Fréttablaðið - 25.07.2013, Side 34
Þjóðhátið FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 20132
KEMUR EKKI TIL GREINA AÐ FARA ANNAÐ
Brekkusöngurinn er orðinn órjúfanlegur hluti af Þjóð-hátíð í Eyjum. Hann er á
dagskrá á sunnudagskvöldinu en
þá safnast fólk saman í brekkunni
og syngur brekkusöng. Síðast liðin
44 ár hefur Árni Johnsen stýrt
söngnum, að undanskildu árinu
2003 þegar þingmaðurinn Róbert
Marshall hljóp í skarðið. Í ár mun
Ingólfur Þórarinsson, betur þekkt-
ur sem Ingó í Veðurguðunum, taka
við keflinu. Þetta verða mikil við-
brigði fyrir fastagesti hátíðarinnar
en þó eru margir sammála því að
það hafi verið kominn tími á breyt-
ingar.
„Ég hlakka alveg ofboðslega
mikið til. Ég er búinn að vera að
spá rosalega mikið í þetta og er
búinn að raða upp lögunum. Þetta
er svona 90 prósent tilbúið,“ segir
Ingó. Hann segist ekki finna fyrir
pressu en gera sér þó grein fyrir
því að hann sé að feta í stór og rót-
gróin fótspor. Ingó mun standa
einn á sviðinu í brekkusöngnum
en hljómsveit hans, Ingó og Veður-
guðirnir, mun troða upp á laugar-
dagskvöldinu.
Ákveðið hefur verið að stytta
brekkusönginn og verður hann
45 mínútur. „Ég er að byggja þetta
á dagskránni hans Árna en þetta
verður ferskari útgáfa. Ég mun taka
mikið af Eyjalögum, enda er þetta
hátíð Eyjamanna. Inni á milli verða
svo lög sem koma héðan og þaðan
sem allir þekkja.“
Ingó segir þetta eitt skemmti-
legasta verkefni sem hann hefur
fengið í hendurnar. „Ef þetta heppn-
ast vel vonast ég til þess að fá að gera
þetta aftur.“ Brekkusöngurinn hefst
klukkan 23.15. Þegar honum lýkur
verður kveikt á blysunum. Kveikt
er á einu blysi fyrir hvert ár sem
Þjóðhátíð hefur verið haldin. Hún
var haldin í fyrsta skipti árið 1874
sem þýðir að blysin verða 140.
Ingó tekur við keflinu af Árna
Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó í Veðurguðunum, mun stjórna brekkusöngnum í fyrsta skipti í ár. Hann tekur við af
Árna Johnsen, sem hefur stýrt honum í 44 ár. Ingó segir þetta eitt skemmtilegasta verkefni sem hann hefur fengið í hendurnar.
Ingó hlakkar ofboðslega mikið til að stýra brekkusöngnum. Hann er þegar að mestu tilbúinn með prógrammið. MYND/ARNÞÓR
Ásdís Inga Haraldsdóttir er enginn
nýgræðingur þegar kemur að
Þjóðhátíð en hún er að fara á há-
tíðina í fimmta
skipti í ár. „Það
kemur ekki til
greina að fara
annað. Eftir
að hafa farið
á Þjóðhátíð
hljómar ekkert
jafn spennandi,“
segir Ásdís Inga. Hún mætir alltaf
á fimmtudeginum og fer heim á
mánudeginum til að missa örugg-
lega ekki af neinu. „Miðana kaupi ég
líka alltaf um leið og þeir fara á sölu
í mars, enda byrjar spenningurinn
fyrir næstu Þjóðhátíð strax í lok
þeirrar seinustu.“
Spurð út í þjóðhátíðarlag þessa
árs segir hún það ekki hafa heillað
sig við fyrstu hlustun en að það
venjist vel. „Ég er viss um að það
verður magnað að heyra það sungið
í dalnum.“ Að sögn Ásdísar Ingu
standa bekkjabílarnir, blysin og
brekkusöngurinn upp úr á Þjóð-
hátíð. „Á leiðinni heim á kvöldin
notum við alltaf bekkjabílana eða
tökum leigubíl. Við leigjum íbúð sem
er í göngufæri en oftast nennum við
ekki að labba heim eftir langan dag.“
Ásdís Inga hefur alltaf farið með
stórum hópi fólks á Þjóðhátíð og
skiptist hann niður eftir gistingum.
„Við erum sex til tíu saman í húsi en
svo hittum við restina af krökkunum
á kvöldin. Það er skemmtilegast að
byrja kvöldið öll saman og vera sam-
ferða í dalinn,“ segir hún. En hefur
Ásdís einhver heillaráð handa þeim
sem ætla á Þjóðhátíð í fyrsta skipti?
„Já, ég myndi ekki gista í tjaldi, enda
aldrei hægt að vita hvernig veðrið
verður. Eins mæli ég með því að
fólk taki með sér nóg af drykkjar-
föngum.“
Bekkjabílarnir, blysin og brekkusöngurinn standa upp úr að mati Ásdísar Ingu.
Ásdís Inga
Haraldsdóttir
SUNNUDAGSMIÐINN
Brekkusöngurinn er einn af hápunktum Þjóð-
hátíðar. Þeir sem ekki treysta sér til þess að vera alla
hátíðina en vilja engu að síður taka þátt í Brekku-
söngnum geta keypt svokallaðan sunnudagsmiða
og er talsvert um að fólk geri það. Það getur til að
mynda hentað fjölskyldufólki eða þeim sem ekki
hafa tök á því að dvelja á eyjunni alla helgina.
Miðinn gildir frá klukkan tíu á sunnudeg-
inum og til að fá sem mest úr ferðinni er ráð
að taka daginn snemma. Dagskráin
hefst með léttum lögum klukkan tíu.
Klukkan 14.30 er svo barnadagskrá
á Brekku- og Tjarnarsviði þar sem
persónur úr Latabæ og Páll Óskar
stíga á stokk. Kvöldvakan hefst svo
klukkan 20.30. Meðal flytjenda í
ár eru Eyþór Ingi, Bubbi og Páll
Óskar. Brekkusöngurinn hefst
stundvíslega klukkan 23.15
og mun Ingó Veðurguð leiða
hann í fyrsta skipti. Blysin verða
svo tendruð klukkan tólf. Við tekur
Skálmöld og svo verður leikið fyrir
dansi fram á nótt.
Nánari upplýsingar er að finna á www.dalurinn.is.