Fréttablaðið - 15.06.2013, Síða 40
KYNNING − AUGLÝSINGÍslensk framleiðsla LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 20134
Vörurnar frá Ora hafa fylgt Íslendingum í rúm 60 ár og eru fyrir löngu orðn-
ar órjúfanlegur hluti af matar-
hefð landsmanna. Þótt fyrir-
tækið framleiði margar klass-
ískar matvörur heldur það sífellt
áfram að þróa nýjar og spenn-
andi vörur. Um helgina koma á
markað fjórir nýir og ljúffeng-
ir fiskréttir sem Leifur Þórsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
segir að eigi vafalaust eftir að falla
landsmönnum vel í geð. „Um er
að ræða frosna fiskrétti. Bakkan-
um er einungis stungið inn í ofn í
25-30 mínútur og bragðmikill og
góður réttur er tilbúinn. Þetta er
einföld, þægileg og gómsæt lausn
fyrir landann.“ Réttirnir fjórir
eru ýsa í karríi, karfi í lime-kór-
íander, þorskur í hvítlaukspipar
og silungur í kryddblöndu. Þrem-
ur réttanna fylgja svo grjón og
grænmeti. „Þessi réttir munu fást
í öllum betri matvöruverslunum
hérlendis.“ Nýju fiskréttirnir eru
markaðssettir undir vörumerk-
inu Iceland ś Finest en Ora hyggst
markaðssetja réttina og selja er-
lendis í ár. Leifur segir fyrirtækið
ekki hafa einblínt á sölu tilbúinna
rétta áður, en stefnan sé tekin á að
vaxa mjög á því sviði næstu árin,
ekki síst með útflutningi.
Nýjar súpur og sósur
Ora hefur líka sett á markað tvær
nýjar súpur, fiskisúpu og humar-
súpu. Um er að ræða frosna vöru
og inniheldur hver pakki tvo 200
gramma poka. „Pokinn er tekinn
úr frysti og settur í sjóðandi vatn
í 10-12 mínútur. Fiski súpan inni-
heldur rækjur og fisk en humar-
súpan inniheldur dýrindis hum-
arsoð sem við framleiðum sjálf úr
humri, hvítvíni, koníaki, rjóma
og smjöri, alveg eins og á fínasta
veitingastað. Við stefnum svo að
því að setja fleiri súpur á mark-
að síðar á árinu.“ Fyrr í vetur hóf
Ora sölu á þremur tegundum af
súpum í dós sem hafa að sögn
Leifs hefur verið vel tekið. Súp-
urnar sem um ræðir eru gúllas-
súpa, mexíkósk kjúklinga-
súpa og íslensk kjötsúpa.
Í sumar geta lands-
menn einnig gætt sér á
nýrri vörulínu frá Ora sem
inniheldur þrjár tegundir af
paté. „Við seljum þrjár teg-
undir af paté undir merkj-
um Iceland ś Finest en þær
eru einnig hugsaðar til útflutn-
ings. Um er að ræða laxapaté,
silungapaté og sjávarréttapaté.
Þau innihalda engin bindiefni
eða viðbætt vatn og koma í 100
gramma glösum.“
Af öðrum nýlegum og spenn-
andi vörum frá Ora nefnir Leif-
ur köldu grillsósurnar frá Hrefnu
Sætran sem fást í fjórum skemmti-
legum bragðtegundum. Ora mun
auk þess setja fljótlega á markað
piparostasósu og kjúklingasósu
sem fara vel með ýmsu kjötmeti.
„Við settum einnig nýlega á mark-
að þrjár tegundir af þurrkrafti og
einnig röstí-kartöflur en þær koma
átta saman frosnar í pakka.
Svo eru tilbúnu réttirnar okkar
sívinsælir, til dæmis Ora kjöt-
bollur í brúnni sósu, fiskiboll-
ur í karrísósu og kjúklingaboll-
ur í drekasósu og súrsætri sósu.“
Leifur segir útf lutning skipa æ
stærri sess í rekstri Ora, þá helst á
hrogn- og fiskafurðum. „Erlendi
markaðurinn er ekki síður mikil-
vægur en sá innlendi. Íslending-
ar fá þó alltaf að njóta fyrst þeirra
nýjunga sem við setjum á mark-
að og þeir munu áfram fá að njóta
spennandi nýjunga frá okkur
næstu árin.“
Bragðgóðar nýjungar í sumar
Ora kynnir um þessar mundir fjölmargar nýjar og spennandi vörur. Ný lína af ljúffengum fiskréttum er komin í verslanir sem
fyrirtækið ætlar einnig að markaðssetja erlendis. Nýjar súpur og paté verða einnig á boðstólum í sumar auk eldri og vinsælli rétta.
Útflutningur skipar æ stærri sess í rekstri fyrirtækisins.
Leifur Þórsson, framkvæmdastjóri Ora, og Sigurður Halldórsson framleiðslustjóri með nokkrar af nýju vörum Ora. MYND/GVA
Við köllum þetta góðgresi því við vilj-um hafa áhrif á hugarfar fólks sem kallar þessar jurtir vanalega illgresi.
