Fréttablaðið - 15.06.2013, Síða 104
15. júní 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 64
Hann er besti
handboltamaður allra
tíma og það segi ég ekki
aðeins vegna þess að ég
er Íslendingur.
Snorri Steinn Guðjónsson
SPORT
Sunnudag 16. júní kl. 20:00
STJARNAN – KEFLAVÍK
Allir á völlinn!
– Ársmiðar seldir
í Stjörnuheimilinu
fyrir leik –
PEPSIDEILDIN
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í
handknattleik mætir því rúm-
enska annað kvöld í lokaleik liðs-
ins í undankeppni Evrópumótsins
sem fram fer í janúar í Danmörku.
Ísland hefur nú þegar tryggt sér
sæti í keppninni og liðinu nægir
jafntefli gegn Rúmenum til að
tryggja sér sigur í riðlinum.
„Leikurinn leggst bara mjög
vel í mannskapinn,“ segir Snorri
Steinn Guðjónsson landsliðsmaður.
„Við hlökkum allir mikið til,
þetta verður bara rosaleg hátíð og
án efa frábær stemmning í höll-
inni. Gildi leiksins og mikilvægi
hans er kannski ekki aðalatriðið.
Ég held bara að við sem lið viljum
kveðja Ólaf eins og menn.“
Verðum gríðarlega einbeittir
Uppselt varð á leikinn á fimmtu-
daginn og því ljóst að bekkurinn
verður þétt setinn. Í síðasta skipti
fá landsmenn að fylgjast með
fremsta handknattleiksmanni
Íslandssögunnar á fjölum Laugar-
dalshallar.
Ísland tapaði illa 29-23 fyrir
Hvít-Rússum á miðvikudaginn og
sá liðið aldrei til sólar í leiknum.
Meiðsli lykilmanna þýðir að aðrir
þurfa að axla ábyrgð. Þeir fengu
tækifæri til að sanna sig í Minsk
en fæstir nýttu sér það.
„Við ætlum að sýna okkar rétta
andlit á sunnudaginn og eitthvað
allt annað en í Hvíta-Rússlandi.
Við erum allir gríðarlega ein-
beittir fyrir þessum leik og menn
ætla bara að njóta þess að taka
þátt í honum. Það er mikill heiður.“
Áhrif Ólafs ólýsanleg
Ólafur Stefánsson hefur unnið allt
sem hægt er að vinna með félags-
liðum sínum. Hann hefur verið
leiðtogi íslenska landsliðsins í
meira en áratug og unnið með því
silfur á Ólympíuleikunum í Peking
2008 og bronsverðlaun á Evrópu-
mótinu í Austurríki árið 2010.
„Ég þyrfti langan tíma til að
skýra út hversu mikla þýðingu
Ólafur hefur haft fyrir landsliðið
og íslenskan handknattleik. Það
er í raun ólýsanlegt hversu mikil
áhrif hann hefur haft á okkur alla
í landsliðinu. Hann hafði alltaf trú
á okkur öllum og var aldrei í nein-
um vafa um okkar getu. Það lyft-
ir manni upp á annað stig þegar
maður eins og Ólafur Stefánsson
hefur trú á manni,“ segir Snorri.
„Ég persónulega var það hepp-
inn að fá að spila tvö tímabil með
honum erlendis og hann hefur
hjálpað mér á fleiri vígstöðvum
en bara inni á handboltavellinum.“
Sá besti frá upphafi
Þótt Ólafur hafi aldrei unnið til
gullverðlauna með landsliðinu
hefur hann unnið til stærstu verð-
launa í evrópskum handbolta með
félagsliðum sínum. Fjórum sinn-
um varð hann Evrópu meistari
auk þess að verða lands meistari
í Þýskalandi, Spáni og Dan-
mörku auk Íslands. Þá varð hann
katarskur meistari með liði sínu á
dögunum.
„Fólk kannski gerir sér ekki
almennilega grein fyrir því hvað
hann hefur afrekað sem leik maður
á sínum ferli og þá hversu lengi
hann var í algjörum heimsklassa.
