Fréttablaðið - 25.07.2013, Síða 52
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
TÓNNINN
GEFINN
Kjartan Guðmundsson
Þetta hefur verið leiðindaár fyrir Morrissey kallinn. Í vikunni neyddist
hann til að aflýsa því sem eftir er af hljómleikaferðalagi sínu um Suður-
Ameríku vegna skorts á fjármagni. „Það er ekkert mál að selja miða
en samt ógerningur að flytja hljómsveit og starfslið frá F til G,“ segir í
dæmigerðri torskilinni yfirlýsingu frá gamla Smiths-söngvaranum. Áður
hafði hann hætt við nær alla aðra fyrirhugaða tónleika ársins, þar á
meðal á vesturströnd Bandaríkjanna, vegna heilsubrests af ýmsu tagi þar
sem magasár, lungnabólga og matareitrun komu meðal annars við sögu.
Þessi runa af óhöppum kemur sér einkar illa
þar sem Morrissey á sér gríðarlegan fjölda harð-
kjarna-aðdáenda meðal fólks af rómönsku bergi
brotnu. Í augum fjölda Evrópubúa er tónlist The
Smiths og Morrisseys sú „hvítasta“ sem til er og
flest sem tengist söngvaranum fyrir löngu orðið
nokkurs konar samnefnari fyrir enska lág- til
miðstéttarsíðtáningaangist. Í Mið- og Suður-
Ameríku og sér í lagi Kaliforníufylki Bandaríkj-
anna, meðal mexíkóskra innflytjendafjölskylda,
hefur þó á síðari áratugum myndast risastór
hópur fólks aðdáenda sem finnur samhljóm í
kaldhæðinni og þunglyndiskenndri textagerð-
inni, óvenjulegum söngstíl Morrisseys og jafnvel
útliti söngvarans.
Sjálfur trúði ég varla sögum af þessari aðdáun
fyrr en ég heimsótti Los Angeles fyrr í sumar
og sá með eigin augum öll auglýsingaplakötin
fyrir sérstök Morrissey-kvöld í austurhluta
borgarinnar, alla „chicano“-ana í Smiths-bol-
unum og heyrði auðþekkjanlega röddina hljóma
frá öðrum hverjum pöbb. Einhverjir hafa bent á
að innflytjendur í Bandaríkjunum kunni að meta Morrissey vegna þess að
sjálfur var söngvarinn írskur innflytjandi í Englandi og sú tilfinning smitist
milli heimsálfa. Aðrir tiltaka sterkar og dapurlegar tilfinningar í tónlist
Morrisseys og segja þær eiga greiða leið að hugum og hjörtum þeirra sem
alist hafa upp við suðurameríska og mexíkóska ranchera-tónlist.
Hver svo sem ástæðan er þá hafa margir rómanskir tekið Morrissey
upp á arma sína og gerst dyggustu stuðningsmenn hans. Árið 2002, þegar
söngvarinn var án plötusamnings og hart var í ári, lauk hann tónleikum í
Los Angeles með orðunum: „Án ykkar væri ég í tómu rugli“. Mexíkóarnir
fögnuðu vel og innilega.
