Fréttablaðið - 15.06.2013, Blaðsíða 59
| ATVINNA |
Mojo hárgreiðslustofa Laugavegi 94
óskar eftir hárgreiðslufólki í stólaleigu.
Frábær staðsetning, tekjumöguleikar og markaðssetning,
einnig hvað ferðamenn varðar. (bílastæðahús)
Upplýsingar á mojo.mojo@outlook.com eða í síma 865-6200.
Jökulsárlón ferðaþjónusta ehf. óskar eftir að ráða
skipstjóra á hjólabáta og Zodiac-báta í sumar.
Viðkomandi þurfa að hafa skipstjórnarréttindi. Áhugasamir hafi
samband á agust@jokulsarlon.is eða í síma 868-4797 eftir kl 18.
Dýraverndarsamband Íslands leitar að
starfsmanni í 50% starf fyrir félagið
Starfið felst í almennum skrifstofustörfum og vinnu við ýmis
dýraverndarmál. Starfsmaður þarf að vera lipur í mann-
legum samskiptum, sveigjanlegur og geta unnið sjálfstætt.
Krafa er að viðkomandi hafi áhuga á velferð dýra. Æskilegt
er að viðkomandi hafi reynslu á sviði félagsmála, haldgóða
tölvukunnáttu og skipulagshæfileika. Vinnutími er að nokkru
sveigjanlegur og starfsstöð er að Grensásvegi 12a. Þyrfti að
geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist til dyravernd@dyravernd.is fyrir 30. júní nk.
·
kopavogur.is
Kópavogsbær
· Álfhólsskóli óskar eftir kennara í nýbúadeild
· Hörðuvallaskóli óskar eftir tónmenntakennara
· Hörðuvallaskóli óskar eftir stuðningsfulltrúum/
skólaliðum/starfsmönnum í dægradvöl
· Snælandsskóli óskar eftir kennara á eldra stig
· Leikskólinn Arnarsmári óskar eftir
leikskólakennara
· Leikskólinn Arnarsmári óskar eftir sérkennara
· Leikskólinn Dalur óskar eftir deildarstjóra
· Leikskólinn Núpur óskar eftir deildarstjóra
· Leikskólinn Sólhvörf óskar eftir deildarstjóra
· Leikskólinn Sólhvörf óskar eftir leikskólakennara
Fleiri störf og nánari upplýsingar er að finna á
vef Kópavogsbæjar
Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt
á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Spennandi störf
hjá Kópavogsbæ
Verkefnisstjóri
Reykjavíkurborg auglýsir lausa stöðu verkefnisstjóra á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Skrifstofa borgarstjóra og
borgarritara hefur yfirumsjón með miðlægri stoðþjónustu og samhæfingu innan stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Starfsfólk
skrifstofunnar ber ábyrgð á almennri og sérhæfðri þjónustu við borgarstjóra, annast samskipti við borgarbúa og aðra sam-
ráðs- og hagsmunaðila innan- og utanlands, annast skipulagningu viðburða ásamt því að hafa yfirumsjón með ýmsum átaks-
og þróunarverkefnum sem ganga þvert á borgarkerfið. Undir skrifstofuna heyra mannauðsmál, upplýsinga- og vefmál, hagmál,
atvinnumál og Borgarskjalasafn. Verkefnastjóri hefur umsjón með verkefnum sem stuðla að samhæfingu innan stjórnsýslu
borgarinnar auk þess að hafa umsjón með afgreiðslu erinda sem skrifstofunni berast.
Ráðhús Reykjavíkur
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni:
• Umsjón með umbóta- og þróunarverkefnum á sviði stjórn-
sýslu
• Umsjón með afgreiðslu erinda sem skrifstofunni berast
• Umsjón með verkefnum sem stuðla að samhæfðu og sam-
ræmdu vinnulagi innan stjórnsýslu Reykjavíkurborgar.
• Umsjón með einstökum verkefnum og verkþáttum á sviði
stjórnsýslu og rekstrar
• Eftirfylgd verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði lögfræði, opinberrar stjórnsýslu
eða önnur háskólamenntun er nýtist í starfi
• Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu
• Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Drifkraftur, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2013
Umsækjendum er bent að sækja um starfið á heimasíðu borgarinnar www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar um starfið veita Helga Björg Ragnarsdóttir (helga.bjorg.ragnarsdottir@reykjavik.is) og Anna Helgadóttir
(anna.helgadottir@reykjavik.is) í síma 411 1111
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Strætó bs. og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar
gefur Sigurður Gunnar verkstjóri, í síma 540-2700. Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá
og berist á netfangið gudfinna@straeto.is eða með pósti á Guðfinnu Ingjaldsdóttur, Hesthálsi 14
110 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til og með 28. júní. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Strætó bs. leitar
að bifvélavirkjum
og/eða vélvirkjum
Hæfniskröfur:
Æskilegt er að er að umsækjendur hafi lokið prófi í bifvéla- og/eða vélvirkjun
Umsækjandi þarf að búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum
Viðkomandi þarf að búa yfir þjónustulund og sýna sjálfstæði í störfum sínum
Um störfin
Strætó bs. leitar að tveimur duglegum og kraftmiklum starfsmönnum á verkstæði okkar á
Hesthálsi 14 í Reykjavík. Starfsmenn verkstæðis vinna samkvæmt vaktafyrirkomulagi en reynt
er eftir fremsta megni að samræma þarfir fyrirtækisins og starfsmanna. Verkstæðið er með
fyrsta flokks aðbúnað og leitast er við að starfsmenn kynnist sem flestum þáttum vinnunnar og
fái að njóta sín og þróast í starfi.
Við leitum annars vegar að:
Starfsmanni með reynslu
af vélaviðgerðum
Og við leitum hins vegar að:
Starfsmanni með reynslu af viðgerðum
á stórum bílum
Save the Children á Íslandi
LAUGARDAGUR 15. júní 2013 13