Hann er besti handknattleiks-
maður allra tíma og það segi ég
ekki aðeins vegna þess að ég er
Íslendingur. Samherjar mínir
erlendis eru á sama máli,“ segir
Snorri. Þegar leikstjórnandinn
er beðinn um að setja örvhentu
skyttuna á stall með fremstu
íþróttamönnum sögunnar í öðrum
íþróttagreinum segir Snorri: „Ólaf-
ur Stefánsson er Michael Jordan
handboltans og það verður líklega
aldrei neinn annar eins og hann.“
Leikur Íslands og Rúmeníu hefst
á sunnudagskvöldið klukkan 19.45.
Hann verður í beinni textalýsingu
á Vísi. stefanp@frettabladid.is
Óli er Jordan handboltans
Ólafur Stefánsson verður kvaddur í Laugardalshöllinni annað kvöld þegar Ísland mætir Rúmenum í loka-
leik undankeppni Evrópumótsins. Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins, segir Ólaf
einstakan persónuleika sem hafi hjálpað sér bæði innan sem utan vallarins. Enginn feti í fótspor hans.
KVEÐJUSTUND Ólafur Stefánsson hefur spilað 328 sinnum fyrir hönd Íslands og skorað 1.559 mörk. Hann er markahæsti leik-
maður í sögu landsliðsins og sá þriðji leikjahæsti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Manchester City staðfesti í gær ráðningu Manuels
Pellegrini í starf knattspyrnustjóra. Hann tekur við af
Roberto Mancini, sem var sagt upp í síðasta mánuði.
„Ég er hæstánægður með að fá þetta frábæra tækifæri,“
sagði hinn 59 ára Pellegrini, sem er frá Síle. „Það er skýr fram-
tíðarsýn í þessu félagi bæði innan sem utan vallarins og ég
ætla mér að leggja mitt af mörkum svo að félagið nái sínum
markmiðum.“
Brian Kidd verður áfram í þjálfaraliði félagsins en annars
tekur verður Pellegrini með sitt teymi sem starfaði með
honum hjá spænska liðinu Malaga. Pellegrini náði þar
frábærum árangri en undir hans stjórn var liðið hársbreidd
frá því að komast í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.
Hann hóf þjálfaraferilinn sinn í Suður-Ameríku áður en hann
tók við Villarreal á Spáni árið 2004. Fimm árum síðar tók hann
við Real Madrid en var rekinn eftir aðeins eitt tímabil. - esá
Pellegrini gerði þriggja ára samning
HANDBOLTI Ísland mætir heims-
og Ólympíumeisturum Noregs í
vináttulandsleik í Laugardalshöllinni
á sunnudag klukkan 16.00. Selfyss-
ingurinn Þórir Hergeirsson þjálfar
norska liðið en það hefur dvalið hér á
landi við æfingar í rúma viku.
„Aðalatriðið hjá okkur verður að
hafa gaman af því að spila gegn
besta landsliði heims. Við munum
gera okkar besta og sjá hvernig við
stöndum gagnvart þeim,“ sagði
Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari ís-
lenska liðsins.
Bæði lið verða með flesta sína
bestu menn í leiknum en Ísland
verður án þeirra Rutar Jónsdóttur,
Elísabetar Gunnarsdóttur og Guðnýjar
Jennýjar Ásmundsdóttur.
„Við mætum afslöppuð til leiks og
munum reyna að veita þeim einhverja
keppni. En að sama skapi munum við
lítið hugsa um úrslit leiksins og þá
frekar um frammistöðuna. Við mun-
um gefa fleiri leikmönnum tækifæri
en í venjulegum leik og líklegt að ein-
hver fái að spila sinn fyrsta landsleik,“
segir Ágúst, sem hvetur áhugasama
um að koma á leikinn.
