Fréttablaðið - 15.06.2013, Síða 42
FÓLK|HELGIN
höfundar, eru nú fimmtán mán-
aða. Fyrir átti Katrín son sem nú
er fjórtán ára og Bjarni son sem
er þrettán ára.
„Að vera mamma er það besta
sem ég veit og nú algjört ævin-
týri að sjá stóra strákinn minn
vaxa úr grasi. Ég er því ótrúlega
rík og mikið stuð á heimilinu,“
segir Katrín kát.
Hún segist hafa verið tilbúin
að fara aftur til ráðherrastarfa
eftir fæðingarorlof með tvíbur-
unum.
„Ég hafði áður verið þingmað-
ur og einstæð móðir í ellefu ár og
þekkti vel að púsla þeim tveimur
hlutverkum saman. Munurinn í
dag er sá að nú á ég æðislegan
mann sem er súperpabbi og
frábær fjölskyldufaðir. Því fékk ég
aldrei samviskubit né leið illa yfir
því að vinna frá tvíburunum svo
ungum því þeir voru með pabba
sínum og höfðu það óskaplega
gott, alltaf kátir og sælir. Ég hafði
því yfir engu að kvarta.“
Um helgar hefur fjölskyldan
yndi af gestakomum í bröns og
svo verður einnig nú um helgina.
„Ég byrjaði helgina á að bjóða
stóra stráknum mínum í bíó og
svo eru nokkrar bíómyndir sem
maðurinn minn hefur beðið eftir
að ég hefði tíma og orku í að
horfa á með honum. Það verður
því kósíkvöld heima í kvöld; ég
baka pitsu og strákarnir velja
myndina.“
Á þjóðhátíðardaginn ætlar
Katrín að venju með fjölskylduna
á Rútstún í Kópavogi. „Þar tek ég
þátt í hátíðahöldunum og þótt
dagskráin sé góð er ómissandi
hluti af 17. júní að rekast á gamla
vini og kunningja á túninu.“
NÝTT HLUTVERK Á ALÞINGI
Árið 2004 fékk Katrín bláæða-
tappa utan á smáheilann sem er
óvenjuleg útgáfa af heilaáfalli.
„Það tók mig dálítinn tíma að
ná mér að fullu en ég fékk græna
ljósið og var fullhlaðin rúmu ári
seinna. Í dag bendir ekkert til
þess að þetta geti gerst aftur en
þegar ég gekk með tvíburana var
ég á blóðþynningarlyfjum í var-
úðarskyni. Fyrir góðan málstað,
eins og að ganga með tvö börn,
var ég vitaskuld til í að nota slík
varúðartæki,“ segir Katrín.
Með nýrri ríkisstjórn er Katrín
sest í sæti stjórnarandstöðuþing-
manns og kveðst líka það vel.
„Breytingar fara alltaf vel í mig.
Hlutverk stjórnarandstöðuþing-
mannsins er líka mikilvægt; að
veita aðhald, spyrja spurninga og
leggja góðum málum lið. Ég mun
auðvitað fylgjast grannt með
málum og er nú skilningsríkari og
með dýpri þekkingu á ákveðnum
málaflokkum sem gerir mig að
enn betri stjórnarandstöðuþing-
manni,“ segir Katrín.
Hún segist munu sakna góðra
félaga sem hættu eða náðu ekki á
þing í síðustu kosningum.
„Svona er nú pólitíkin og
svona á hún að vera; flokkar eiga
að stækka og minnka og þurfa
að vinna fyrir atkvæðum sínum.
Mér þótti erfitt að hverfa frá
verkefnum og fyrstu dagana voru
sum mál mér afar hugleikin sem
ég vildi koma í betra var. En svo
andar maður í kviðinn og sleppir
og það verður allt í lagi. Stjórn-
málamenn eru upp til hópa gott
fólk og það á einnig við um þá
sem koma á eftir.“
Katrín segist aldrei hafa
dreymt um að verða alþingis-
maður.
„Ég hafði allt aðrar hugmyndir
um líf mitt og er enn aðeins 38
ára, svo ekki er öll nótt úti um
starfsframa annars staðar. Ég ætl-
aði að verða atvinnuspretthlaup-
ari yfir í að verða skóhönnuður
yfir í að verða framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna. Mannrétt-
indi og alþjóðamál hafa heillað
mig lengi og ég sé fyrir mér að
starfa þar í framtíðinni. Sem barn
átti ég draum um að leggja mitt
af mörkum til betri veraldar og
ég ætla mér svo sannarlega ekki
að gefa þann draum upp á bát-
inn.“ ■ thordis@365.is
HAMINGJUSÖM
Katrín segist
hafa farið sátt til
annasamra starfa
eftir fæðingarorlof
með tvíburunum
því þeir hafi verið í
góðum og traustum
höndum föður síns.
