Fréttablaðið - 25.07.2013, Side 30
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson,
sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Vinkonurnar Anna Maggý, Marta Hlín og Margrét Unnur fengu það skemmtilega verkefni í sumar að
byrja tískublogg á vegum skapandi sumar-
starfa í Kópavogi. Bloggið heitir því undar-
lega nafni Adulescentulus, sem er latína og
merkir ungur maður, enda snýst bloggið
um ungt fólk. Það sem einkennir bloggið er
að það fjallar ekki um þær sjálfar. „Okkur
langaði ekki að vera alltaf að blogga um
okkur sjálfar. Við förum í heimsóknir, skoð-
um herbergi og tökum viðtöl við skapandi
fólk og fræðumst um hvað það er að gera.
Matarfærslur eru inni á milli og svo förum
við í bæinn og tökum myndir af götutísk-
unni,“ segir Margrét Unnur.
Það sem hefur vakið athygli eru mynda-
þættirnir sem stelpurnar gera frá grunni.
„Við reddum fötum, finnum umhverfi,
sjáum um förðun, tökum flestar myndirnar
og vinnum þær. Það tekur mestan tíma að
vinna í kringum myndatökurnar,“ útskýra
stelpurnar. Mikil vinna er lögð í hverja
einustu færslu hjá þeim, enda eru þær
í fullri vinnu við bloggið. Bloggið hefur
aðeins verið í gangi í einn og hálfan mánuð
en þrátt fyrir það fá þær fjölmargar heim-
sóknir á síðuna.
Stelpurnar leita sér að innblæstri í um-
hverfinu. „Fólkið í kringum okkur veitir
okkur mikinn innblástur. Netið gefur okkur
auðvitað líka hugmyndir og þar finnum við
jafnvel spennandi fólk sem okkur langar til
þess að taka viðtöl við,“ segir Marta.
Þær vinkonur kynntust í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð og sóttu um starfið
saman. Í haust mun þó Anna Maggý
flytja til London og vera í fjarnámi við
Fjölbraut í Breiðholti. Stelpurnar eru að
gera ótrúlega góða hluti þrátt fyrir að
vera aðeins á átjánda aldursári. „Þetta er
klárlega skemmtilegasta vinna sem við
höfum unnið við. Það er alveg frábært að
vinna hjá skapandi sumarstörfum og gera
það sem við elskum,“ segir Anna. Til þess
að skoða bloggið er hægt að fara inn á
adulescentulus.blogspot.com.
■ gunnhildur@365.is
SKAPANDI VINKONUR
MIKIL VINNA Margrét Unnur, Anna Maggý og Marta Hlín halda uppi blogginu
Adulescentulus. Þær taka viðtöl, fara í heimsóknir og margt fleira.
VINKONUR
Margrét Unnur, Anna
Maggý og Marta Hllín
halda uppi blogginu
Adulescentulus.
MYND/DANÍEL
Neonlitir hafa í orðsins fyllstu merkingu verið áberandi síðustu misseri. Þeir hressa upp á útlitið og draga margir fram augnlit og
litarhaft. Þeir passa þó ekki við öll tilefni og ekki
þykir gott að hrúga mörgum neonlitum saman.
Hér eru atriði sem er gott að hafa í huga þegar
neonlituð föt og fylgihlutir eru annars vegar.
Hvert er tilefnið? Það er ekki alltaf við-
eigandi að klæðast neonlitum. Þá ber til
dæmis að forðast við jarðarfarir, á mikil-
vægum fundum og við önnur sambæri-
leg tilefni. Neonföt henta betur sem
partý- og sumarklæðnaður.
Hvaða litur fer þér best? Neonrauður
-appelsínugulur -gulur, -grænn, -blár
eða -fjólublár? Prófaðu að bera þessa
liti við þig í næsta verslunarleiðangri
og reyndu að átta þig á hvaða litir kalla
fram það besta í þínu fari. Neonblár
undirstrikar til að mynda blá augu og
neonappelsínugulur kallar fram ljóm-
andi litarhaft.
Gættu þess að vera ekki í öllu neonlituðu
Notaðu hefðbundna liti á móti. Svart og
neonlitur fer til að mynda alltaf vel saman.
Neonlituð skyrta við svartar buxur eða öfugt
klikkar seint. Gættu þess þó að klæðast ekki neon-
litum fötum á hverjum degi. Fólk í kringum þig gæti
orðið þreytt á því og jafnvel þróað með sér höfuð-
verk við það eitt að sjá þig.