„Það verður frábært að fá að sjá
þetta magnaða norska lið spila í Höll-
inni.“ - esá
Njóta þess að spila gegn besta landsliði heims
MARGFALDUR MEISTARI Þórir Her-
geirsson, þjálfari Noregs.
FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason
er í hópi tíu markahæstu
leikmanna Evrópu á nýliðnu
tímabili samkvæmt úttekt
hollenska blaðsins Voetbal
International. Hann skoraði
alls 38 mörk með Heeren veen
í Hollandi, Helsingborg
í Svíþjóð og íslenska
landsliðinu.
Þessi árangur
fleytir honum í
8.-9. sæti listans
þar sem hann er
við hlið Pólverj-
ans Roberts Lew-
andowski hjá Dort-
mund, sem hefur
verið einn eftirsóttasti fram-
herji heims og verið orðað-
ur við Bayern München og
Manchester United.
Það kemur fáum á óvart
að efstu þrír menn á listan-
um eru þeir Lionel Messi
(66 mörk), Crist-
iano Ronaldo (59)
og Zlatan Ibra-
himovic (43).
Meðal annarra
á listanum má
nefna Rada-
mel Falcao
(40) og Robin
va n Persie
(36.). - esá
Í hópi tíu markahæstu
Alfreð Finnbogason skoraði 38 mörk á tímabilinu.
ÚRSLIT
PEPSI-DEILD KVENNA
BREIÐABLIK - ÍBV 3-1
0-1 Shaneka Gordon (22.), 1-1 sjálfsmark (35.), 1-2
Rakel Hönnud. (40.), 3-1 Berglind Þorvaldsd. (83.).
ÞRÓTTUR - HK/VÍKINGUR 0-2
VALUR - FH 5-3
0-1 Heiða Dröfn Antonsdóttir (20.), 0-2 Guðrún
Björg Eggertsdóttir (30.), 1-2 Dóra María Lárus-
dóttir (31.), 2-2 Elín Metta Jensen (35.), 3-2 Svava
Rós Guðmundsdóttir (46.), 4-2 Elín Metta, víti
(53.), 3-4 Ashlee Hincks (62.), 5-3 Svava Rós (91.).
SELFOSS - STJARNAN 0-2
0-1 sjálfsmark (64.), 0-2 Harpa Þorsteinsd. (75.).
STAÐAN
Stjarnan 7 7 0 0 25-1 21
Breiðablik 7 6 0 1 19-8 18
ÍBV 7 4 1 2 22-12 13
Valur 7 3 2 2 20-11 11
Selfoss 7 3 1 3 9-10 10
Þór/KA 6 2 2 2 13-10 8
FH 7 2 2 3 14-19 8
HK/Víkingur 7 1 1 5 10-26 4
Afturelding 6 1 1 4 3-19 4
Þróttur 7 0 0 7 1-20 0
1. DEILD KARLA
HAUKAR - KA 4-2
0-1 Atli Sveinn Þórarinsson (33.), 1-1 Hafsteinn
Briem (56.), 2-1 Andri Steinn Birgisson (61.), 2-2
Hallgrímur Már Steingrímsson (72.), 3-2 Hilmar
Trausti Arnarsson, víti (82.), 4-2 Hafsteinn (90.).
TINDASTÓLL - FJÖLNIR 0-1
0-1 Guðmundur Pétursson (45.).
STAÐAN
Grindavík 6 5 0 1 19-6 15
Haukar 6 4 1 1 11-7 13
Leiknir 6 3 3 0 10-5 12
BÍ/Bolungarvík 5 4 0 1 12-12 12
Víkingur 6 3 2 1 12-8 11
Fjölnir 6 2 1 3 8-12 7
KF 5 1 3 1 8-6 6
Selfoss 5 2 0 3 8-9 6
Tindastóll 6 1 2 3 5-9 5
KA 6 1 1 4 6-12 4
Þróttur 6 1 0 5 6-11 3
Völsungur 5 0 1 4 4-12 1
BARIST Fjolla Shala og Sigríður Lára
Garðarsdóttir í baráttunni á Kópavogs-
velli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN