Fréttablaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 66
22. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50 FÓTBOLTI Miðvörðurinn Sölvi Geir Ottesen gekk í raðir rússneska úrvalsdeildarliðsins FC Ural í byrjun þessara mánaðar og skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Landsliðsmaðurinn hefur verið á mála hjá FC Kaupmannahöfn í Danmörku undanfarin ár en yfirgaf liðið í sumar. Síðastliðið ár hefur verið erfitt fyrir leikmann- inn þar sem hann fékk lítið sem ekkert að spila með FCK. Mikill uppgangur er hjá FC Ural, sem tryggði sér í fyrra sæti á meðal þeirra bestu í Rússlandi. „Rússland leggst bara vel í mig,“ segir Sölvi í samtali við Frétta- blaðið. „Mín fyrstu kynni af landinu hafa bara verið frábær og mun betri en ég þorði að vona. Ég bý í stórborg sem hefur allt fram að færa. Fólk hefur eflaust ákveðnar skoðanir á Rússlandi en ég tel að sú ímynd sem landið hefur í huga hins almenna Íslendings sé ekki alveg rétt. Sjálfur hafði ég myndað mér ákveðna skoðun á þeirra menningu og siðum en ég var fljótur að átta mig á því að það átti ekki við nein rök að styðjast,“ segir Sölvi. Hann býr í borginni Yeka- terinburg en í henni búa um 1,4 milljónir manns. Borgin er yfir fimm þúsund kílómetrum frá Moskvu, höfuðborg Rússlands. „Það þýðir ekkert annað en að vera jákvæður á svona breytingar. Ég er búinn að taka þessa ákvörðun og verð því að standa og falla með henni. Ég hlakka mikið til að byrja loksins að spila fótbolta af krafti.“ Með einkabílstjóra Félagið réð einkabílstjóra til að aðstoða Sölva við að koma sér á milli staða í borginni en það virðist vera venjan í Rússlandi. „Þeir vilja meina að Evrópubúar eigi nokkuð erfitt með að keyra. Rússar fara kannski ekkert mikið eftir einhverjum umferðarreglum, nema þetta séu þeirra reglur. Þeir eru frekar ákveðnir í umferð- inni en eftir að hafa farið á milli staða með bílstjóranum mínum þá treysti ég mér alveg í það að fara að keyra um borgina.“ Fyrrverandi þjálfari FC Ural, Pavel Panteleyevich Gusev, hætti störfum hjá liðinu sama dag og Sölvi skrifaði undir samning við félagið. Það voru persónulegar ástæður sem ollu því að Gusev hætti með liðið. Oleg Vasilenko tók síðan við liðinu en hann hefur verið aðstoðarþjálfari FC Ural um þó nokkurt skeið. „Í raun var löngu búið að ákveða að hann myndi stíga til hliðar og ég vissi vel að fráfarandi stjóri myndi ekki stýra liðinu þegar ég kæmi. Ég hafði aldrei rætt við neinn stjóra þegar ég skrifaði undir hjá félaginu. Það tala fáir ensku í Rússlandi og í raun talaði minn umboðsmaður við umboðs- mann í Rússlandi og þannig fór þetta fram í mínu tilfelli.“ Lítil enskukunnátta Í liðinu eru tveir Serbar, tveir frá Armeníu, einn frá Simbabve og einn frá Ísrael, ásamt leikmönnum frá Rússlandi. Enskukunnátta leik- manna liðsins er því ekki upp á marga fiska. „Við erum þrír í liðinu sem tölum ekki rússnesku og því er alltaf túlkur með okkur á æfingum sem segir okkur hvað þjálfarinn er að segja. Túlkurinn er klæddur í íþróttagalla og hleypur strax inn á völlinn þegar þjálfari vill ræða við leikmenn, hann er einnig alltaf til taks þegar þjálfarinn þarf að ræða við okkur.“ Það vantar enn þá töluvert upp á leikæfingu hjá Sölva Geir en hann hefur lítið spilað alvöru keppnis- leiki undanfarið ár. „Ég þarf auð- vitað að leggja hart að mér og sanna mig á æfingum en það labbar enginn bara inn í þetta lið. Ég býst samt sem áður fastlega við því að vera settur fljótlega í byrjunarliðið þegar ég verð kominn í almennilegt form.