MYND/STEFÁN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Þegar tvíburarnir fæddust sögðu strákarnir mínir heima að loks væri komið
jafnvægi á heimilið því þeir þyrftu
að vera fjórir á móti mér einni!
Ég vona að þeir hafi verið að
grínast,“ segir Katrín og skellir
upp úr.
„Ég skal viðurkenna það hér og
nú, og af því að sagt er að vont sé
að vera í afneitun, að ég er afar
stjórnsöm heima fyrir. Fólkið mitt
lætur sig hafa það því ég er ekki
ósanngjörn en mér þykir þægilegt
að hafa hlutina eftir mínu höfði.
Væru mínir menn spurðir um
helstu galla mína væri það eflaust
hversu mikið ég gef þeim af góð-
um ráðum. Ég er meðvituð um
þetta en hef alltaf verið svona,“
segir Katrín þegar hún er spurð
hvort yfirsýn og stjórnunarhæfi-
leikar hennar sem fyrrverandi
ráðherra sýni sig líka heima.
„Ég vil alltaf hafa heimilið í röð
og reglu og þvottinn samanbrot-
inn. Það var því stundum óþægi-
legt að vera í annasömu embætti
með lítil börn á heimilinu og geta
ekkert gert í málunum. Þegar
tími gefst vil ég frekar nota hann
með börnunum en að vera á kafi í
þvottinum.“
ELSKAR AÐ VERA HÚSMÓÐIR
Þótt nú standi yfir sumarþing
nýtur Katrín afslappaðri tilveru
en þegar hún var ráðherra.
„Ég fór mikið á mis við fjöl-
skyldulífið í vetur því ráðherra-
embættið er þó nokkuð anna-
samara en þingmannsins. Ég
skal því alveg játa að í önnum
embættisins og kosningabarátt-
unni í vor gekk ég ansi harkalega
nærri mér,“ segir Katrín sem fagn-
aði kærkomnum frídögum eftir
stjórnarskiptin.
„Það var yndislegt að verða
aftur hluti af venjulegu heimilislífi
og komast inn í fjölskyldurútín-
una. Þar hafði verið minna gert
ráð fyrir mér og ég kom þegar
ég gat. Mér þykir húsmóðurhlut-
verkið meiriháttar yndislegt, að fá
að hugsa um mína menn, steikja
handa þeim kjötbollur og allt það
venjulega sem við lítum á sem
sjálfsagðan hlut. Þegar tvíburarn-
ir komust til dagmömmu komst
ég svo aftur í ræktina og fékk tíma
með sjálfri mér, sem var indæll
lúxus sem ég hafði ekki getað
leyft mér lengi,” segir Katrín sæl
með lífið og tilveruna. Þegar fjöl-
skyldan kemst í sumarfrí er ætl-
unin að ferðast um landið og hafa
það gott heima.
„Ég ætla fyrst og fremst að hafa
það huggulegt með strákunum
mínum og manninum og sé fyrir
mér að vakna á morgnana og gera
það sem dagurinn býður upp á
hverju sinni. Það finnst mér alltaf
ljúfast og að fara út á róló með
litlu kallana mína sem nú eru
byrjaðir að uppgötva heiminn á
tveimur jafnfljótum.“
ALDREI MEÐ SAMVISKUBIT
Tvíburar Katrínar og eiginmanns
hennar Bjarna Bjarnasonar rit-
MAMMA LOKSINS KOMIN HEIM
STJÓRNSÖM HÚSMÓÐIR Sem óbreyttur þingmaður strýkur Katrín Júlíusdóttir nú frjálsar um höfuð en þegar hún var í erilsömu
ráðherraembætti. Hún nýtur nú fjölskyldulífsins en segist aldrei hafa haft samviskubit vegna lítillar viðveru heima í ráðherratíð.
GAMAN
„Mér þykir
húsmóður-
hlutverkið
meiriháttar
yndislegt, að fá
að hugsa um
mína menn,
steikja handa
þeim kjötboll-
ur og allt það
venjulega sem
við lítum á
sem sjálfsagð-
an hlut.“
Myndlistarráð
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
myndlistarsjóði til úthlutunar í ágúst 2013.
Upplýsingar um myndlistarsjóð, umsóknareyðublað, úthlutunarreglur
og leiðbeiningar er að finna á vefsíðu myndlistarráðs myndlistarsjodur.is
Umsóknarfrestur er til kl.17 mánudaginn 29. júlí 2013.
Veittir verða
Höfum opnað nýja hársnyrti- og rakarastofu
að Vínlandsleið 14, Grafarholti.
Bjóðum alla viðskiptavini, bæði gamla og nýja hjartanlega velkomna.
Frábær opnunartilboð á vörum og þjónustu
Tímapantanir í síma 567 6666
Hlökkum til að sjá ykkur!
Hrefna og Bára
HÁRFÍNT – VÍNLANDSLEIÐ 14 – 113 REYKJAVÍK – SÍMI 567 6666