Fréttablaðið - 15.06.2013, Side 61
| ATVINNA |
Víðistaðakirkja í Hafnarfirði
auglýsir eftir organista/kórstjóra.
Starfssvið: Orgel- og hljóðfæraleikur við helgihald kirkjunnar,
stjórn og þjálfun kirkjukórs, umsjón með hljóðfærum, skipulag
tónlistarstarfs í kirkjunni og ráðgjöf þar að lútandi. Um er að
ræða 85% starfshlutfall.
Hæfniskröfur: Góð menntun, færni og reynsla á sviði kirkjutón-
listar og kórstjórnunar, skipulagshæfileikar og lipurð í mannleg-
um samskiptum.
Umsóknir merktar „Starfsumsókn” sendist til:
Víðistaðakirkja Pósthólf 351, 220 Hafnarfirði.
Umsóknarfrestur er til 28.júní 2013.
Viðkomandi hefði þurft að geta hafið störf í september.
Nánari upplýsingar veita Hjörleifur Þórarinsson formaður
sóknarnefndar (sími 660 3707) og séra Bragi J. Ingibergsson
(sími 894 7173 / 862 2161)
Sóknarnefnd Víðistaðakirkju
Tónlistarkennari óskast til starfa við Tónlistarskóla Vopnafjarðar.
Leitað er eftir kennara, sem kennt getur á gítar, trommur og / eða
blásturshljóðfæri.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf við upphaf næsta skólaárs.
Um er að ræða mjög spennandi starf í áhugaverðu og barnvænu
umhverfi, þar sem rík hefð er fyrir margvíslegu menningarlífi.
Laun eru skv. kjarasamningum F.Í.H.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður, Þorsteinn Steinsson,
sveitarstjóri í síma 473-1300/896-1299.
Netfang: steini@vonafjardarhreppur.is
Umsóknum skal skila á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps, Hamrahlíð
15, 690 Vopnafjörður, eigi síðar en fimmtudaginn 27. júní nk.
Sveitarstjórinn Vopnafirði
Tónlistarkennari á
Vopnafirði
LAUGARDAGUR 15. júní 2013 15