“ FC Ural er í tólfta sæti rúss- nesku úrvalsdeildarinnar með fjögur stig eftir fjórar umferðir. Liðið hefur unnið einn leik og gert eitt jafntefli. stefanp@frettabladid.is Rússar fara kannski ekkert mikið eftir umferðarreglum. Sölvi Geir Ottesen Túlkurinn eltir mig á æfi ngu Landsliðsmaðurinn Sölvi Geir Ottesen samdi á dögunum við rússneskt úrvaldeildarlið og er hann því fyrsti íslenski leikmaðurinn í sögunni sem spilar með félagi frá Rússlandi. Leikmaðurinn er með einkabílstjóra á sínum snærum og túlk sem eltir hann eins og skugginn á æfi ngum með FC Ural. NÝ ÁSKORUN Sölvi Geir verður í eldlínunni í rússneska boltanum í vetur en leikmaðurinn setur stefnuna á að koma sér í almennilega leikæfingu. Leikmaðurinn vonast til að vera kominn í byrjunarliðið von bráðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR SPENNTUR Sölvi Geir sést hér á æfingasvæði FC Ural daginn sem leikmaðurinn skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. AÐSEND MYND Lið Leikir Mörk 2004–2008 Djurgården 35 2 2008–2010 SønderjyskE 54 6 2010–2013 Copenhagen 43 8 2013 FC Ural 0 0 ATVINNUMANNAFERILL SÖLVA FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason, leikmaður Heerenveeen, hefur ekki hafnað nýjum samningi við hollenska félagið Heerenveen eins og fullyrt var í hollenskum miðlum í gær. Sóknarmaðurinn hefur hins vegar gert félaginu gagntilboð. Heerenveen vill halda í framherjann sem er eftirsóttur hjá félögum í Evrópu. Alfreð hefur farið frábærlega af stað fyrir liðið á tímabilinu og stóð sig einstaklega vel á því síðasta. Leikmaðurinn á tvö ár eftir af samningi sínum við Heerenveen sem á við fjárhags- vanda að stríða. „Hann virðist ekki átta sig á því hvað fjárhagslegir erfiðleikar eru,“ sagði Gaston Sporre, fram- kvæmdastjóri Heerenveen, við dagblaðið Leeuwarder Courant um viðbrögð Alfreðs. - sáp Alfreð gerði gagntilboð EFTIRSÓTTUR Hættir ekki að skora fyrir Heerenveen. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Stjórn KSÍ hefur tekið ákvörðun í máli Hannesar Þórs Halldórssonar, markvarðar KR. Hann var í leikbanni í leiknum gegn Breiðablik á sunnudagskvöld en leikurinn var eins og kunnugt er flautaður af vegna höfuðmeiðsla sem Elfar Árni Aðalsteinsson, leikmaður Blika, varð fyrir eftir aðeins fjögurra mínútna leik. Sumir sparkspekingar töldu að leikmaðurinn hefði því tekið út leikbann en nú hefur sú ákvörðun verið tekin að Hannes verður í leikbanni í stórleiknum gegn FH næstkomandi sunnudag. Einnig hefur verið ákveðið að hinn frestaði leikur Breiðabliks og KR fari fram þann 19. september. „Við munum að sjálfsögðu una þessum úrskurði,“ segir Kristinn Kjærnested, formaður knatt- spyrnudeildar KR, í samtali við Fréttablaðið. „Það sem stendur eftir er samt sem áður að KSÍ þarf að skerpa á sínum reglum og setja hlutina fram á skýrari hátt.“ Samkvæmt aga- og úrskurða- reglum FIFA hefur leikmaður tekið út leikbann ef það er ekki á ábyrgð félagsliðs hans sem leikur- inn er stöðvaður. „Við vorum einmitt búnir að kynna okkur þessi mál og það er einkennilegt að KSÍ starfi eftir öðrum reglum en Alþjóða knatt- spyrnusambandið. Við treystum aftur á móti Rúnari Alex [Rúnars- syni] fyllilega fyrir verkefninu og hlökkum til leiksins gegn FH.“ - sáp KSÍ þarf að skerpa á sínum reglum Hannes Þór Halldórsson verður í leikbanni gegn FH á sunnudaginn. Í BANNI Hannes tók ekki út leikbann í leiknum gegn Breiðablik í síðustu viku. Rúnar Alex Rúnarsson verður í rammanum á sunnudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Oft og tíðum getur fót- bolti verið beinlínis hættuleg íþrótt og slysin gera einfaldlega ekki boð á undan sér. Á sunnu- dagskvöld lenti Elfar Árni Aðal- steinsson, leikmaður Breiðabliks, í skelfilegu samstuði við Grétar Sigfinn Sigurðarson, leikmann KR, í leik liðanna í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Leikmaður inn missti með- vitund og fékk nokkuð slæmt flogakast á vellinum. Í fram- haldi af atvikinu hefur umræða um öryggismál hjá félögunum sprottið upp en öll lið eru skyldug til að vera með sjúkraþjálfaðan aðila á bekknum í hverjum leik. „Við höfum tekið þá ákvörðun að hafa ávallt lækni á svæðinu í hverjum einasta heimaleik,“ segir Kristinn Kjærnested, for- maður knattspyrnudeildar KR. „Því miður þarf stundum leiðindaatvik til þess að vekja menn til umhugsunar. Menn þurfa síðan einnig að ræða þessi mál innan hreyfingarinnar en við ætlum að bregðast strax við þessu.“ - sáp Læknir á öllum heimaleikjum FORMAÐUR Kristinn Kjærnested segir KR-inga bregðast við strax. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.