El Moz afl ýsir
David Lynch - The Big Dream
Fuck Buttons - Slow Focus
The Smashing Pumpkins - The Aeroplane Flies High
Í spilaranum
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
LAGALISTINN TÓNLISTINN
18.7.2013 ➜ 24.7.2013
Sæti Flytjandi Plata
1 Capital Cities Safe And Sound
2 Olly Murs Dear Darlin‘
3 Nýdönsk Iður
4 Muse Panic Station
5 Daft Punk / Pharrell Get Lucky
6 Margaret Berger I Feed You My Love
7 Kaleo Vor í Vaglaskógi
8 Imagine Dragons Demons
9 Robin Thicke / T.I. / Pharrell Blurred Lines
10 Áhöfnin á Húna Sumardagur
Sæti Flytjandi Plata
1 Sigur Rós Kveikur
2 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music
3 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
4 Samaris Samaris
5 Ýmsir Tíminn flýgur áfram
6 Of Monsters and Men My Head Is an Animal
7 Ýmsir Einnar nætur gaman með Sigga Hlö
8 Ýmsir Acoustic Iceland
9 Ýmsir Inspired by Harpa
10 Björk Gling gló
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex
daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Pet Shop Boys er talinn happa-
sælasti dúett Bretlandseyja sam-
kvæmt Heimsmetabók Guin-
ness, enda hefur sveitin selt yfir
50 milljónir plata. Tólfta breið-
skífa hljómsveitarinnar, Elect-
ric, kom út þann 12. júlí síðast-
liðinn og hlýtur sjö í einkunn frá
vefsíðunni Pitchfork. Platan er
sú fyrsta sem gefin er út af hinu
nýstofnaða plötuútgáfufyrirtæki
X2, sem er í eigu hljómsveitar-
innar sjálfrar.
Neil Tennant, söngvari sveitar-
innar, og Chris Lowe hljóm-
borðsleikari kynntust árið 1981
og varð strax vel til vina vegna
sameigin legs áhuga þeirra á
danstónlist. Tónlistar-
samstarf þeirra hófst
skömmu síðar og tóku
þeir upp slagarana It‘s
a Sin, West End Girls og
Jealousy í litlu hljóðveri í
Camden Town. Sveitin sló
í gegn árið 1984 og hefur
verið starfrækt allar
götur síðan. Hún er þekkt
fyrir danstónlist sína og
ber nýjasta plata sveitar-
innar, Electric, kunnugleg-
an keim af þeim hljómi sem
einkenndi sveitina á upp-
hafsárum hennar.
Blaðamaður Pitchfork segir þá
Tennant og Lowe sækja innblást-
ur til tónlistarstefna á borð við
dubstep á nýju plötunni. Blaða-
maðurinn segir enn fremur að
félagarnir séu einstaklega lunknir
í að „gera popptónlist sem höfðar
til samkynhneigðra karlmanna“.
Lögin Love Is a Bourgeois Const-
ruct, Fluorescent, Vocal og The
Last to Die (sem er upprunalega
eftir Bruce Springsteen) þykja
þau bestu á plötunni. Lokalag plöt-
unnar er Vocal og fjallar lagið um
tónlist og þá tilfinningu sem hún
framkallar hjá þeim sem
hlýðir á. Í
lagatextanum segir meðal annars
I like the singer/ He’s lonely and
strange/ Every track has a vocal/
And that makes a change. Auðvelt
er að ímynda sér að Tennant eigi
þar við sjálfan sig.
Gagnrýnandi Consequence of
Sound segir Electric innihalda
pottþétt syntha-popp með þétt-
um takti og grípandi laglínum
sem mun lokka fólk fram á
dansgólfið í sumar.
- sm
Grípandi danstónlist
Pet Shop Boys gáfu út sína tólft u breiðskífu þann 12. júlí. Lögin eru sögð bera
kunnuglegan keim af þeim hljómi sem einkenndi sveitina snemma á ferlinum.
EKKI NÆRRI HÆTTIR Breski dúettinn Pet Shop Boys sendi frá sér nýja breiðskífu þann 12. júlí. Hún þykir einstaklega dansvæn
og skemmtileg. NORDICPHOTOS/GETTY
Chris Lowe sagði árið 1986 í
viðtali við Entertainment Tonight
að hann væri lítt hrifinn af
bandarískri þjóðlagatónlist. „Ég
er ekki hrifinn af þjóðlagatónlist.
Ég er ekki hrifinn af rokktónlist.
Ég er ekki hrifinn af rokkabillí
og alls ekki hrifinn af rokki og
róli. Mér líkar fátt en það sem
ég hrífst af elska ég af ástríðu,“
sagði Lowe.
Ekki hrifinn af
rokktónlist
ELECTRIC MEÐ PET SHOP BOYS