Þær eru nefnilega bráðhollar og bragðgóð-
ar matjurtir og eru því réttnefnt góðgresi,“
segir Viktor Pétur Hannesson, sem í vik-
unni lagði upp í ferð til Stöðvarfjarðar í fé-
lagi við Bjarka Þór Sólmundsson.
Þeir vinir kynntust í Listaháskólanum og
ákváðu að ferðast um Ísland, ganga á milli
fjalls og fjöru og gera tilraunir með íslensk-
ar jurtir í myndlist og matargerð.
„Matargerð er ein af æðstu listgreinunum
því sá sem matreiðir skapar eitthvað góm-
sætt og setur andann í efnið. Þeir sem eru
tilfinninganæmir skynja svo greinilega ef
þeim sem matreiðir líður vel því þá verður
maturinn gómsætur en líði honum illa er
hægt að skynja sorg og að ást vantar í mat-
inn,“ segir Viktor sem með Bjarka verður
með bækistöð í húsi sínu á Stöðvarfirði sem
hann nefndi Gígjukot eftir unnustu sinni.
„Við Bjarki erum báðir listamenn með
mataráhuga en Bjarki er lærður kokkur og
vanur alls kyns galdrabrögðum í eldhúsinu.
Í sumar verðum við á ferðalagi til að safna
jurtum í ljúffenga matvöru og verðum fyrir
innblæstri frá gömlum uppskriftum sem við
setjum í okkar búning.“
Þeir félagar hyggjast einnig nálgast ís-
lenskt góðgresi á myndlistarlegan hátt, taka
jurtir til hliðar og safna í sarpinn til að eiga
kjarngóðan efnivið í bók. Þeir stefna einnig
á myndlistarsýningu með markaði og veislu
í haust og leita nú að hentugu galleríi sem
vill hýsa hana.
„Við söfnum gömlum uppskriftum og
fróðleik frá fólki sem við hittum á ferðalagi
því það er nauðsynlegt að miðla honum
áfram. Kynslóðin sem áður bjó við krapp-
ari kjör og þurfi að nýta það sem landið gaf
er smám saman að hverfa svo það er nú eða
aldrei að safna saman visku þeirra á einn
stað,“ segir Viktor.
Hann segir margt hafa komið þeim
Bjarka á óvart á ferðalaginu.
„Ísland er matarkista og nóg að bíta og
brenna í náttúrunni. Mýmargt er forvitni-
legt, eins og hvernig bóndi nokkur notaði
hvönn sem rotvörn í bjúgnagerð og annar
slæddi vatn til að fá úr því lítinn silung
sem nýtist ekki til sölu en er góður og mik-
ill matur,“ nefnir Viktor sem dæmi.
Góðgresi byggir verkefni sitt að mestu á
frjálsum framlögum, hvort sem þau eru í
peningum, vöruskiptum eða vinnu. Tekið
er á móti frjálsum framlögum á www.god-
gresi.is og ef einhver lumar á uppskrift í
anda Góðgresis er fólk hvatt til að senda þær
í gegnum heimasíðuna þar sem þær verða
birtar undir nafni höfundar.
„Við Bjarki erum ekki matvandir held-
ur miklir sælkerar og forvitnir að prófa og
smakka á nýjum jurtum. Allt sem við höfum
framleitt úr íslensku góðgresi smakkast
dásamlega og við notum ekki jurtir til mat-
argerðar nema þær séu ljúffengar. Það er
ótrúlegt hvað hægt er að matreiða úr jurt-
um og þegar ástin er sett í verkið gerast allt-
af góðir hlutir.“
Hægt er að komast í tæri við Góðgresi á
bæjarhátíðum eystra í sumar og velkomið
að hafa samband og panta á godgresi.is.
Matargerð ein æðsta listgreinin
Kokkur og ferðalangur hittust í Listaháskóla Íslands. Saman ákváðu þeir að ferðast um Ísland, ganga milli fjalls og fjöru, éta það sem
úti frýs og lepja dauðann úr skel. Afraksturinn varð lostæt matvara úr náttúru Íslands og dýrmætur fróðleikur sem nýtast mun
kynslóðum framtíðar um aldir alda.
Fardagamauk er gott ofan á brauð, sem meðlæti og
ofan á pitsu. Maukið byggir á gamalli hefð þegar
vinnufólk fluttist búferlum á fardögum í sjöundu viku
sumars. Um svipað leyti byrjar njólinn að spretta en
áður var hann kallaður fardagakál og fluttur inn sem
bjargvættur gegn skyrbjúg. MYND/BJARKI ÞÓR SÓLMUNDSSON
Bjarki og Viktor á Fardagafögnuði sem þeir héldu á nýliðnum fardögum. Í sumar skipuleggur Viktor hátíðina
Polar í samstarfi við Maður er manns gaman á Stöðvarfirði helgina 12.-14. júlí. Þeir félagar munu svo ferðast um
Austfirði og halda markaði á bæjarhátíðum. MYND/GÍGJA SARA H. BJÖRNSSON