Notaðu neonlitað naglalakk og fylgihluti á móti neon-
lituðum fötunum Ef þú klæðist neongulum bleiser
getur verið flott að hafa neonrendur á skónum, bera
neonveski eða vera í neonlituðum leggings.
Vertu í rétta skapinu Það þýðir lítið að vera afundinn
og fúll í neonlitum. Þetta eru djarfir litir og mann-
eskja sem ber þá gefur til kynna að hún sé sjálfsör-
ugg, orkumikil og í ljómandi skapi.
ÞAÐ ER KÚNST AÐ
KLÆÐAST NEONLIT
LÍFSEIG TÍSKA Neonlitir geta gert mikið fyrir
útlitið. Nokkur atriði er þó gott að hafa í huga.
Sjávarréttastaðurinn Naustið opnaði á Húsavík um miðjan júní árið 2011. Þar fást eingöngu sjávarréttir og er
rík áhersla lögð á að bjóða upp á fyrsta
flokks hráefni á góðu verði. Staðurinn
er opinn yfir sumarið og hefur opnunar-
tíminn verið að lengjast í báða enda. „Nú
í sumar opnuðum við í byrjun maí og má
búast við því að staðurinn verði opinn
fram í september,“ segir Guðni Rúnar
Helgason, einn starfsmanna Naustsins.
BEINT ÚR SJÓNUM
Á matseðlinum eru meðal annars fiski-
súpa, grilluð fiskispjót, grillaður humar,
vatnasilungur, lax, fersk bláskel og
plokkfiskur. Um helgar er svo ávallt
boðið upp á ferskt sushi. Allt brauð
sem borið er fram með matnum er
bakað á staðnum.
VÍN FRÁ GUSTAVE LORENTZ
Fátt passar betur með sjávarréttum en
gott hvítvín og innan fárra daga verður
hvítvínið frá Gustave Lorentz frá Alsace
í Frakklandi fáanlegt á staðnum. „Okkur
stóð til boða að flytja þetta vín inn og þar
sem Naustið býður nú þegar upp á fyrsta
flokks fiskrétti slógum við til og ákváðum
að bjóða viðskiptavinum staðarins upp
á þetta úrvalsvín,“ segir Guðni Rúnar. „Í
upphafi munum við bjóða upp á fjórar
tegundir; eina lífræna sem heitir Pinot
Gris og er úr „Organic Evidence“-línu
framleiðandans en Gustave Lorentz fram-
leiða fjórar tegundir af lífrænum vínum.
Þá munum við bjóða upp á eina tegund
af kampavíni, Crémant D´Alsace, sem er
mest selda vín Gustave Lorentz í Evrópu.
Eins eitt „Cuvee“-vín úr Gewurtztraminer
og eitt „Reserve“-vín úr Pinot Blanc. Inn-
an tíðar bætast svo fleiri tegundir við.“
Guðni Rúnar á von á því að vínið verði
komið í hillur á Mærudögum sem hefjast
á Húsavík í vikunni.
AÐSÓKN FRAM ÚR VONUM
Naustið er að sögn Guðna Rúnars fyrst
og fremst fjölskyldufyrirtæki. Það er í
eigu Elínar Kristjánsdóttur og Ingunnar
Ástu Egilsdóttur, sem jafnframt er fram-
kvæmdastjóri staðarins. Guðni Rúnar
segir aðsóknina að staðnum hafa farið
fram úr björtustu vonum. „Við höfum
fundið fyrir vaxandi straumi ferðamanna
í sumar eins og margir aðrir í ferðaþjón-
ustu en við fáum líka miklu fleiri Íslend-
inga nú en í fyrra og þykir afskaplega
vænt um það.“
ÚRVALSFISKUR
OG GÆÐAVÍN
NAUSTIÐ KYNNIR Sjávarréttastaðurinn Naustið á Húsavík hefur slegið í
gegn. Þar fást dýrindis sjávarréttir og gæðavín.
ÚRVALSVÍN MEÐ
MATNUM
Guðni ásamt eigendun-
um Elínu Kristjánsdóttur
(til vinstri) og Ingunni
Ástu Egilsdóttur.
Naustið er til húsa
að Naustagarði 2 á
Húsavík.
• kjólar fyrir brúðkaupið 5000
• allar buxur 5000
• túnikkur, skokkar,5000
• mussur, toppar, 3000
• Skyrtur,bolir 3000
• Og margt, margt fleira....
Verðhrun á útsölu