Fréttablaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 44
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst lýsing fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingar: 1. Breyting á Aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 á Holtamannaafrétti ásamt matslýsingu. Sprengisandsvegur, háspennulínur, virkjanir o.fl.Um er að ræða endurskoðun á aðalskipulagi Ásahrepps á Holtamannaafrétti sem felst í breytingu á stefnumörkun varðandi legu háspennulínu yfir Sprengisand og tengingu nýrra virkjana, legu Sprengisandsvegar auk hugmynda um nýjar virkjanir og aðkomu að þeim og breytinga á afmörkun friðlands í Þjórsárverum. 2. Breyting á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012 á spildu úr landi Kjarnolts, Bláskógabyggð. Landbúnaðarsvæði í stað frístundabyggðar. Um er að ræða breyting á aðalskipulag sem felst í að um 14 ha svæði úr landi Kjarnholts sem er í dag skilgreint sem frístundabyggð breytist í landbúnaðarsvæði. Á svæðinu er einnig í gildi deiliskipulag fyrir stórar frístundahúsalóðir. Fyrirhugað er að stofna lögbýli á hluta svæðisins sem nýtt verður til hrossaræktar auk mögulegrar ferðaþjónustu í samræmi við ákvæði aðalskipulags. Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum: 3. Deiliskipulag fyrir minkahús á spildu úr landi Ása í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Auglýst til kynningar lýsing sem unnin hefur verið skv. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna deiliskipulags fyrir minkahús á spildu sem kallast Steinkerstún athafnasvæði úr landi Ása. Skipulagssvæðið er um 4,5 ha að stærð og Liggur upp að Stóra-Núpsvegi nr. 328 suðaustan við minkabúið Mön. Gert er ráð fyrir að á spildunni megi reisa tæplega 9 þúsund fermetra mannvirki fyrir minkarækt. Samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum: 4. Tillaga að deiliskipulagi fyrir lögbýlið Yrpuholt í Flóahreppi. Íbúðarhús, gestahús, hesthús og skemma. Lögð fram til kynningar tillaga að deiliskipulagi fyrir lögbýlið Yrpuholt lnr. 166352 sem liggur upp að Villingaholtsvegi (nr. 305). Tillagan gerir ráð fyrir að á svæðinu verði heimilt að reisa 400 fm íbúðarhús, 200 fm gestahús, 300 fm hesthús og 600 fm skemmu. 5. Deiliskipulag alifuglabús í landi Miklaholtshelli, Flóahreppi. Landbúnaðarsvæði Lögð fram til kynningar tillaga að deiliskipulagi í landi Miklholtshelli lnr. 166267. Á jörðinni er í dag rekið alifuglabú og er markmið deiliskipulagsins að undirbyggja þá starfsemi með því að gera ráð fyrir byggingu nýs alifuglahúss fyrir um 15 þúsund varphænur á svæði suðaustan af bæjarhlaði, handan Ölvisholtsvegar. 6. Deiliskipulag nýs lögbýlis (Reyrhagi) úr landi Gafls í Flóahreppi. Lögð fram til kynningar tillaga að deiliskipulagi fyrir nýtt lögbýli á spildunum Gafl lóð 1 lnr. 218942 og Gafl lóð 2 lnr. 218943. Á spildu 1, sem er 15 ha og er vestan Hamarsvegar, eru tveir byggingarreitir, á reit B1 er gert ráð fyrir íbúðarhúsi, bílgeymslu og gestahús og á reit B2 er gert ráð fyrir hesthúsi, reiðhöll og tækjaskemmu. Á spildu 2, austan Hamarsvegar, er einnig byggingarreitur (B3) þar sem gert er ráð fyrir hesthúsi, reiðhöll og tækjaskemmu. Þegar lýsing deiliskipulags var kynnt fyrr á árinu var gert ráð fyrir byggingu alifuglahúsa á landinu en nú hefur verið hætt við þær áætlanir og í staðinn gert ráð fyrir hestaaðstöðu.. Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum: 7. Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Skálabrekku við Þingvallavatn í Bláskógabyggð. Tillaga að deiliskipulagi 36 ha svæðis úr landi Skálabrekku sem liggur á milli Þingvallavatns og gamla þjóðvegarins til Þingvalla, suðvestan skipulagðrar frístundabyggðar við Skálabrekkugötu. Á svæðinu er gert ráð fyrir 21 frístundahúsalóð á bilinu 0,65 til 1,2 ha að stærð. 8. Deiliskipulag fyrir 12,5 ha spildu úr landi Hnaus í Flóahreppi. Íbúðarhús og skemma. Tillaga að deiliskipulagi fyrir 12, 5 ha spildu, Hnaus land 2 lnr. 213873, þar sem fyrirhugað er að byggja allt að 200 fm íbúðarhús, hæð og ris, ásamt bílgeymslu og allt að 300 fm skemmu. Aðkoma að spildunni er frá Þjóðvegi nr. 1 um Hnausveg nr. 3111 sem liggur að hluta í gegnum landið. Hámarksbyggingarmagn er um 500 fm. 9. Deiliskipulag frístundabyggðarinnar Grófarhöfði úr landi Stærri-Bæjar í Grímsnes- og Grafningshreppi. Tillaga að deiliskipulagi 90 ha svæðis úr landi Stærri-Bæjar, norðvestan Biskupstungnabrautar. Tillagan gerir ráð fyrir 58 á frístundahúsalóðum með aðkomu frá Biskupstungnavegi. Byggingarmagn lóða miðast við nýtingarhlutfallið 0.03, (u.þ.b. 150 fm á lóð sem er 0,5 ha að stærð). Á hverri lóð er gert ráð fyrir frístundahúsi og aukahús sem að hámarki má vera 40 fm að stærð. 10. Deiliskipulag fyrir 7 frístundahúsalóðir í landi Heiðarbæjar í Flóahreppi. Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Heiðarbæjar í fyrrum Villingaholtshreppi þar sem gert er ráð fyrir 7 frístundahúsalóðum á landi umhverfis Dælarétt en eitt sumarhús hefur þegar verið byggt á einni lóðinni. Skipulagss væðið er um 32 ha að stærð en lóðirnar sjö eru allar 2,4 ha að stærð þar sem heimilt verður að reisa allt að 120 fm frístundahús. Aðkoma að svæðinu er frá þjóðvegi nr. 1 um veg að Dælarétt. 11. Deiliskipulag 4,2 ha spildu úr landi Skógaráss lnr 204645 í Ásahreppi. Íbúðarhús, skemma/hesthús og gestahús. Tillaga að deiliskipulagi 4,2 ha spildu úr landi Skógaráss lnr. 204645 (37,5 ha í heild) þar sem gert er ráð fyrir að byggja íbúðarhús, skemmu/hesthús og gestahús.Svæðið er í aðalskipulagi skilgreint sem íbúðarsvæði og er aðkoma að landinu frá Suðurlandsvegi um Ásveg nr. 275. 12. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar, svæði 1 og 2, úr landi Búrfells 1 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Afmörkun og lega lóða. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar á svæði 1 og 2 úr landi Búrfells 1. Í breytingunni felst að verið er að lagfæra afmörkun og legu lóða, vega og sameiginlegra svæða til samræmis við þinglýsta skráningu þeirra og hnitsetningu. Skilmálar haldast óbreyttir. 13. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar við Selhól úr landi Hæðarenda, Grímsnes- og Grafningshreppi. Breyting á skilmálum til samræmis við ákvæði aðalskipulags. Tillaga að breytingu á skilmálum frístundabyggðar við Selhól úr landi Hæðarenda til samræmis við stefnumörkun sem fram kemur í greinargerð gildandi aðalskipulags. Samkvæmt gildandi skilmálum er heimilt að reisa allt að 120 fm frístundahús á hverri lóð en breytingin felur í sér að byggingarmagn lóða miðast við hámarksnýtingarhlutfall upp á 0.03, eða 3% af stærð lóðar. Á hverri lóð verður heimilt að reisa frístundahús auk aukhúss sem að hámarki má vera 40 fm. 14. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi. Þakhalli. Tillaga að breytingu á skilmálum frístundabyggðar í landi Ásgarðs sem nær yfir Freyju-, Herjólfs-, Óðins- og hluta Þórsstígs, hluta Ásabrautar og Ferju-, Mána-, Suður- og Sunnubakka. Í breytingunni felst að þakhalli frístundahúsa má vera á bilinu 0- 45 gráður í stað 15- 45 gráður. Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu viðkomandi sveitarstjórna og á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast tillögurnar sjálfar á http://www.granni.is/uppsveitirogfloahr/auglysingar.htm. Skipulagstillögur nr. 1 til 6 eru í kynningu frá 22. ágúst til 6.september 2013 en tillögur nr. 7 til 14 eru í kynningu frá 22. ágúst til 4. október 2013. Athugasemdir og ábendingar við tillögur nr. 1 til 6 þurfa að berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 6. september 2013 en 4. október fyrir tillögur nr. 7 - Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar. Pétur Ingi Haraldsson Skipulagsfulltrúi petur@sudurland.is Auglýsing Um tillögu að deiliskipulagi Sundhallar- og Sandvíkursetursreits á Selfossi Samkvæmt 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. auglýsir bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar tillögu að deiliskipu- lagi Sundhallar- og Sandvíkursetursreits á Selfossi í Sveitarfélaginu Árborg. Deiliskipulagstillagan tekur til 5.7 ha svæðis innan þétt- býliskjarna Selfoss. Reiturinn er L-laga og nær frá Austur- vegi niður að Engjavegi og milli gatnanna Tryggvagötu, Bankavegar, Sólvalla og Reynivalla. Innan reitsins eru 6 stofnanalóðir, auk Tryggvagarðs nyrst á reitnum. Stofnana- lóðirnar eru Sandvíkursetur, Sundhöll Selfoss, Valhöll, Bifröst, Vallaskóli-Sólvellir og leikskólinn Álfheimar.Áform um stækkun Sundhallarinnar og breytt starfsemi Sand- víkurskóla, er megin ástæða þess að nú er unnið deiliskipu- lag fyrir reitinn. Teikning ásamt greinargerð og skilmálum, vegna tillögunn- ar mun liggja frammi á skrifstofu skipulag – og byggingar- fulltrúa að Austurvegi 67 Selfossi frá og með fimmtu- deginum 22. ágúst 2013 til og með fimmtudeginum 3. október 2013. Öllum er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillög- una. Frestur til að skila athugasemdum rennur út 3. október 2013 og skal þeim skilað skriflega til skipulags og byggingarfulltrúa á skrifstofu hans að Austurvegi 67 , 800 Selfossi. Á sama tíma er teikning, greinagerð og skilmálar til kynn- ingar á heimasíðu Árborgar http://www.arborg.is þar sem hægt er að skoða tillöguna og senda athugasemdir til skipulags og – byggingarfulltrúa í netfangið bardur@arborg.is Bárður Guðmundsson skipulags- og byggingafulltrúi Opið hús Dalatangi 11. Mosfellsbæ í dag . kl. 17.30 til 18.00 Mjög vel staðsett 86,6 fm. raðhús í grónu og skjólsælu hverfi í Mosfellsbæ. Anddyri með flísum. Gangur með parketi. Tvö herbergi með parketi og skápum. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Sturtuklefi. Geymsla með hillum. Björt og rúmgóð stofa gengið út á pall. Allt parket á eigninni er úr hlyn. Tré og runnar í garði. Eldhúsið er með flísum, innréttingu. Þvottahús. Geymsluloft yfir. Útidyrahurðir eru nýjar. Sölumaður Berg, Pétur tekur á móti gestum. Háholt 14, Mosfellsbær Sími: 588 5530 • berg@berg.is www.berg.is • GSM 897 0047 Pétur Pétursson lögg. fasteignasali Petur@berg.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.