Fréttablaðið - 25.07.2013, Side 36

Fréttablaðið - 25.07.2013, Side 36
Þjóðhátið FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 20134 Heimaslóð er sögu-, menningar- og náttúrufars vefur um Vestmannaeyjar. Á vefsíðunni www.heimaslod.is er að finna greinargóða lýsingu á sögu Þjóðhátíðar- innar, auk þess sem þar er að finna fjölda mynda frá hátíðinni. Hér kemur stutt brot úr sögu hátíðarinnar. Upphafið Fyrstu hátíðarhöldin í Herjólfsdal voru um miðja 19. öld þegar Pétur Bryde, eigandi Brydebúðar, tók upp á því að bjóða starfsfólki sínu þangað árlega. Fyrsta Þjóðhátíðin var hins vegar haldin sunnudaginn 2. ágúst árið 1874. Þá komu 400 manns í dalinn, reistu tjöld og hlóðu veislu- borð úr torfi og grjóti. Fánar og borðar prýddu tjöldin. Flutt var minni konungs og að því loknu var hleypt af níu fallbyssuskotum. Flutt var minni Íslands og Jóns Sigurðssonar. Þegar menn höfðu snætt og drukkið kaffi var sleg- ið upp dansleik undir berum himni sem stóð fram undir miðnætti. Eftir þetta var Þjóðhátíð haldin nokkrum sinnum, yfirleitt um miðjan ágúst. Um 1901 var komin sú regla að hátíðin hófst með kapp- róðri. Að honum loknum var gengin skrúð- ganga inn í dalinn og hann skreyttur. Flutt var minni konungs, Íslands og Vestmannaeyja og keppt í glímu, kapphlaupi og öðru. Um kvöld- ið voru kaffiveitingar og sódavatn á boðstólum í tjöldum en áfengi var ekki í boði. Frá þeirri Þjóðhátíð hefur hún verið haldin nánast óslitið. Þjóðhátíð í útlegð Þjóðhátíðin hefur ávallt verið haldin í Herjólfs- dal, nema árin 1973-1976 meðan Herjólfsdalur var þakinn vikri eftir eldgosið. Á þeim árum var hátíðarsvæðið á Breiðabakka, suður undir Stór- höfða. Þjóðhátíðin 1973 stóð aðeins eitt kvöld. Útbúið var lítið svið og danspallur og lítill varð- eldur kveiktur. Þeir sem voru í Vestmanna- eyjum mættu en það var þó einvörðungu fólk sem tók þátt í hreinsunarstörfum í bænum. Árið 1976 var Herjólfsdalur hreinsaður og tyrfður en það var mikið verk. Strax næsta ár héldu Týrarar fyrstu Þjóðhátíðina í Herjólfs- dal eftir gosið. Þór og Týr Íþróttafélögin Þór og Týr höfðu ávallt skipst á að halda Þjóðhátíðina. Þegar félögin voru sam- einuð 1996 hélt hið nýja félag Þjóð hátíðina. Teknar voru nokkrar hefðir frá báðum félögum. Flugeldasýningin og tónleikahaldið urðu um- fangsmeiri með sameiningunni líkt og aðrir þættir hátíðarhaldanna. Árið 1977 var í fyrsta sinn haldinn brekku- söngur undir stjórn Árna Johnsens. Hann var einnig kynnir á Þjóðhátíð það ár en áratugi þar á undan var það Stefán Árnason, eða Stebbi Pól, sem var kynnir. Skin og skúrir Veðrið hefur stundum leikið þjóðhátíðargesti grátt. Til dæmis fauk kringlótt veitingatjald ásamt fleiri tjöldum árið 1969. Mikinn mann- skap þurfti til að bjarga veitinga tjaldinu. Á þjóðhátíð 2002 varð veður svo vont að hátíðar- gestir leituðu skjóls í heimahúsum og íþrótta- miðstöðinni á meðan tjöld þeirra fuku í stórum stíl. Lundaholur og Skvísusund Hvítu hústjöldin setja mikinn svip á dalinn. Fyrsta hústjaldið kom til sögunnar 1908 og þá var selt í því sælgæti og gosdrykkir. Hústjöld fóru að verða áberandi um 1910. Tjöldunum er raðað upp í götur og hafa heiti gatnanna hald- ið sér í fjöldamörg ár. Þau eru: ■ Sjómannasund ■ Sigurbraut ■ Lundaholur ■ Skvísusund ■ Veltusund ■ Þórsgata ■ Týsgata ■ Ástarbraut Rótgróin hátíð í Herjólfsdal Sögu Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum má rekja til 19. aldar. Ýmsar hefðir hafa skapast í gegnum tíðina og margar lifa enn í dag. Þetta er með elstu myndum sem til eru af Þjóðhátíð. Þarna sjást meðal annars nautgripir á beit í dalnum. Myndin var tekin 1907-1908 af Lárusi Gíslasyni ljósmyndara í Eyjum. Um 1901 var komin á sú regla að hefja hátíðina á kappróðri. Fólk mætti prúðbúið á upphafsárum hátíðarinnar. Hvítu hústjöldin setja mikinn svip á dalinn. Fyrsta hús- tjaldið kom til sögunnar 1908. Þar var var ælgæti og gos. Dalurinn trekkir að. Veðrið hefur stundum leikið þjóðhátíðargesti grátt en oft hefur líka verið einmuna blíða. Tjöldunum er raðað upp í götur. Hústjöld fóru að verða áberandi um 1910. Fólk safnaðist saman í brekkunni og gerir enn. Fyrir tíma hljóðkerfanna.Það hefur löngum tíðkast að spranga í dalnum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.