Fréttablaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 20
22. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FERÐIR | 20 Hjólreiðar eiga sífellt meiri vinsældum að fagna hér á landi. Albert Jakobsson, formaður Hjólreiðafélags Reykjavíkur, hefur séð manna skýrast ummerki þess. „Þegar ég byrjaði fyrir 25 árum var maður feginn ef tókst að fá tíu manns til keppni,“ segir hann. „Nú er nýafstaðin Bláalónsþrautin, sem er mikil hjólreiða- keppni, og keppendur voru 530. Ég hefði aldrei trúað þessu.“ Hjólreiðar eru einnig upplagður ferða- máti þar sem útivist og hreyfing eru með í för. Fréttablaðið ákvað að fá Albert til liðs við sig til að lýsa nokkrum tilvöldum hjóla- leiðum í nálægð við höfuðborgarsvæðið. 1. Heiðmörk Þessi leið hefur þann kost að hægt er að hjóla frá hlaði heima og láta bílinn alveg eiga sig. Þeir sem búa nær vesturbæ Reykjavíkur geta farið frá Ægissíðu, hjólað áleiðis í Fossvog svo eftir Elliðaár- dalnum í Norðlingaholt og farið svo eftir stígnum í Heiðmörk. Þeir sem búa austar í borginni geta farið Suðurlandsbrautina og að Knarrarvogi sem er gengt Geirs- nefi og farið inn Elliðaárdalinn þar. Þeir sem búa í Garðabæ eða Hafnarfirði geta komist að Heiðmörkinni frá Vífilsstaða- hlíð, skammt frá IKEA. Albert segir þessa leið henta öllum hópum hjólreiðafólks. Þeir eru margir staðirnir í Heiðmörk þar sem freistandi er að staldra við og rífa í sig nesti. Tími: 3-4 klukkustundir. 2. Djúpavatnsleið Ekin er Krísuvíkurleið frá Hafnarfjarðar- hrauni í áttina til Grindavíkur en bílnum svo lagt við Vatnsskarð áður en komið er að Kleifarvatni. Þar kvíslast vegurinn. Bílnum er lagt og hjóluð Djúpavatnsleið en hún liggur að Djúpavatni. Svo er hjólað áfram að Vigdísarvöllum og aftur til baka. Kosturinn við þessa leið er að þar er engin umferð og Albert segir að útlendingar sem hann fór með þessa leið fyrir nokkru hafi vart haldið vatni af hrifningu. Hægt er að leyfa sér að afvegaleiðast í margar skemmtilegar gönguleiðir á leiðinni. Tími: 2 til 3 klukkustundir. 3. Hvalfjörður Hvalfjörðurinn lætur lítið yfir sér að mati Alberts fyrstu kílómetrana. Því mælir hann með því að farið sé á sjálf- rennireiðinni að Félagsheimilinu Dreng. Þar sé upplagt að leggja og bregða sér á hjólið. Kostur inn við þessa leið er sá að víða er hægt að bregða sér af leið og kynnast leyndardómum fjarðarins sem vegfarendur á þjóðveginum fara á mis við. Það er algjör óþarfi að minnast á fegurðina við Glym hafi menn fyrir því að komast að honum. Hvalfjörðurinn er býsna langur svo menn skyldu hafa í huga hvenær þeir vilja snúa við en eins og gefur að skilja er ekki heigl- um hent að komast í gegnum göngin á hjóli. Mátulegt væri að fara frá Dreng inn í botn og til baka. Vilji menn hins vegar loka hringnum má taka strætó Akranesmegin yfir fjörðinn. Ekki galin hugmynd. Tími: 3 klukkustundir. Að fara allan fjörðinn tekur hins vegar mun meiri tíma. 4. Þingvellir Ef menn vilja fara á bílnum alla leið að Þingvöllum þá er upplagt að bregða sér á hjólið við þjónustumiðstöðina og hjóla áleiðis að Öxarárfossi og að Valhöll. Síðan er hjólað meðfram vatninu að Vatnskoti, en þar má líta tóftir af síðasta sveitabænum á Þingvöllum. Þegar komið er að Vatnsvík er mátulegt að halda til baka. Það er ekki amalegt að hjóla í þjóðgarði. Tími: 2 til 3 