason og systkini hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför INGÓLFS BJARNASONAR frá Hlemmiskeiði. Ómar Örn Ingólfsson Rósa Guðný Bragadóttir Inga Birna Ingólfsdóttir Árni Svavarsson afa- og langafabörn. Elskuleg tengdamóðir, amma og móðursystir, KRISTJANA GUÐMUNDSDÓTTIR Knoxville í Tennessee í Bandaríkjunum, lést í Knoxville 29. maí 2013. Útför hennar hefur farið fram í Knoxville. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sue Jónsson Erik Jónsson Bailey Jónsson Austin Jónsson Guðrún Nikulásdóttir Hjartkær eiginmaður minn, sonur, faðir, fóstri, tengdasonur, tengdafaðir, bróðir og afi, BALDUR ÞÓRHALLUR JÓNASSON frá Árholti, Húsavík, til heimilis að Furugerði 17, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju miðvikudaginn 19. júní kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Nýja rödd stuðningsfélag rknr. 0130-15-370814 kt. 530298-2649. Margrét G. Einarsdóttir Hulda Þórhallsdóttir Þórhallur Baldursson Hulda Jónsdóttir Sigurjón Baldursson Sigurrós Yrja Jónsdóttir Einar Baldursson Einar Ólafur Guðmundsson Sigrún Erna Guðjónsdóttir Erla Guðmundsdóttir Guðbjörg Guðjónsdóttir systkini og barnabörn hins látna. Sími 551 3485, svar ða allan sólarh ir nginn. www. du o.is Hinrik Davíð Jóhanna Óli Pétur Ástkær faðir okkar, SIGURBERG ÞÓRARINSSON lést laugardaginn 8. júní að heimili sínu. Útförin fer fram í Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 18. júní klukkan 13.00. Björn Ævar Sigurbergsson Aðalheiður Sigtryggsdóttir Jóhann Snorri Sigurbergsson Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir Katrín Sigurbergsdóttir Hallgrímur Óskarsson Okkar ástkæri THEODÓR JÓNASSON skósmíðameistari, lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 10. júní. Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 18. júní kl. 13.00. Lára Dagbjört Sigurðardóttir börn, tengdabörn, barnabörn, langafabörn og fjölskyldur. „Fyrst og fremst eru þessar búðir hugsaðar með þarf- ir barnanna í huga og einstaklingurinn á að njóta sín,“ segir Vilmundur Gíslason, framkvæmdastjóri Styrktarfélags lam- aðra og fatlaðra sem rekur sumarbúðirn- ar í Reykjadal. Búðirnar fagna nú 50 ára afmæli en meginmarkmið sumarbúðanna er að þau börn sem ekki geta sótt aðrar sumarbúðir vegna fötlunar hafi kost á sumardvöl, þar sem þau geta notið lífsins á eigin forsendum. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, sem fagnaði 60 ára afmæli í fyrra, keypti Reykjadal árið 1963 og kom þar upp sumarbúðum. Fyrst um sinn voru bæði fötluð og ófötluð börn í búðunum og dvöldu sum hver sumar- langt. „Þá voru um 30 börn í búðunum og þau fötluðu voru fyrst og fremst hreyfihömluð,“ segir Vilmundur. „Nú koma til okkar um 200 börn á ári alls staðar af landinu og eru í eina til tvær vikur; 160 í sumardvöl og 40 í vetrar- dvöl. Hópurinn er miklu fjölbreyttari en hann var, við erum að sinna allri flórunni: þeim sem eru með mikla hreyfihömlun, einhverfum, blindum – það er allur skalinn. Við aðlögum starfsemina einfaldlega eftir þörf- um þannig að sumarbúðirnar eru í sífelldri þróun.“ Vilmundur bendir á að með árunum hafi samfélagið breyst og þarfirnar með. „Flestir krakkar eru komnir í almenna grunnskóla og það er meira í boði fyrir krakka sem þurfa á minni þjónustu að halda. En fyrir vikið er Reykjadalur jafnvel enn mikilvægari. Eitt foreldri sagði til dæmis við mig að nú þegar flest börn eru komin í almennan skóla, þá hitta þau í Reykja- dal félaga af ólíkum stöðum á landinu sem glíma kannski við sömu fötlun. Það er mjög mikilvægt að vera meðal jafninga, sem deila sömu reynslu og hérna hafa myndast traust vinabönd- in milli krakka í gegnum tíðina.“ En hvað á að gera í tilefni afmæl- isins? „Hinn 11. ágúst, þegar sumarstarfi lýkur, þá verður að vanda sumarhátíð í Reykjadal fyrir alla þá sem komið hafa yfir sumarið, ættingja þeirra og aðra þá sem vilja heimsækja okkur. Í ár ætlum við að tjalda öllu til og gera sumarhátíðina eins veglega og við getum.“ fben@frettabladid.is Vinaböndin treyst í Reykjadal í hálfa öld Sumarbúðirnar í Reykjadal fagna í ár 50 ára afmæli, en Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur staðið að rekstrinum frá upphafi . Yfi r 200 börn koma nú í búðirnar á ári hverju og mörg vinaböndin hafa myndast þar í gegnum tíðina. FJÖR Í REYKJADAL Fyrir 50 árum komu um 30 börn í Reykjadal, bæði fötluð og ófötluð, og dvöldu sum hver sumarlangt. Í dag sækja um 200 börn búðirnar yfir allt árið. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG VILMUNDUR GÍSLASON
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.