klukkustundir. Dagsferðir á hjóli í grennd við borgina Nú þegar skólar eru að hefjast og sumarfrí afstaðin er upplagt að gleyma sér á ferð í fangi náttúrunnar en skila sér svo heim fyrir háttinn. Á hjólinu er hægt að ferðast til staða í grenndinni sem virðast þó framandi þegar grannt er skoðað. VINSÆLDIR HJÓLREIÐA AUKAST Sífellt fleiri hjóla í frístundum og margar skemmtilegar hjóla- leiðir eru í nálægð við höfuðborgina. Sveitasæla í Skagafirði laugardaginn 24. ágúst 2013 Sveitasælan, sem er landbúnaðarsýning og bændahátíð, verður haldin í og við reiðhöllina Svaðastaði á Sauðárkróki, laugardaginn 24. ágúst 2013. Þar koma bændur og búalið saman til skrafs og skemmtunar. Handverksfólk og seljendur vinnuvéla munu vissulega nýta tækifærið og sýna það sem upp á er að bjóða í sínu fagi. Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mun ekki láta sig vanta. Þegar dagur er að kvöldi kominn verður að sjálfsögðu haldin kvöldvaka að sveitasið. Bændur munu þar reyna með sér í hinu svokallaða Bændafitness sem felst í því að komast yfir þrautabraut á góðum tíma. Allir vita af dálætinu sem Sigurður Pálsson rithöfundur hefur af Parísarborg en Frétta- blaðinu lék forvitni á að vita hvar hann kynni best við sig hér á landi. Það stóð ekki á svari þegar spurningin var borin undir hann. „Í Ásbyrgi,“ svarar hann að bragði. Það lá því beinast við að spyrja skáldið hvort það hafi ort í eða um Ásbyrgi. „Já og nei,“ svarar hann. „Í rauninni sáralítið. Ásbyrgi er svo ótrúlega magnaður staður að það er erfitt að gera grein fyrir honum í ljóði.“ Mörgum kann að þykja skáldið leiða okkur langt en eflaust er það barnið í honum sem er að færa sig nær æsku stöðvum. Sigurður bjó nefnilega til táningsaldurs á Skinnastað sem er steinsnar frá Ásbyrgi. En hvenær fór hann síðast í þennan magnaða stað? „Það var í lok júní en þá var haldið upp á 40 ára afmæli Þjóðgarðsins. Þá fór ég með fríðan hóp í ljóðagöngu innst inn í Ásbyrgi. Hafði ég viðdvöl á þremur stöðum og fór með ljóð. Það var mikill fjöldi þarna, ætli það hafi ekki verið hundrað manns í göngunni.“ Það er ekki oft sem slíkur fjöldi hlýðir á ljóðalestur nú til dags. UPPÁHALDSSTAÐURINN MINN Á ÍSLANDI ÁSBYRGI VIÐ DJÚPAVATN Hjólað er frá Vatnsskarði. ÞVÍ EKKI AÐ LEGGJA LAND UNDIR HJÓL? Það eru leyndar- dómar víða í grenndinni sem fara fram hjá vegfarendum sem þeysast á bílum en fanga augu hjólreiðafólks. SIGURÐUR PÁLSSON Staðurinn skákar sjálfum skáldskapnum LOKADAGAR LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK / SKEIFAN 11 VERSLANIR UM LAND ALLT 1 2 3 4 ➜ Hér eru fjórar skemmtilegar leiðir, á Suð- vesturhorninu, fyrir áhugafólk um hjólreiðar. HÁTÍÐIR HELGARINNAR VEÐUR Föstudagur 10-18°C HLÝJAST FYRIR NORÐAN Víða rigning og jafnvel talsverð SA-til. Austlæg átt en snýst í vestan 8-13 S-til og dregur úr rigningu þar um kvöldið. Kjalvegur er orðinn grófur og laskaður eftir sumarumferðina. Vegagerðin ráðleggur fólki á minni bílum frá því að láta á þá færð reyna. Nánari upplýsingar vegagerdin.is eða 1777. Laugardagur 6-11°C ALLT AÐ 16 STIGUM A-TIL Norðvestan og vestan 8-10 m/s og dálítil væta með köflum, en suðvestan 10- 13 og bjartviðri SA-til. Sunnudagur 8-13°C BREYTILEGAR ÁTTIR Vestlæg eða breytileg átt og skúrir eða dálítil rigning. HÁLENDIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.